Bændablaðið - 23.02.2023, Blaðsíða 35
35Bændablaðið | Fimmtudagur 23. febrúar 2023
Áreiðanlegir og sterkbyggðir rafgeymar fyrir
flestar gerðir dráttarvéla. Veldu þaulreynda
vöru frá gæðaframleiðanda.
Ráðgjafar Olís veita allar nánari upplýsingar
í síma 515 1100 eða pontun@olis.is.
Betra start
með Exide rafgeymum
Gylfaflöt 32 • 112 Reykjavík • Sími 580 8200 • www.velfang.is • Frostagata 2a • 600 Akureyri • www.claas.is
VERKIN TALA
F
R
U
M
-
w
w
w
.f
ru
m
.is
Þetta snýst allt um þig…
Nýja CLAAS – ARION 400 vélin er alveg eins og
þú vilt hafa hana.
Hver dagur færir þér ný verkefni og það ert þú sem þarft að takast á við þau.
Þegar þú kaupir dráttarvél þá þarf hún að vera alveg eins og þú vilt hafa hana.
Þú vilt dráttarvél sem gerir einmitt það sem þú vilt að hún geri og að hún uppfylli allar
þínar kröfur og væntingar. Hvorki meira og örugglega ekki minna.
Þess vegna vilt þú ekki bara næstu dráttarvél sem er til á lager.
Þú færð nýju ARION 400 dráttarvélina nákvæmlega eins og þú vilt hafa hana
ARION 460 / 450 / 440 / 430 / 420 / 410 66–103 kW (90–140 hö). www.arion400.claas.com
Hefur þú brennandi áhuga á vélum og vilt vinna í lifandi og
skemm� legu umhverfi ? Vélfang leitar að öfl ugum og ábyrgum
viðgerðamanni í fullt starf á vélaverkstæðið okkar í Reykjavík.
Nánari upplýsingar veita Eyjólfur 8400 820
Umsóknir sendist á eyjolfur@velfang.is
Vélfang ehf. er sölu- og þjónustuaði l i á sviði v innu- og landbúnaðarvéla.
Hjá Vélfangi starfar hópur fólks sem hefur það að markmiði
að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustu.
Hæfniskröfur:
• Reynsla af vélaviðgerðum er kostur.
• Menntun við hæfi kostur.
• Rík þjónustulund, jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum.
• Frumkvæði og sjálf tæði í vinnubrögðum.
• Gott með að vinna í teymi.
Viðkomandi þarf að geta hafi ð störf sem allra fyrst.
Öllum umsóknum verður svarað og farið með þær sem trúnaðarmál.
Gylfaflöt 32 • 112 Reykjavík • Sími 580 8200 • velfang.is
Óseyri 8 • 603 Akureyri • velfang@velfang.is
-VERKIN TALA
Viðgerðarmaður á vélaverkstæði
Vélfangs í Reykjavík
Hentugt væri því að geta boðið
fólki af öðrum menningarheimi og
trú upp á matarpoka aðra daga en
Íslendingum sem hafa alist hér upp
frá barnsaldri.
Þá sérstaklega með trú múslima
í huga í stað þess að þeir líði
skort þegar áætluð matargjöf
dagsins inniheldur svínakjöt – en
einungs ein tegund poka er í boði
hverju sinni.
Aðspurð tekur Ásgerður undir
þessa hugmynd og segist áður
hafa íhugað slík dagaskipti. Sú
umræða var hins vegar blásin upp
í fjölmiðlum og hún sögð hafa illan
bifur á erlendu fólki. Það er þó fjarri
lagi, enda er hér kona með sterka
hugsjón og réttlætiskennd sem hefur
staðið vaktina með reisn. Slíkt er ekki
auðvelt enda staða þar sem þörf er á
mikilli yfirsýn og skipulagshæfni eins
og nærri má geta.
Leggjum til það sem af fellur
Ekki fyrir löngu komst á laggirnar
svokallaður matarbanki í Iðufellinu,
en þangað gefa fyrirtæki matvæli
sem eiga stutt í að verða útrunnin,
í stað þess að setja í urðun. Einnig
fara þangað vörur sem settar hafa
verið í frost fyrir síðasta söludag og
skulu notast strax og teknar eru úr
frysti. Allt eru þetta vel nýtanlegar
vörur enda dagsetningar ekki alltaf
það sem miða þarf við. Slíkur
hugsanaháttur á einmitt við þegar
tekið er til bæði matarsóunar og
þá loftslagsmála.
Mæðrastyrksnefnd stendur
einnig fyrir matargjöfum tvisvar
sinnum í mánuði og reka að sama
skapi öflugt og vel metið starf í
Hátúni 12 í Reykjavík.
Báðar stofnanir má styrkja
með fjárframlögum inn á banka-
reikninga. Fyrirtæki sem hafa ráð á
að gefa matvæli eða nauðsynjavörur
ættu að hafa samband – jafnvel þó
skammt sé í að matvælin séu að
renna út á tíma.
Verum skynsöm, bökum kleinur
Að lokum má ekki gleyma kyn-
slóðum fyrri ára sem ólust upp við
að fara vel með, nýta það sem hægt
var og frysta það sem komið var á
dag. Til ítrekunar má ekki gleyma
fleygum orðum móður minnar
fyrir nokkru: „Þegar mjólkin fór
að súrna voru bakaðar kleinur“.
(Hluti þeirra væntanlega frystur
í kjölfarið).
Og – það er engin skömm að því
að nýta það sem af gengur, engin
skömm að því að vera meðvitaður
um kolefnisspor iðnaðarins og engin
skömm að því að þiggja þegar þörf
er á. Við erum heldur ekkert að
finna upp hjólið þegar kemur að
nægjusemi þó hún sé í umræðunni
núna varðandi kolefnisspor og
loftslagsmál.
Loftslagsváin ætti ekki einu sinni
að vera hvatinn heldur einungis það
að við eigum að fara vel með.
Reynum að láta þetta síast inn.
Starfsemi Andrýmis er að finna á Bergþórugötu 20 í Reykjavík, en þar má
finna starfræktan bæði frískáp og það sem kallast „Free Supermarket“
- matvöru sem í boði er ókeypis alla föstudaga. Á föstudögum má að auki
koma með fatnað og velja sér á móti það sem aðrir hafa lagt til.