Bændablaðið - 23.02.2023, Blaðsíða 21

Bændablaðið - 23.02.2023, Blaðsíða 21
21Bændablaðið | Fimmtudagur 23. febrúar 2023 Nýstárlegri aðferð beitt við mat á losun Í rannsókn LbhÍ var beitt nýstárlegri aðferð við að mæla og áætla magn- og eðlisbreytingar sem verða í lífrænum mýrum fyrir ofan ákveðið gjóskuleiðarlag eftir framræslu, þurrkun og langtíma ræktun og niðurstöðurnar bornar saman við óraskað votlendi sömu gerðar. Í riti LbhÍ koma fram vísbendingar um að mun minni kolefnislosun sé af framræstu ræktarlandi á Íslandi en reiknistaðlar IPCC gera ráð fyrir. Í inngangi kemur fram að þörf sé á mun meiri og ítarlegri gögnum en nú liggi fyrir til að geta sagt fyrir með sæmilegri vissu hvað framræst land á Íslandi losi mikið kolefni á ári. Það sé ljóst þegar litið sé til þess hversu stór þáttur slíkra landsvæða er í uppgefnu kolefnisbókhaldi Íslands, sérstöðu íslenskra mýra og takmarkaðra rannsókna á losun og flatarmáli ólíkra mýrargerða. Ástæða sé til að þróa íslenska losunarstuðla yfir framræst land, hvort sem það er nýtt til akuryrkju, túnræktar eða sem úthagi til beitar. Túlkun niðurstaðna umfram efni Jóhann segir að rannsókn LbhÍ hafi verið mjög áhugaverð þar sem aðferðarfræði hafi verið beitt sem aðstæður í íslenskum jarðvegi bjóði upp á. Engin ástæða sé til að gagnrýna þá aðferðafræði sem slíka, en borið hafi á að túlkun niðurstaðna hafi verið langt umfram efni. Á það hafi verið bent síðastliðið sumar af hálfu Landgræðslunnar. „Ástæður þess að erfitt er að nota niðurstöður rannsóknarinnar til að áætla breytingar á kolefnisforða í ræktarlandi í dag eru nokkrar. Sú fyrsta er að einungis eru skoðuð tvö svæði innan sama landshluta og því útilokað að draga ályktanir af niðurstöðunum sem nota megi fyrir Ísland. Nýtingarsaga þessara tveggja svæða er einnig mjög frábrugðin og jafnvel óljós. Svæðin eru með öðrum orðum mjög mismunandi. Þá var annað svæðanna ræst fram fyrir um 55 árum en hitt 70 árum og gætu niðurstöðurnar því einungis gefið vísbendingar um hvaða breytingar hafa átt sér stað á þeim tíma en hvorki hvaða breytingar eiga sér stað í dag, né frá 1990 eða síðar. Þá er ekki ljóst hvort hreyft hafi verið við jarðvegi á öðru svæðinu, en ef svo er þá er ekki hægt að rekja breytingar á jarðvegi til landnotkunarinnar heldur verður að draga þá ályktun að þar gæti jarðrask haft áhrif á niðurstöðurnar, þá væri ekki hægt að nota gögnin til að spá fyrir um áhrif almennrar ræktunar. Ekkert þessara atriða dregur þó úr þeirri staðreynd að aðferðafræðin sem beitt var, er allrar athygli verð,“ segir hann. Niðurstöður um núverandi landnýtingu Jóhann bendir á að mat á kolefnisbúskap ræktarlands verði að geta skilað niðurstöðum sem varpi ljósi á þær breytingar sem eiga sér stað vegna núverandi landnýtingar, það er þess tíma sem skuldbindingar Íslands í loftslagsmálum ná til. Slíkar rannsóknir þurfi að vera á hærra rannsóknarplani, að lágmarki aðferðaþrepi 2, og ná til þess breytileika sem vænta megi að sé fyrir hendi eins og kostur sé. „Þar er bæði átt við lands- hlutabundinn breytileika, ef við á, en einnig breytileika vegna jarðvegsgerðar og nýtingar- tegundar (ræktunar). Þannig að það þarf nokkurn fjölda svæða. Til viðmiðunar má benda á að í úttekt Landgræðslunnar á landgræðslusvæðum liggja rúmlega 600 mælireitir til grundvallar,“ segir Jóhann og bætir við að þegar mælisvæðin verði valin þurfi að huga að „landnýtingu“ þeirra sem sérstakri breytu. Hann segir að „aðferðaþrep“ vísi til gagnagæða. Aðferðaþrep 1 sé þegar notaðir eru alþjóðlegir stuðlar við mat á losun. Aðferðaþrep 2 er þegar notaðir eru landsstuðlar byggðir á innlendum rannsóknum og aðferðaþrep 3 felur í sér að notuð eru reiknilíkön til að meta breytingar á losun, þau byggi þá yfirleitt á gögnum sem er aflað með mælingum samkvæmt aðferðaþrepi 2. Gögnum sem verður safnað við endurmatsvinnuna fram undan, verða notuð