AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.09.2003, Síða 14

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.09.2003, Síða 14
Ingibjörg R. Guðlaugsdóttir, skipulagsfræðingur Reykjavíkurborg og aðgengi fyrir alla Allir hafa sama rétt til þess að ferðast um, starfa og njóta þeirrar þjónustu, menningar og gæða sem borgin hefur upp á að bjóða. Til þess að svo megi verða þarf að tryggja aðgengi þeirra sem eiga við einhvers konar hömlun að stríða, hvort sem er vegna fötl- unar, aldurs eða annars. Reykjavíkurborg hefur sinnt þessu hlutverki vel og er fyr- irmynd annarra sveitarfélaga í þessum efnum. Þetta hefur verið gert með því að bæta aðgengi fatlaðra og annarra á stígum og gatnamótum borgarinnar í sam- vinnu við samtök fatlaðra allt frá miðjum síðasta áratug og stofnun Ferlinefndar Reykjavíkur um miðj- an áratuginn. í kjölfar stofnunar nefndarinnar var gerð úttekt á aðgengi að stofnunum og fyrir- tækjum í eigu borg- arinnar sem leiddi til þess að hafist var handa að bæta að- gengi að þeim. Úr- bætur á stígum, gatnamótum og byggingum í eigu borgarinnar hafa tekist vel, svo vel að eftir hefur verið tekið og borgin verðlaunuð fyrir. Við gerð deiliskipulags og bygg- ingu húsa er fylgt eftir ákvæðum í skipulagsreglugerð og byggingar- reglugerð. (skipulagsreglugerð er kveðið á um að tekið skuli tillit til þarfa barna, fatlaðra og aldraðra við ákvörðun um landnotkun, göt- ur, bílastæði og útivistarsvæði. í byggingarreglugerð eru ákvæði um fjölda bílastæða fyrir fatlaða, aðgengi að byggingum og að í háhýsum fyrir íbúðir skuli vera ein íbúð sem er fyrir fatlaða. Gatnamálastofa á umhverfis- og tæknisviði Reykjavíkur sér um ný- byggingu og viðhald gatna- og stígakerfis borgarinnar og er við allar framkvæmdir og endurbætur tekið sérstakt tillit til þarfa fatlaðra. Allt frá árinu 1995, í kjölfarið á sérstakri úttekt sem gerð var á aðgengi stígakerfisins, hefur verið unnið markvisst að endurbótum aðgengis og hefur árlega verið veitt fé til þessara mála. Framkvæmdir hafa einkum falist í að lagfæra niðurtektir við gatna- mót í eldri hverfum borgarinnar með tilliti til þarfa fatlaðra og að fjölga bekkjum við stíga. Endur- bætur á aðgengi á vegum gatna- málastjóra eru kortlagðar og hægt er að nálgast upplýsingar um þær hjá honum. Fasteignastofa á umhverfis- og tæknisviði Reykjavíkur vinnur að því að bæta aðgengi að fasteign- um Reykjavíkurborgar, jafnt utan- sem innandyra. Sem dæmi um endurbætur utandyra má nefna að bílastæði eru sérmerkt, snjó- bræðslu hefur verið komið fyrir í gangstétt- um, skábrautir gerðar, þröskuldar lækkaðir og komið fyrir rafdrifnum hurðaopnur- um. Dæmi um endur- bætur innandyra eru merkingar á glerflötum á gönguleiðum, tröppu- nef og salernisaðstaða hefur verið bætt. Jafnframt hefur verið unnið að uppsetningu á fólks-, hjóla- stóla- og sundlaugarlyftum. Árið 2003 er lögð áhersla á að bæta aðgengi í grunnskólum, leikskól- um, íþróttamannvirkjum, borgar- skrifstofum og menningarstofnun- um. Þó svo að hér að framan hafi ver- ið fjallað um endurbætur sem eíga að bæta aðgengi fatlaðra þá gagnast þær ekki síður þeim sem eiga við einhvers konar hömlun að stríða og því liður í því að bæta aðgengi fyrir alla eins og segir. ■ 12 LjósmJ Photos. Halldór Jónsson, RagnarTh., Halldór Karlsson

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.