AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.09.2003, Side 62

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.09.2003, Side 62
Pétur H. Armannsson, arkitekt Valin verk - morceaux choisis - er yfirskrift sýningar á tíu verkum franska arkitektsins Dominique Perraults sem opnuð verður í Listasafni Reykjavíkur í Hafnar- húsinu 15. nóvember nk. Sýningin er hingað komin að frumkvæði Alliance Frangaise á íslandi og með stuðningi franska sendiráðs- ins hér. Hún er unnin af AFAA (deild franska menningarmála- ráðuneytisins sem sér um list- kynningar) í samráði við vinnu- stofu Perraults sem farandsýning ætluð til kynningar á verkum hans á alþjóðlegum vettvangi. Dominique Perrault fæddist í Clermont-Ferrand í Frakklandi árið 1953. Hann lauk prófi í arkitektúr frá Ecolé des Beaux-Arts í París árið 1978. Eftir framhaldsnám í skipulagsfræði og sagnfræði hóf hann rekstur eigin teiknistofu árið 1981. Þáttaskil urðu á ferli hans árið 1989 er hann hlaut 1. verðlaun í alþjóðlegri samkeppni um þjóðarbókhlöðu Frakklands. Bókhlaðan var seinust en jafn- framt mikilvægust í röð svo- nefndra risaverkefna (grand proj- ects) sem Frangois Mitterand Frakklandsforseti átti frumkvæði að. Þessi mikla bygging, sem í umfangi er nær því að vera hluti hverfis en stök bygging, var full- gerð árið 1995. Hún vakti strax alþjóðlega athygli og skapaði höf- undinum sess við hlið Jean Nou- vels sem öðrum virtasta núlifandi arkitekt Frakklands. Bókhlaðan hlaut Evrópuverðlaunin í arkitektúr kennd við skála Mies van der Rohe í Barcelona árið 1996, sem dæmi um mikilvægt framlag nú- tímarkitektúrs til borgarmyndar Parísar. Um þá verðlaunaveitingu var fjallað í AVS í 2. tbl. 1997. Tveimur árum eftir sigurinn í þjóð- arbókhlöðukeppninni vann Perrault aðra alþjóðlega sam- keppni um hjólreiðavöll, ólympíska sundhöll og dýfingarlaug í Berlín. Ljósmyndir og teíkningar af þess- um verkefnum eru meðal þess sem sjá má á sýningunni í Hafnar- húsinu. Ef eitthvað eitt atriði er einkenn- andi fyrir byggingarlist Perraults þá er það hugmynd hans um samband byggingar og landslags. Hann lítur á lóðina og landið sem sitt byggingarefni, fremur en gler, steypu og stál. Að hans mati felst hönnun bygginga í umbreytingu þess landslags sem fyrir er á hverjum stað fremur en því að reisa hús í hefðbundnum skilningi. í hans huga er „það að skapa staði [..] áhugaverðari hugmynd en sú að reisa byggingu". Perrault nálgast oft viðfangsefni sín í arki- tektúr líkt og konsept-listamaður og verk hans eru undir augljósum áhrifum af umhverfislist (land-art). Það er því ekki tilviljun að margar af hans kunnustu byggingum eru grafnar niður í jörðina, eru eitt með landinu. Þó verk Perraults minni þannig oft fremur á landslag en byggingar hefur hann mikinn áhuga á borginni. Hann hafnar þó því að vinna eftir gefnum forskrift- um um gerð hennar, byggðri á rómantískri fortíðarþrá. Það er táknrænt að vinnustofa hans í 60

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.