til að reikna losunarstuðla á aðferðarþrepi 2 . Hugtökin og heitin mikilvæg fyrir umræðuna Jóhann segir mikilvægt að átta sig á hugtökum þegar fjallað er um þessi mál. „Þegar votlendi er ræst fram ræðst það af landnýtingunni sem fylgir í kjölfarið hvernig það skilgreinist inn í losunarbókhaldið. Sumt finnst fólki ekki rökrétt en þá lýtur það lögmálum loftslagssamninganna sem Ísland er aðili að og flokkuninni þar,“ segir hann og bendir á að borið hafi á því í umræðunni að fólk hafi lent á villigötum vegna misskilnings á þessum hugtökum. „Þetta sem við erum að tala um núna eru kallaðir „landnýtingar- flokkar“. Framræst votlendi getur þannig flust í biðflokk sem kallast „wetland converted to cropland on organic soil“, ef það er nýtt sem ræktarland. En ef ekkert er gert umfram framræsluna þá myndi það fara í biðflokk sem kallast „wetland converted to grassland on organic soil“. Það köllum við framræst land, hitt landið myndum við kalla ræktarland. Land er yfirleitt 20 ár í hverjum biðflokki en færist þá í að vera einfaldlega ræktarland eða mólendi (e. grassland) í bókhaldinu. Utan um þessar breytingar á landnýtingu og flatarmáli er haldið eins nákvæmlega og hægt er frá ári til árs. Það er lykilatriði að skilja þessar skiptingar því það er litið þannig á að þessar landgerðir hafi mismunandi eiginleika og þar með ættu þar að vera notaðir mismunandi losunarstuðlar. Í umræðu um kolefnislosun frá ræktarlöndum og framræstum löndum hef ég séð þessu tvennu ruglað saman,“ segir Jóhann. Kýótóbókanir Fyrri Kýótóbókunin var gerð við rammasamning Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar og samþykkt í japönsku borginni Kýótó í lok árs 1997. Hún gilti fyrir árin frá 2008 til 2012. Ísland var aðili að bókuninni, þar sem gert var ráð fyrir að sameiginlegur samdráttur aðildarríkja í útstreymi gróðurhúsalofttegunda yrði að lágmarki 5,2 prósent á þessu tímabili, miðað við útstreymið eins og það var árið 1990. Á öðru tímabili Kýótó- bókunarinnar, frá 2013 til 2020, bar Íslandi að draga saman losun um 20 prósent árið 2020, miðað við losun ársins 1990. Skuldbindingar Kýótóbókunarinnar náðu ekki til losunar frá alþjóðaflugi, alþjóðasiglingum né losunar frá landnotkun, breyttri landnotkun eða skógrækt (LULUCF). Ísland og Evrópusambandið (ESB) gerðu með sér tvíhliða samning um sameiginlegar efndir við bókunina á öðru skuldbindingartímabili Kýótóbókunarinnar. Því fylgdi að Ísland fékk úthlutaðar losunar- heimildir fyrir losun sem telst á beinni ábyrgð Íslands og að Ísland byrjaði að taka þátt í viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir. Parísarsáttmálinn Parísarsáttmálinn gildir frá 2021 til 2030 og er samkomulag undir Loftslagssamningi Sameinuðu þjóðanna (UNFCCC). Fyrir tímabilið hafa aðildarríki ESB, auk Íslands og Noregs, sett sér sameiginlegt markmið um 40 prósent samdrátt í losun árið 2030 miðað við 1990; það markmið var svo hækkað í 55 prósent árið 2020. Evrópusambandsríkin, ásamt Íslandi og Noregi, taka öll þátt í viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir. Ísland setti sér það markmið að draga úr losun um 29 prósent árið 2030 miðað við árið 2005, frá þeim flokkum sem eru á beinni ábyrgð Íslands og er þetta markmið í endurskoðun samhliða öllum breytingum sem fylgja uppfærðu markmiði Evrópusambandsins. Ekki ásættanlega staða Núverandi losunarbókhald er, að sögn Jóhanns, byggt á þeim besta gagnagrunni sem tiltækur er á hverjum tíma. „Íslandi, eins og öðrum aðildarríkjum samningsins, ber skylda til þess, og með þessu fylgist eftirlitsnefnd á vegum loftslagssamningsins til dæmis gaumgæfilega með og gerir athugasemdir ef við á. Gögn verða ekki ónýt með tímanum og það er ekkert sem segir að gögn frá 1975 eigi ekki vel við í dag. Ég get auðvitað ekkert fullyrt um það, en til þess eru fyrirhugaðar rannsóknir einmitt, að skoða þessa hluti betur því staðan