Bændablaðið - 23.02.2023, Blaðsíða 34

Bændablaðið - 23.02.2023, Blaðsíða 34
34 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. febrúar 2023 En hvað er eðlilegt? Jú – að nýta það sem er til, burtséð frá efnahag. Ef við höfum í huga þá matarsóun sem á sér því miður stað hérlendis mættu allir landsmenn vera með hausinn á betri stað – duglegri við það að gefa, nýta sér, eða leyfa öðrum að nýta það sem umfram er. Í mælingum Umhverfisstofnunar frá árinu 2019 kemur til dæmis fram að íslensk vísitölufjölskylda hendir sem svarar um 7 kg af mat vikulega – matarsóun heimila hérlendis er ríflega 60% af heildarsóun. Fyrir utan það að nýtanlegum mat er hent, teljum við allt of oft að urðun matar sé ekki sérstakt vandamál, því matur sé að mestu lífrænn og brotni því auðveldlega niður. Sú er þó reyndar ekki raunin að urðun lífræns úrgangs sé jákvætt ferli. Á vefsíðu stefnunnar Saman gegn sóun má finna ýmislegt áhugavert tengt þessum misskilningi, ma. kemur fram að „… meirihluti matarúrgangs á Íslandi er urðaður, sem krefst sífellt meira landsvæðis og leiðir til myndunar og losunar gróðurhúsalofttegunda. Þegar lífrænn úrgangur brotnar niður við loftfirrðar aðstæður, líkt og myndast við urðun, þá myndast metangas. Metan er 21 sinnum virkari gróðurhúsalofttegund en koltvíoxíð og því töluvert verri.“ Urðunarmálin ítrekuð Okkur langar flestum að bjarga heiminum og samkvæmt aðgerða- áætlun íslenskra stjórnvalda er varða loftslagsmál frá árinu 2020 höfðu yfirvöld einhverjar hugmyndir þess efnis, eða svokallað tíu ára plan. Áætlað var að stuðla að samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda til ársins 2030 og leggja þannig grunn að markmiði stjórnvalda um kolefnishlutleysi Íslands árið 2040. Urðunarskattur var meðal þess sem hátt var á baugi, en í ljós kom að sú hugmynd vakti litla hrifningu og í raun mikilli andstöðu, meðal annars hjá stjórnendum sveitarfélaganna og Sorpu. Laut ríkisstjórnin í lægra haldi þarna í umræðunni og ekkert varð úr urðunarskattinum, sem þó var áætlaður að yrði hvati til flokkunar úrgangs og myndi draga saman tæp 30 þúsund tonn CO2 ígilda árið 2030. Síðastliðið haust benti Landvernd hins vegar á að þingsályktunin er varðaði ofangreint ætti fullan rétt á sér og fengi fullan stuðning stjórnar Landverndar. Meðal annars kom fram í skýrslu frá þeim er send var Alþingi; „Jafnframt ítrekar stjórn sam- takanna að þörf er á öflugum aðgerðum þar sem stjórnvöld verða að fara á undan með skýrum lagaramma og áætlanagerð og samdrætti í losun frá starfsemi ríkisins. Dæmi um þetta eru: • lögfesting markmiða um samdrátt • hátt kolefnisgjald á alla geira, líka sjávarútveg og ferðaþjónustu • styrkjakerfi í landbúnaði sem ekki einblínir á dýraafurðir • bann við sölu á nýjum bensín- og díselbílum • landskipulagsstefna þar sem beit á illa förnu landi er heft, votlendi er endurheimt og nýjar framræsingar háðar leyfum • urðunarskattur og allsherjarbann við urðun lífræns úrgangs“ Fyrir hönd stjórnar Landverndar klykkir svo framkvæmdastjórinn, Auður Önnu Magnúsdóttir, út með orðunum: „Ekki er þörf á að brýna fyrir alþingisfólki hversu bráðnauðsynlegar aðgerðir í loftslagsmálum eru. Að lýsa yfir neyðarástandi í loftslagsmálum hvetur til aðgerða og því telur stjórn Landverndar brýnt að þingsályktunin verði samþykkt.“ Á meðan ráðamenn komast að niðurstöðu gætum við litið okkur nær og tekið skref í þá átt sem æskileg er. Til dæmis með því að kynna okkur verkefni sem er nú finna á landsvísu, svokallaða Frí-skápa. Þjóðfélagsstaða ætti ekki að skipta máli er kemur að sóun Eins og kom fram í Bændablaðinu í júnílok árið 2021 stóðu þau Kamila Walijewska og Marco Pizzolato fyrir opnun þess sem kallað er Freedge og þau kalla Frískáp á íslensku. Freedge er alþjóðleg hreyfing sem stendur fyrir uppsetningu svokallaðra samfélagskæla (frískápa) með það fyrir augum að draga úr matarsóun og byggja upp sterkara samfélag. Þau Kamila og Marco settu fyrsta frískápinn upp á Bergþórugötu 20, við hús sem kallast Andrými, og standa félagsmenn Andrýmis einmitt fyrir því sem þau kalla „Free Supermarket“. Um ræðir, eins og nafnið gefur til kynna, ókeypis