Bændablaðið - 23.02.2023, Blaðsíða 62

Bændablaðið - 23.02.2023, Blaðsíða 62
62 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. febrúar 2023 Að þessu sinni var tekinn til kostanna rafmagnsbíllinn Toyota bZ4X VX, sem er fjórhjóladrifinn jepplingur með prýðilega veghæð. Toyota hefur loksins hoppað á vagn rafknúinna bíla og er útkoman kostum gædd, enda afrakstur samstarfs Toyota og Subaru. Síðarnefnda bílategundin framleiðir eineggja tvíbura bZ4X, sem ber nafnið Subaru Solterra. Þessar bifreiðar veita rafmagnsbílum eins og Hyundai Ioniq 5 og Skoda Enyaq iV harða samkeppni. Frá öllum hliðum er bíllinn hinn fríðasti. Útlitinu má lýsa sem samruna milli Toyota Rav4 og Subaru Outback með smá skammti af dirfsku í hönnunareinkennum hér og þar. Þar má nefna plastklæðninguna á fremri hjólaskálunum sem teygir sig hálfa leið fram fyrir framljósin og vindskeiðið sem af einhverjum ástæðum er klofið í miðjunni. Það flippaðasta við bíl þennan er þó nafnið – bZ4X. BZ á að standa fyrir „beyond zero“ og 4X stendur fyrir fjórhjóladrif. Þrátt fyrir að útlitið ögri er heildarniðurstaðan góð. Að innan er umhverfið nútíma legt, en á einhvern hátt mjög kunnuglegt ef maður hefur reynslu af öðrum Toyota eða Subaru bílum. Mælaborðið er með tauáklæði sem gefur innréttingunni fágaðan blæ. Hraðamælirinn er sérlega nýstárlegur þar sem hann er staðsettur í kverkinni þar sem framrúðan og innréttingin mætast og er horft yfir stýrið til að sjá hraðann – ekki í gegnum það. Þar sem hraðamælirinn er ofarlega og fjarlægur, er lítil áreynsla að líta á hann þar sem augun þurfa ekki að skipta eins mikið um fókus. Brotthvarf hanskahólfsins Í innréttingunni er ekkert hefðbundið hanskahólf, en samkvæmt umboðinu var því fórnað til að gefa farþeganum aukið rými. Undir armhvílunni er lokuð hirsla sem vegur ekki upp á móti brotthvarfi hanskahólfsins. Undir miðjustokknum er einnig opin hilla þar sem hægt er að safna drasli. Lágt og stutt húdd, þunnir gluggapóstar og hliðarspeglar sem eru ögn aftar en á mörgum bílum halda blindum punktum í lágmarki. Þetta er kærkominn eiginleiki þegar ekið er að hringtorgum, gatnamótum og gangbrautum. Glerþak gefur góða birtu inn í bílinn. Sætin eiga skilið sérstakt hrós, en vandað form og mjúkur svampur gerir þau þægilegari en í mörgum lúxusbílum. Hávaxnir komast vel fyrir í öll sætin, þó ekki megi tæpara standa. Eins og Subaru í akstri Samstarfið við Subaru hefur skilað sér í bifreið með sérlega góðum aksturseiginleikum á vegum þar sem yfirborðið er ekki fullkomið, enda er það framleiðandi sem er þekktur fyrir fjórhjóladrifna bíla með lágan þyngdarpunkt. Á malarvegum eða hlykkjóttum þjóðvegum með snjóföl grípur bíllinn ótrúlega. Góð veghæð minnkar áhyggjur af því að aka yfir litla skafla eða grjót á veginum. Sportlegir aksturseiginleikar hafa ekki skilað sér í höstum bíl, því Toyota bZ4X fer býsna vel með ökumann og farþega. Þessi bíll er með tvo mótora – einn fyrir hvorn öxul. Saman gefa þeir 218 hestöfl sem hljómar ekki mikið á bíl sem er rúm tvö tonn að þyngd. BZ4X er hins vegar ótrúlega kvikur í akstri og skýst upp í hámarkshraða á augnabliki. Stundum heyrast viðvörunarhljóð í