AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.09.2003, Page 45

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.09.2003, Page 45
Kynning á hönnuði einingin skyldi gerð úr málmefni. Sigríður lagði áherslu á að ál yrði notað og var það mögulegt vegna þeirrar sérstöðu sem IKEA er með vegna magns. Því það er í raun dýrara að framleiða ál en stál og flóknara framleiðsluferli. Útkoman var hillukerfi með viðarhillum og skápum í stíl, sem hafa nú verið til sölu hjá IKEA í yfir 3 ár. En sér- staða einingarinnar er léttleikinn, stílhreint nútímalegt yfirbragð og festingin sem heldur einingunni tryggilega upp að vegg með nokkrum skrúfum. Hönnun hjá IKEA felst gjarnan í því að vöruflutn- ingsrýmið sé vel nýtt, og er því gjarnan unnið með kónísk form í mörgum stærðum sem falla vel saman í flutningum, því framleiðslu- kostnaður er lægri en flutningskostnaður. Undanfarið ár hefur Sigríður unnið að gerð fjölda spegla, handunnum körfum og línu fyrir barnaherbergi. Hjá IKEA er mikið athafnafrelsi, en auk þess að hanna eftir fyrirfram ákveðnum beiðnum, sinnir Sigríður samskiptum við hönnunarskóla víðsvegar um heiminn. Þannig gefst námsmönnum tækifæri að vinna tillögur að vörum, sem mögu- lega komast í framleiðslu hjá IKEA. „Það væri þarft innlegg fyrir íslenska nýsköpun og unga hönnuði, að veitt væri mánaðarlegt framlag til sprotafyrirtækja í tiltekinn tíma með- an þau eru að koma sér af stað, samanber stuðningskerfi í Svíþjóð", minnist Sigríður á. Að lokum bendir Sigríður á þann möguleika, sem íslenskir framleið- endur ættu að skoða. „Hér er margt fært handverksfólk og fyrir- tæki með þekkingu á nútímabúnaði og samskiptahæfni, sem gætu boðið erlendum þróunarfyrirtækjum uppá þjónustu við framleiðslu á smærra upplagi. Erlendir framleið- endur eiga til að horfa fram hjá smærri vöruframleiðslu og gæti það verið útflutnings- og þjónustutæki- færi sem verðugt væri að skoða fyrir íslenskt atvinnulíf". ■ 43 yvv\A

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.