matvörur sem eru á boðstólum alla föstudaga á milli kl. 17.30 og 19.00. Koma matvörurnar frá nær- liggjandi bakaríum, veitingastöðum og ruslagámum þar sem gjarnan eru hirt fersk matvæli. Flokkast slíkt undir það sem hefur verið þekkt sem „dumpster diving“ og fer væntanlega fyrir brjóstið á mörgum – en vekur sjálfsagt að sama skapi fólk til umhugsunar um hverju er fargað. Allt sem er á boðstólum er vel útlítandi og boðlegt á hvaða disk sem er. Nú, tæpum tveimur árum frá stofnun Frískápshreyfingarinnar hérlendis, hefur sprottið upp nokkur fjöldi skápa til viðbótar. Eins og staðan er núna má finna frískápa í Reykjavík á svæðis- númerum 101, í 105 við safnaðar- heimili Lauganeskirkju, við Nes- kirkjuna á svæði 107, að Suður- landsbraut 72, við Hjálpræðisherinn í 108, við Brúna Völvufelli í 111, á Kársnesinu, 200 Kópavogi svo og á Höfn í Hornafirði og á Akureyri. Í deiglunni er að setja upp frískápa í 108 sunnan Bústaðavegar, í hverfi 112 Grafarvogi, í Mosfellsbæ, miðsvæðis í Hafnarfirði, á Völlunum, í Reykjanesbæ og á Selfossi. En hverjir eru þeir sem sækja í þessa frískápa? Jú – þeir sem vilja deila sínu og/eða næla sér í góðgæti. Engu máli skiptir hver þjóðfélagsstaða frískápaunnenda er, einungis er þarna um að ræða fólk sem er tilbúið til að gera sitt lítið af hverju þegar kemur að matarsóun. Með réttsýni að leiðarljósi Þrátt fyrir þrálátan orðróm um gífurlega sóun í matvælaiðnaði, eru þau þó nokkur fyrirtækin sem gefa það sem umfram er eða þá þær vörur sem nálgast dagsetningu. Til að mynda fer þó nokkuð af góðum mat til Fjölskylduhjálparinnar, en formaðurinn, Ásgerður Jóna Flosadóttir, segir að í Iðufellið sæki fjölskyldur sér aðstoð reglulega, frá bæði Reykjavík, Kópavogi og Hafnarfirði, enda ekki um aðra aðstoð fyrir fólk úr þeim bæjarfélögum að ræða. Hópurinn sé misleitur þegar kemur að þjóðerni og menningu eða trúarbrögðum, en eigi það sameiginlegt að vera manneskjur í neyð. Ásgerður segir stolt frá því að daginn sem við tölum saman sé matarúthlutun, ferskt og gott nautahakk, vínber og epli helsta nýmetið, en einnig eru í boði frosnar pitsur, úrval grænmetis, brauðmeti, niðursoðnar vörur og Royal búðingur svona í tilefni bolludags. Starfsfólk setur saman í poka dagsins, vel útilátinn, og jákvæðni og dugur er allsráðandi en hjá þeim starfa um 40-50 sjálfboðaliðar og maturinn komi frá fyrirtækjum sem eigi umfram sitt. Áhugavert er að taka til þess að á meðan hinn almenni Íslendingur borðar nær allt sem hönd á festir, er til dæmis ekki hægt að segja það sama um þá sem aðhyllast íslam. Þar er blátt bann við því að borða svínakjöt í nokkru formi og því illmögulegt fyrir þá að taka við matarpoka með slíku góðgæti. Kartöfluæturnar Íslendingar eru að sama skapi vanafastar á sitt meðlæti á meðan fólk annarra þjóða kjósa í mörgum tilfellum frekar hrísgrjón með mat. LÍF&STARF HURÐIR Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is • Stuttur afhendingartími • Hágæða íslensk framleiðsla • Val um fjölda lita í RAL-litakerfinu • Vindstyrktar hurðir Bílskúrs- og iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir með gönguhurð Bílskúrshurðir Hurðir í trékarma Tvískiptar hurðir Smíðað eftir máli Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf Matarsóun: Bökum kleinur þegar mjólkin súrnar – Með kolefnissporin að leiðarljósi Yfir tíðina hefur of oft þótt skömm að því að nýta sér það sem af gengur hjá öðrum, hvort sem um ræðir matvörur, fatnað eða aðra nauðsyn. Það er kannski alveg spurning um að breyta hugsunarhættinum jafnvel þótt alls konar sálrænar flækjur geti truflað það ferli sem ætti að vera eðlilegra en ekki. Sigrún Pétursdóttir sigrunpeturs@bondi.is Neyð almennings og matarsóun haldast í hendur við loftslagsmál. Myndir / SP Við Iðufell 14 í Breiðholti er Fjölskylduhjálp Reykjavíkur starfrækt en þaðan fóru matargjafir til átján þúsund fjölskyldna á síðasta ári, eða metfjöldi. Fjölskylduhjálpin rekur einnig verslun og nytjamarkað þar sem fólk er hvatt til að líta inn, en fylla má plastpoka af fötum fyrir einungis 2.000 krónur sem þá styrkja starfsemina.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.