Bændablaðið - 23.02.2023, Blaðsíða 30

Bændablaðið - 23.02.2023, Blaðsíða 30
30 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. febrúar 2023 Elínborg Erla Ásgeirsdóttir keypti fyrir nokkrum árum eyðijörðina Breiðargerði í Skagafirði í þeim tilgangi að rækta þar lífrænt vottað grænmeti. Hún fór í gegnum aðlögunarferli að lífrænum framleiðsluháttum með stuðningi Matvælastofnunar og fékk lífræna vottun á land sitt og grænmeti árið 2021. Hún hefur unnið hægt og bítandi að vöruþróun og markaðsmálum – og innan skamms verður hægt að eiga milliliðalaus viðskipti við hana í gegnum vefverslun Breiðargerðis. Elínborg er einyrki í Breiðargerði, en alin upp á nágrannabænum Hól þar sem stunduð var sauðfjárrækt. Hún hafði takmarkaðan áhuga á þeim búskap en þeim mun meiri áhuga á allri ræktun og gróðri. Hún byrjaði á því að rækta gulrætur – í margvíslegum litbrigðum – sem hafa verið hennar aðaltegund, en áhugann á þeim fékk hún þegar hún vann við gulrótarupptöku hjá Akurseli í Öxarfirði. Síðan hafa fleiri grænmetistegundir bæst við og gjarnan sérstaklega litríkar, eins og blómkál, brokkólí, hvítkál, grænkál, toppkál og kóralkál (romanesco). Kláraði Garðyrkjuskólann á aðlögunartímanum Aðlögunartímabil fyrir lífræna útiræktun á einæru grænmeti eru tvö ár. Á þeim tíma náði Elínborg að klára garðyrkjunámið við Garðyrkjuskólann á Reykjum, sem hún stundaði í fjarnámi um fjögurra ára skeið. Hún segir að það tímabil hafi verið lærdómsríkt að mörgu leyti því það taki tíma að átta sig á hvernig best sé að gera hlutina. Til dæmis hafi hún þurft að finna út úr hvaða áburðarefni virkuðu best og hvernig best sé að haga sáðskiptum. Hún útskrifaðist frá Reykjum vorið 2020 af braut garðyrkju- framleiðslu með áherslu á lífræna ræktun matjurta. Úrvinnsla og vöruþróun Á síðustu misserum hefur Elínborg haslað sér völl sem úrvinnsluaðili úr lífrænt vottaða grænmeti sínu – og er með áhugaverða vöruþróun í gangi. Hún fékk styrk frá Uppbyggingarsjóði Norðurlands vestra til markaðssetningar sem hefur gert henni kleift að opna vef (breidargerdi.com) og á næstu vikum verður þar orðin virk vefverslun þar sem matgæðingar um allt land geta keypt sér matvörur úr vöruþróun Elínborgar. Á vefnum má einnig finna mataruppskriftir og hugmyndir að notkun á vörunum frá garðyrkjubýlinu. Elínborg hefur bætt við sig ræktunartegundum jafnt og þétt, nú síðast hindberjum. „Síðasta sumar fékk ég fyrstu uppskeru af hindberjum, en þau eru reyndar ekki komin með lífræna vottun. Það orsakast af því að ég keypti plöntur sem ekki voru lífrænt vottaðar og fjölærar plöntur þurfa þrjú ár í aðlögun áður en þær teljast lífrænar. Hindberin fóru í verslanir í Varmahlíð og á Sauðárkróki og fengu góðar móttökur, sem er auðvitað mjög skemmtilegt.“ Sjálfsafgreiðslukofi við veginn „Síðasta haust setti ég upp sjálfsafgreiðslu niðri við veg, í timburkofa þar sem fólk getur nálgast vörur frá mér og greitt fyrir annaðhvort með því að setja pening í bauk á staðnum eða með millifærslu. Þetta mæltist líka vel fyrir og var opið fram að fyrstu alvöru frostum, og verður síðan opnað aftur næsta vor,“ segir Elínborg. Hún stefnir á að hafa þessa þjónustu opna yfir aðaluppskerutímann, en lokað á veturna. Góð nýting allra afurða Að sögn Elín- borgar leggur hún mikið upp úr góðri nýtingu á öllum sínum afurðum. „Ég er þegar að framleiða nokkrar vörur þar sem uppistaðan er svokallað annars flokks grænmeti, grænmeti sem einhverra hluta vegna er ekki hægt að selja á fullu verði. Ég byrjaði að þróa vörur árið 2019 og er búin að prófa ýmislegt. Þær vörur sem ég er ánægðust með úr þeirri vöruþróun og hef framleitt mest af eru gulrótachutney, rófu- chutney og grænkálssalt. Sumt geri ég reglulega en í minna upplagi, til dæmis kryddað krækiberjahlaup og vallhumalshlaup, og svo fellur kannski til hráefni sem hefur ekki verið til áður og þá reyni ég að finna því farveg. Til dæmis gerði ég bæði sellerísalt og hindberjasalt í fyrsta skipti síðasta haust sem ég geri ráð fyrir að halda áfram að framleiða.“ Prófar sig áfram með tilbúna grænmetisrétti Núna í vetur hefur hún svo haldið áfram vöruþróun, þökk sé styrknum frá Uppbyggingarsjóði Norður- lands vestra. „Núna er ég að prófa mig áfram með öðruvísi vörur en áður, alls konar tilbúna grænmetisrétti og svo er ég líka að prófa að þurrka afurðir og skoða notkunarmöguleika þar. Í þessari vöruþróun er ég aðallega að vinna með alls konar kál, bæði útlitsgallað og afskurð, og síðan rófur og gulrætur. Þetta er allt á frekar miklu tilraunastigi enn LÍF&STARF Midea Varmadæla Arctic Series - Loft í vatn - Nýtt útlit - tekur lítið gólfpláss Innbyggður neystluvatnstankur Wifi tenging - hægt að stjórna og fylgjast með úr snjalltæki Hafðu samband við okkur og við finnum réttu dæluna fyrir þig Frábær verð Umhverfisvænn kælimiðill Allt að 80% orkusparnaður www.kaelitaekni.is Rófur í þurrkun og grænkálssalt í staukum. Breiðargerði í Skagafirði: Aukinn kraftur í úrvinnslu og markaðs- setningu á lífrænt vottuðu grænmeti Elínborg Erla Ásgeirsdóttir í Breiðargerði. Myndir / Aðsendar Sigurður Már Harðarson smh@bondi.is Sjálfsafgreiðslukofinn þar sem fólk getur nálgast vörur frá Breiðargerði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.