Bændablaðið - 23.02.2023, Blaðsíða 31
31Bændablaðið | Fimmtudagur 23. febrúar 2023
AMMANN
JARÐVEGSÞJÖPPUR
Í MIKLU ÚRVALI
GÆÐI SEM ENDAST
Tangarhöfða 1, 110 Reykjavík / 551 5464 / wendel.is
REYKJAVÍK AKUREYRI 590 5100 klettur.is
Aktu á
gæðum
Helluhraun 4, Hafnarfirði
sími 565 2727 & 892 7502
www.rag.is
Verð 5.350.000,-
Við auglýsum svo
sannarlega ekki “verð frá”. VIÐ AUGLÝSUM
ALDREI
„VERÐ FRÁ“
SERES 3
Luxury Rafmagnsbíllinn
býður upp á ríkulegan
staðalbúnað og frágang
í hæsta gæðaflokki!
þá, en ýmislegt lofar góðu svo ég
geri ráð fyrir að söluvörur verði til
úr þessu ferli.
Svonalagað getur samt tekið
langan tíma að fínpússa svo ég
veit ekki hvort ég á að fullyrða
nokkuð um hvenær nákvæmlega
það verður, en stefni auðvitað á að
geta nýtt uppskeru næsta hausts.
Það er margt sem þarf að huga að,
umbúðir, merkingar, geymsluþol,
útlit og bragð auðvitað.“
Vallhumallinn spennandi
Elínborg segir að gamla nytja-
og lækningajurtin vallhumall
sé spennandi hráefni. „Vall-
humalshlaupið mitt er sætt hlaup
úr vallhumli og sítrónum, til þess
að nota til dæmis með ostum og á
ristað brauð. Ég er einmitt líka að
leggja lokahönd á nýja vöru þar sem
vallhumallinn er aðalbragðefnið.
Vallhumall er vissulega ekki
beinlínis aukaafurð frá grænmetis-
ræktuninni, nema hvað að hann
getur orðið óþarflega ágengur í
gulrótabeðunum.
Þar sannast enn einu sinni að
illgresi getur verið mjög víðtækt
hugtak, og algerlega háð aðstæðum
hverju sinni. Ég allavega ákvað
að ég ætlaði að finna leiðir til að
nýta vallhumalinn, frekar en bara
að eyða tíma í að fjarlægja hann.“
Hún bendir á nýja vefinn fyrir þá
sem eru áhugasamir um hennar
afurðir og vörur.
„Á heimasíðunni geta áhuga-
samir fengið nánari upplýsingar
um starfsemina, ræktunina og
framleiðsluna. Þar má nálgast
upplýsingar um sölustaði, fram-
leiðsludagatal, fréttir og síðan
alls konar uppskriftir þar sem
vörur frá mér eru í aðalhlutverki,“
segir Elínborg.
Rófur koma úr þurrkun.
Unnið að þróun tilbúinna grænmetisrétta.