AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.09.2003, Blaðsíða 11
Gerum betur fyrir aldraða
Öryggisíbúðir í Eirarhúsum
í Eirarhúsum, sem eru samtengd
Eir, eru starfræktar 37 öryggisí-
búðir, sem er nýmæli. Þar dvelja
einstaklingar sem hafa keypt sér
búseturétt. Þetta fyrirkomulag
hefur mælst mjög vel fyrir af not-
endum, ættingjum og starfsfólki.
Öryggisíbúðir eru íbúðir þar sem
komið er fyrir öflugu öryggiskerfi
og er þjónusta veitt frá hjúkrunar-
heimilinu eftir fyrirmælum frá
heimaþjónustunni í Reykjavík og
heimahjúkrun frá Heilsugæslunni
og greidd af þeim aðilum.
í Eirarhúsum er ennfremur veitt
félagsþjónusta, matarþjónusta og
fleira út frá þjónustukjarna hjúkr-
unarheimilisins. fbúðirnar hafa
sannað tilgang sinn sem er meðal
annars að tryggja öryggi og við-
eigandi þjónustu til íbúa sam-
kvæmt mati á hverjum tíma. í ör-
yggisíbúðunum getur maki búið í
nábýli við heimilismann á hjúkrun-
arheimilinu og geta hjón með því
móti haldið uppi nánari tengslum
en ella.
Eir, stækkun, hliðarmynd. / Eir extension, elevation.
Eir, stækkun hlið. / Eir, extension, elevation. Architect, Halldór Guðmundsson.
Hjúkrunaríbúðir
Hjúkrunaríbúðirnar, sem nú eru
að rísa við Eir, verða teknar í
notkun um næstu áramót og hafa
þær ekki verið gerðar með sama
hætti annars staðar. Þetta eru
úrræði fyrir hjúkrunarsjúklinga, en
umhverfið er þannig að í 10
manna einingum er fólk staðsett í
litlum hjúkrunaríbúðum og er þan-
nig reynt að skapa heimilislegt
andrúmsloft. Þessar einingar eru
fjórar og koma því þarna í notkun
40 ný rými fyrir aldraða sjúka. í
sama húsi er svo gert ráð fyrir 20
dagvistarrýmum.Fyrir hendi eru
aðstæður til að útvíkka starfsem-
ina og veita t.d. yngra fólki sem
þarf á hjúkrun að halda þjónustu
sem tekur mið af þess þörfum.
Einnig er unnt að sinna langtíma-
endurhæfingu fyrir aldraða sem
lokið hafa bráðameðferð á sjúkra-
húsum.
Þjónustumarkmið Eirar
Meginstefna þjónustunnar er því
fólgin í stuðningi við virkni, um-
önnun, lífsfyllingu og reisn heimil-
isfólksins og að varðveita sjálf-
stæði einstaklingsins og sjálfsvirð-
ingu. Lögð er rík áhersla á, að
hafa heimilislegt umhverfi og and-
rúmsloft ásamt því að skapa að-
laðandi og hvetjandi vettvang fyrir
starfsfólk. ■
9