Bændablaðið - 23.02.2023, Blaðsíða 8

Bændablaðið - 23.02.2023, Blaðsíða 8
8 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. febrúar 2023 FRÉTTIR Til sölu Ssangyong Rexton, 7 manna 2,2 Dísel, sjálfskiptur. Árgerð 2021. Ekinn 11.000 km. Bíllinn er með 33“ breytingu. Bíllinn er með hátt og lágt drif,læstur millikassi, sjálfstæð fjöðrun, læst afturdrif,byggður á grind.Dráttarbeisli. Dráttargeta 3000kg. Verð kr. 8.990.000.- Upplýsingar í s. 567-4949. Kornrækt: Leggja til 500 milljón króna ríkisstuðning Starfshópur matvælaráðherra leggur til árlegan 500 milljón króna ríkisstuðning auk fjárúthlutunar í sérstakan þróunarsjóð í drögum sínum að aðgerðaráætlun til eflingar kornræktar. Lokaskýrsla hópsins verður afhentur ráðherra um næstu mánaðamót. Starfshópinn skipa Helgi Eyleifur Þorvaldsson, Hrannar Smári Hilmarsson og Egill Gautason hjá Landbúnaðarháskóla Íslands. Síðan hópurinn var skipaður í ágúst í fyrra hefur hann m.a. safnað saman tiltækum gögnum, tekið viðtöl við bændur, sérfræðinga og kornkaupendur, kynnt sér fyrirkomulag kornræktar í nágrannalöndum og teiknað upp mögulegar sviðsmyndir fyrir uppbyggingu kornræktar hér á landi. Hópurinn hélt í janúar tvo fundi með bændum sunnan heiða og norðan þar sem þeir kynntu vinnu sína og drögin. Mæltust þeir vel fyrir. Egill segir það hafa komið þeim þægilega á óvart hvað mæting var mikil. Fjörugar umræður hafi skapast sem sýndi augljósan áhuga bænda á málefninu. Stærðarhagkvæmni lykilatriði Í aðgerðaráætluninni leggur hópurinn meðal annars til árlegan 500 milljón króna ríkisstuðning sem skiptist í fjárfestingastuðning og framleiðslutengdan stuðning. „Fjárfestingastuðningurinn yrði ætlaður í innviðauppbyggingu; byggingu þurrkstöðva og sílóa, auk kaupa á kornflutningavögnum og þreskivélum,“ segir Helgi. Egill bendir á að eitt af megin­ niðurstöðum þeirra sé nauðsyn þess að byggja upp hagkvæma innviði til þurrkunar, geymslu og flutninga. „Stærðarhagkvæmni er þar lykilatriði og því tölum við um að til þess að hægt sé að fá styrk þurfi stöðin að afkasta að minnsta kosti 1.000 tonnum með áætlanir um stækkun. Minni og óhagkvæmari einingar yrðu verri fjárfesting fyrir hið opinbera sem og rekstraraðila stöðvarinnar.“ Helgi segir að færri og stærri þurrkstöðvar væru æskilegasti kosturinn. „Fjárfestingakostnaður á tíu þúsund tonna stöð er helmingi minni en á þúsund tonna stöð ef þú deilir henni niður á kíló. Við leggjum höfuðáherslu á að verkefni verði fullfjármögnuð. Að uppfylltum tilteknum skilyrðum leggi ríkið þá til 40% í fjárfestingunni.“ Hann segir þó mikilvægt að bændur séu í ráðandi hlut. „Til þess að verkefninu fylgi ákefð og ástríða. En við leggjum það þó í hendur bænda að koma sér saman í hóp.“ Hvati til að gera vel Hinn angi stuðningsins yrði svo framleiðslutengdur. Starfshópurinn leggur til að til að byrja með yrðu 10 ­20 krónur greiddar fyrir hvert kg af byggi, hveiti og höfrum. „Við teljum að framleiðslutengdur stuðningur skapi hvata fyrir bændur til að gera vel, vanda jarðvinnslu og hámarka uppskeru – sem er um leið best fyrir umhverfið. Þannig gæti land sem skilar tveimur tonnum skilað fjórum tonnum með réttri þekkingu og vandvirkni. Bóndinn gæti þar með tvöfaldað stuðning sinn,“ bendir Helgi á. Egill segir að hugmyndin sé að framleiðslustuðningur yrði smám saman trappaður niður þegar markmið um aukna innan­ landsframleiðslu verði náð. „Passa þyrfti upp á að hann eigngerist ekki.