akstri, eins og gengur og gerist í nýjum bílum. Ókosturinn í þessum bíl er þó sá að ökumaðurinn hefur oft ekki minnstu hugmynd af hverju ökutækið er að gefa hljóðmerki – sem er einungis til að valda grunlausum bílstjóra ama. Þegar sett er í bakkgír heyrist stanslaust píp inni í bílnum sem er algjörlega óþarft – hver þarf stöðuga áminningu á að viðkomandi sé að bakka? Afbragðs akstursaðstoð Þessi bíll er búinn akstursaðstoð, eins og fjarlægðatengdum hraðastilli og akreinastýringu, sem minnka álagið á ökumanninn. Mjög fljótlegt er að kveikja á þessum kerfum og heldur bíllinn sig örugglega í miðju akreinarinnar ef vegmerkingar eru í lagi. Ólíkt mörgum bifreiðum, er bZ4X umburðarlyndur gagnvart því að ökumaðurinn haldi varla í stýrið á meðan sjálfstýringin er í gangi. Fremst á bílnum er myndavél sem varpar skýrri mynd á margmiðlunarskjáinn í miðju mælaborðsins. Um leið og ekið er hægar en tíu kílómetra hraða kviknar sjálfkrafa á myndavélinni sem getur hjálpað óöruggum ökumönnum að keyra í miklum þrengslum. Ókostur er þó að drulla festist mjög hratt á myndavélinni og er eina leiðin til að þrífa hana að stíga út og strjúka af með puttanum. Þarna hefði mátt vera stútur fyrir rúðupiss. Drægni heldur lítil Toyota gefur upp að fjórhjóladrifna útgáfan af bZ4X sé með allt að 460 kílómetra drægni við bestu aðstæður. Blaðamaður tók við bílnum með nánast fullri rafhlöðu og eftir hundrað kílómetra (glannalegan) akstur við óhagstæð veðurskilyrði, var rafhlaðan hálfnuð. Þó að við almenna notkun megi reikna með að drægnin verði umtalsvert betri benda prufanir erlendra blaðamanna til að þetta atriði sé einn veikasti punktur bílsins. Tölur Helstu mál eru: Lengd 4.690 mm; breidd 1.860 mm; hæð 1.600 mm. Eigin þyngd er 2.105 kg, en heildar þyngd er 2.275 kg. Stærð rafhlöðu er 71,4 kWst. Verðið á Toyota bZ4X í VX útfærslu og með fjórhjóladrifi er 9.350.000 krónum m. vsk. Ódýrasta útgáfan, sem einungis er með drifi að framan og minna af staðalbúnaði, fæst á 7.350.000 krónur m. vsk. Í stuttu máli Toyota bZ4X er vel útbúinn og vandaður bíll með afbragðs aksturseiginleika. Fjórhjóladrif og mikil veghæð ættu að gera þetta að vænlegri bifreið til notkunar á vondum vegum og í ófærð. Sakir stuttrar akstursdrægni er þó ekki hægt að mæla með bifreiðinni ef fyrirhugað er að aka mikið í dreifbýli. VÉLABÁSINN Ástvaldur Lárusson astvaldur@bondi.is – Umhverfisvænn bíll sem þolir ófærð Toyota bZ4X er fyrsta útspil Toyota á rafbílamarkaðnum, ef frá eru taldir sendibílar unnir í samstarfi við Peugeot og Citroën. Aksturseiginleikar eru með þeim bestu á rafknúnum fólksbílum. Útlitið er áhugavert og vel heppnað. Myndir / ÁL Afstaða hraðamælisins er þannig að ökumaður horfir yfir stýrishjólið. Fáir blindir punktar, þökk sé þunnum gluggapóstum og vel staðsettum hliðarspeglum. Toyota bZ4X og Subaru Solterra eru eineggja tvíburar sem eru afrakstur samstarfs milli þessa tveggja japönsku bílaframleiðenda. Aftursætin rétt rúma farþega af stærstu gerð. Glerþakið hleypir inn mikilli birtu. Stór afturhlerinn gefur aðgang að 452 lítra stóru skotti. Öflugur hleðslukapall fylgir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.