er augljóslega ekki ásættanleg,“ segir Jóhann spurður um trúverðugleika fyrirliggjandi gagna. „Hvort það þýði að losunarbókhaldið sé byggt á veikum grunni hlýtur að byggja á mati hvers og eins, en þó er hægt að fullyrða að það er byggt á þeim besta grunni sem hægt er á hverjum tíma. Að hafa samþykkt gögn samkvæmt aðferðaþrepi 2 fyrir 55 prósent einhvers landnýtingarflokks ætti að teljast mjög góð staða þegar ekki liggja fyrir neinar sérstakar mælingar til að miða við. En það breytir því ekki að þetta er ekki ásættanleg staða og á það hefur Landgræðslan bent á frá því henni var falin umsjón með landnýtingarhluta losunarbókhaldsins. Fram að því var þessi hluti bókhaldsins hjá LbhÍ og hafði verið um árabil og fórst það raunar prýðilega miðað við þann stakk sem þar var skorinn.“ Notkun á bindingareiningum inn í losunarbókahaldið Samkvæmt upplýsingum fá Nicole Keller, teymisstjóra á sviði loftslagmála hjá Umhverfisstofnun, var Íslandi heimilt á seinna Kýótó-tímabilinu að nota bindingareiningar úr landnýtingarflokkum inn í loftslagsbókhaldið eins og þær eru skilgreindar í 3. og 4. málsgrein 3. greinar Kýótóbókunarinnar. Um þrjá bindingarflokka er að ræða: „afforestation“ (nýskógrækt), „forest managment“ (skógarumhirða eða skógarstjórnun) og „revegetation“ (landgræðsla). Hún segir að misjafnt sé hvernig nákvæmlega bindingareiningar eru reiknaðar eftir flokkum, í sumum tilfellum sé horft til nettóbindingar og í sumum tilfellum sé stuðst við muninn á milli bindingar (losunar/ bindingar) á ákveðnu viðmiðunarári eða viðmiðunartímabili. Skylda sé að taka inn í reikninginn losun vegna skógarhöggs (deforestation). Þak var á því hversu margar bindingareiningar var leyfilegt að nota frá flokknum „forest managment“ (samtals rúmlega 1.000 kílótonn CO2-íg) en á Íslandi var reiknuð binding langt fyrir neðan þakið (eða 156 kílótonn CO2-íg) og því hafði þakið ekki áhrif á möguleika Íslands til að nýta umræddar bindingareiningar í sínu uppgjöri. Sameiginleg markmið á Parísartímabilinu Nicole segir að á Parísartímabilinu séu Ísland, Noregur og aðildarríki ESB með sameiginleg markmið fyrir árið 2030. ESB hefur sett ýmsar reglugerðir um framtal og uppgjör á losun gróðurhúsalofttegunda, og fyrir LULUCF flokkinn gildi reglur sem kallaðar eru LULUCF Regulation. Í stuttu máli muni Ísland hafa heimild til að nýta í sínu uppgjöri gagnvart ESB um 0,2 milljón tonn koltvísýringsígilda á tímabilinu (eða 20 kt á ári) frá LULUCF flokknum á móti losun frá þeim geirum sem teljast á beinni ábyrgð Íslands. Hvernig bindingin sé reiknuð nákvæmlega sé misjafnt, eins og var á Kýótótímabilinu. Hún segir að í sumum flokkum sé hún reiknuð sem nettóbinding en í flestum öðrum flokkum er tekinn munurinn á milli uppgjörstímabila og viðmiðunartímabila. Hafa þurfi í huga að reglugerðin sé í endurskoðun og til umfjöllunar nú á Evrópuþingi eftir hækkun á yfirmarkmiði ESB, Noregs og Íslands sem tilkynnt var árið 2020 til Loftslagssamningsins. Líklegast er að þessar reglur gildi að minnsta kosti á fyrsta helming tímabilsins (2021-2025) en uppgjörsreglurnar muni breytast fyrir seinni helminginn (2026-2030). Sem dæmi megi nefna að Evrópusambandið ætli að setja markmið um nettóbindingu í landnýtingarflokknum fyrir árið 2030 og þessu markmiði verður skipt upp á milli landa. Nicole Keller, teymisstjóri á sviði loftslagmála hjá Umhverfisstofnun. Mynd / Sigurður Bragason Á tilboði út febrúar! d line baðherbergissett, hönnunarvara eftir danska arkitektinn og iðnhönnuðinn Knud Holscher: 1 klósettrúlluhaldari, 1 aukarúlluhaldari, 1 klósettbursti með upphengi og 2 snagar. Tilboðsverð út febrúar: 38.688 kr. Fullt verð: 48.360 kr. 20% baðherbergissett afsláttur í febrúar vv.is honnunarlausnir.is Jóhann Þórsson, vistfræðingur og fagteymisstjóri loftslags- og jarðvegs hjá Landgræðslunni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.