“ Markmiðið sé sjálfsnægt í byggframleiðslu, sem hópurinn hefur reiknað út að sé á milli 35 og 45 þúsund tonn og 80 þúsund tonna framleiðsla af hveiti. Kornið er fyrst og fremst ætlað í fóður en þegar manneldiskröfum er náð hækkar virði þess. Markaður með hafra er töluvert minni, þar sem það fer lítið í fóður. Telja þeir nokkuð raunhæft að komast nálægt markmiðunum á áratug í bygg og hafrarækt miðað við þá sviðsmynd sem þeir hafa dregið upp en markmið í hveitiræktun tekur væntanlega lengri tíma. Merkileg staða Í lokaskýrslunni má einnig finna kafla eftir Daða Má Kristófersson, prófessor í umhverfis­ og auðlindafræði. „Í þeim kafla færir hann rök fyrir því að með réttum aðgerðum sé kornrækt á Íslandi raunverulega samkeppnishæf við erlenda framleiðslu. Ástæðan er sú að við erum nær á pari í kostnaði, sem auðveldlega væri hægt að minnka með betri vélakosti og úrvinnslu. Við búum við það að eiga fullt af frjósömu landi, ódýrt rafmagn og heitt vatn. Veikleiki okkar er kalt veðurfar og ofsafengin sem við getum brugðist við t.d. með skjólbeltarækt og plöntukynbótum. En á meðan eru líka veikleikar erlendis, s.s. miklir þurrkar, skordýraplágur og ófrjósamur jarðvegur. Í kaflanum kemur fram að við eigum margt inni og ef okkur tekst að byggja innviði sem lækkar kostnað við framleiðslu þá erum við komin í ansi merkilega stöðu,“ segir Helgi. /ghp Starfshópurinn, þeir Helgi Eyleifur Þorvaldsson, Hrannar Smári Hilmarsson og Egill Gautason hjá LbhÍ, kynntu sér fyrirkomulag kornræktar í nágrannalöndunum. Hér eru þeir að kynna sér aðstæður í Noregi. Mynd / LbhÍ Aðgerðaráætlun starfshóps matvælaráðherra telur að framleiðslutengdur stuðningur skapi hvata fyrir bændur til að vanda til verka við kornrækt. Dagur Freyr Jónasson og Ragnhildur Ásta Ragnarsdóttir, bændur í Norðurhaga í Austur-Húnavatnssýslu. Mynd / Aðsend Yngsti bóndi landsins Fyrir skemmstu tóku Ragnhildur Ásta Ragnarsdóttir og Dagur Freyr Jónasson við búi foreldra Ragnhildar. Norðurhagi er 500 kinda sauðfjárbú við Þing í Húnabyggð. Ragnhildur segist hafa verið viðloðandi búskapinn frá ómunatíð. Foreldrar hennar heita Þorbjörg Pálsdóttir og Ragnar Bjarnason, en Ragnar ólst upp í Haga og byggði Norðurhaga með skiptingu jarðarinnar. Hún segir að mikil veikindi hafi verið upp á síðkastið og eldra fólkið hafi viljað stíga til hliðar til að hleypa kærustuparinu unga að. Sama fjölskyldan hefur byggt jörðina frá 1915. Nú er Ragnhildur fjórði ættliðurinn og fyrsta konan sem tekur við kefli foreldra sinna. Hún er yngst af tíu systkinum og er bróðir hennar bóndi á Haga, þar sem faðir þeirra ólst upp. Nánast jafnaldrar Ragnhildur og Dagur eru bæði 19 ára, en hún er ögn yngri og hlýtur því nafnbótina yngsti bóndi landsins, fædd í september 2003. Engin skrá heldur utan um aldur bænda, en hún segist þekkja Kristófer Orra Hlynsson, sem áður bar titilinn og að hann hafi fært henni „kyndilinn“. Nú þegar þau hafa tekið við lyklavöldum í Norðurhaga stefna Ragnhildur og Dagur að endurbótum á íbúðarhúsi og útihúsum. Aðspurð hvaða ráð hún gefi ungu fólki sem ætli í búskap, þá hvetur Ragnhildur áhugasama til að nýta alla faghjálp sem býðst. Í búfræðinámi Ragnhildur er á fyrsta ári í búfræði við Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri. Hún dvelur við skólann á virkum dögum og fer heim allar helgar. Á meðan heldur Dagur til í Norðurhaga og sér um daglegan rekstur búsins, með aðstoð foreldra Ragnhildar. Hann starfar einnig sem smiður á Blönduósi. Dagur er frá Akureyri og kynntust þau Ragnhildur þegar þau voru bæði við nám við Verkmenntaskólann á Akureyri. Hún segir hann ekki hafa stefnt að því að verða bóndi, en hafi heillast þegar hún kynnti hann fyrir sveitinni. „Ég ætla að taka upp orð föður míns og segja að enginn ætti að reyna sauðfjárbúskap nema að hafa óbilandi áhuga. Þetta getur verið erfitt, en er á sama tíma mjög skemmtilegt og krefjandi,“ segir Ragnhildur að lokum. /ÁL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.