AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.09.2003, Qupperneq 55

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.09.2003, Qupperneq 55
hönnun en borgarskipulag. Nauð- syn góðrar hönnunar við skipulag er öllum Ijós og á sér langa hefð hér á landi en til að skipulagsleg markmið náist, verður oftast að beita fleiri aðferðum en þeim sem teljast til hönnunar. Ágæt aðferð til að átta sig á inni- haldi skipulags er að „lesa lands- lag“ og reyna að skilja hversvegna borgarlandslag eða annað lands- lag lítur út eins og raun ber vitni. Inn í þann lestur fléttast óhjá- kvæmilega jarðfræði, landfræði, veðurfræði, sagnfræði, hagfræði, lögfræði, tækni- og verkþekking, félagsfræði, hönnunarhefð og ríkj- andi straumar og stefnur hverju sinni. Svona landslagslestur er vísþending um til hvaða þátta þarf að taka tillit við skipulagsgerð. Öllum er Ijós nauðsyn þess að taka tillit til náttúrufars, jarðvegs, sólfars og vinda og ríkjandi smekks hvað varðar útlit húsa og andrúmsloft hverfa. Minna er hins vegar rætt um félaglega og hag- ræna þætti við skipulag eða það sem kalla mætti pólitíska hlið skipulagsvinnu. Ákvarðanir yfir- valda um notkun og nýtingu lands eru óhjákvæmilega pólitískar sök- um þess að í yfirráðum yfir landi felast ákveðin völd, hvernig þessu valdi er úthlutað (þ.e. með skipu- lagsákvörðunum) hefur áhrif á uppbyggingu samfélagsins. Þetta birtist skipulagsráðgjöfum kannski ekki í daglegri vinnu þeirra en nauðsynlegt er að þeir geri sér þetta Ijóst og hagi vinnubrögðum sínum í samræmi við það. Til að vel takist til þurfa skipulagsráð- gjafar því að vinna með yfirvöld- um, almenningi og hagsmunaaðil- um öllum. í þessu samstarfi gegna skipulagsráðgjafar hlutverki leiðbeinenda. Þeir eru faglegir ráðgjafar sem þurfa að þekkja þarfir samfélagsins og hafa auk þess tæknilega þekkingu á þeim þáttum sem snerta skipulag, s.s. á náttúrufari, umferð og byggða- mynstri og hafa innsýn í þróun hagrænna, félagslegra og nú í ríkjandi mæli umhverfislegra þátta. Auk þessa þurfa skipulagsráðgjaf- ar að þekkja og kunna að beita aðferðum sáttasemjara því óhjákvæmilega þurfa þeir að sætta oft ólík sjónarmið. Þessar auknu kröfur til skipulagsgerðar leiða til þess að skipulagsáætlanir verða varla unnar nema með þverfaglegu samstarfi sérfræð- inga. Sú aukna umræða um skipulags- mál, sem fyrr er getið, hefur hvatt bæði leika og lærða til að kynna sér skipulag og gerir um leið sífellt meiri kröfur til skipulagsráðgjafa. Þetta er ánægjuleg þróun sem hvetur til faglegra vinnubragða og gagnrýninnar uppbyggingu skipu- lagsfræða sem rétt eins og aðrar fræðigreinar - og skipulagsáætl- anir - þurfa að vera I stöðugri endurskoðun og uppbyggingu. ■ (Greinarkom þetta birtist að hluta til áður í Arkitíðindum 2002). ^ ön n TTn J S m í ð i 7 V i ð g e r ð i r 7 Þ j ó n u s t a Heildarlausnir *=rð hugmynd ,M = HÉÐINN = ððfllllnlx* I M Stórás6• IS-210 Garðabæ —— U 11U íl n U VerKl Sími: 569 2100 «Fax: 569 2101 •www.hedinn.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.