Bændablaðið - 23.02.2023, Blaðsíða 40

Bændablaðið - 23.02.2023, Blaðsíða 40
40 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. febrúar 2023 „Orkuvinnsla á landsbyggðinni er að skapa tekjur á þéttbýlisstöðum þar sem orkan er notuð og hálaunastörf á höfuðborgarsvæðinu en skilur lítið eftir í sveitarfélaginu þar sem hún verður til. Sé horft til þess að virkjanir skapa ekki mörg störf í héraði eftir að búið er að reisa þær og að um 94% orkumannvirkja eru undanþegin fasteignaskatti á Íslandi verður ekki mikið eftir fyrir sveitarfélagið. Að mínu mati og annarra verður að taka þessi mál til endurskoðunar þar sem staðan eins og hún er í dag hamlar uppbyggingu á landsbyggðinni en réttmæt skipting orkuauðlindarinnar mun umbylta búsetuskilyrðum og auka atvinnuuppbyggingu.“ Orkuvinnsla skilar litlu til sveitarfélaga Haraldur segir að ef teknar séu saman tekjur allra sveitarfélaga á Íslandi og þær bornar saman við veltu allra fyrirtækja á landinu, þá skili sér rúm 8% af veltu fyrirtækjanna sem tekjur til sveitarfélaganna. „Sveitarfélögin eru að heimila uppbyggingu á atvinnustarfsemi í sínu nærumhverfi til að skapa verðmæti sem skila að meðaltali rúmum 8% af veltu sinni til sveitarfélaganna. Þær tekjur notum við til að reka og byggja upp samfélagið sem við búum í. Ef ég skoða hvernig þetta lítur út í mínu sveitarfélagi, Skeiða- og Gnúpverjahreppi, þá er orkuframleiðslan sem á sér stað hér að skila að hámarki 0,4% af verðmætunum sem verða til hjá okkur niður í beint fjárhagslegt tap sem getur gerst sökum laga um jöfnunarsjóð. Til að sátt skapist um orkuvinnsluna þarf að skila sambærilegum verðmætum til nærsamfélagsins eins og öll önnur atvinnustarfsemi skilar, eða í kringum 8% af verðmætunum. Með þeim hætti verður til sanngjörn skipting auðlindarinnar frá þeim stað sem orkan verður til og þeirra sem njóta efnahagslega ávinningsins af því að nota hana.“ Lykillinn að orkuskiptum er á landsbyggðinni Ríkisstjórn Íslands hefur ákveðið að full orkuskipti eigi að hafa náðst árið 2040 og Haraldur bendir á að lykillinn að þeim orkuskiptum sé á landsbyggðinni. „Það er staðreynd að lagaleg umgjörð orkuvinnslu á Íslandi hefur komið í veg fyrir að dreifbýli njóti sambærilegs ávinnings af orku- vinnslunni og þéttbýlið. Við sem búum í dreifbýli erum áratugum á eftir í uppbyggingu innviða og þjónustu. Þess vegna þarf að breyta lögum um orkuvinnslu og tryggja að dreifbýlið njóti sambærilegs ávinnings og að allir greiði sama verð fyrir orkuna, hvort sem fólk býr í dreifbýli eða þéttbýli. Ég lít svo á að ef ekki næst sátt um breyttar leikreglur þá verði engin orkuskipti.“ Hallar á landsbyggðina Haraldur segir að á Íslandi ríki hagsæld. „Við stöndum framarlega í flestum alþjóðlegum mælikvörðum. Ég er fæddur og uppalinn í Reykjavík og bjó þar fyrstu 35 ár ævinnar og upplifði þá gríðarlegu uppbyggingu sem átti sér stað á höfuðborgarsvæðinu og öðrum öflugum þéttbýliskjörnum á landinu. Sterkir innviðir og gott aðgengi að fjölbreyttri þjónustu og afþreyingu eru lífsgæði sem við teljum sjálfsögð.“ Árið 2014 flutti Haraldur og fjölskylda hans úr borginni og keyptu litla jörð í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Markmiðið var að byggja upp ferða- þjónustu sem hefur gengið vel. Haraldur segir að eftir að hafa búið í Reykjavík stóran hluta ævinnar og flutt í lítið samfélag úti á landi hafi hann upplifað vel á eigin skinni hversu mikið hallar á landsbyggðina. „Innviðir, aðgengi að þjónustu og öðru sem er sjálfsagt í þéttbýli er oft fjarlægur draumur í litlum samfélögum úti á landi.“ Orkan verður til á landsbyggðinni Að sögn Haraldar er ótrúlegt til þess að hugsa að undirstaða verðmætasköpunar á Íslandi eigi sér stað úti á landi en að allur ávinningurinn verði til í þéttbýliskjörnum tugum og hundruðum kílómetra í burtu. „Orkan verður til á lands- byggðinni, ferðamenn koma til að skoða náttúruna úti á landi en þrátt fyrir það tekst okkur ekki að skapa sambærileg búsetuskilyrði á fjölmörgum stöðum þar sem verðmætin verða til og það er fyrst og fremst vegna þess að leikreglurnar eru ósanngjarnar. Ferðaþjónustan hefur skapað fjölda starfa um land allt og þar eru störfin og verðmætin sannarlega eftir í nærumhverfi starfseminnar. Þegar kemur að framleiðslu orku, þá hefur verið byggt upp lagalegt umhverfi sem gerir það að verkum að nánast ekkert verður eftir í samfélögunum þar sem orkan verður til og allur efnahagslegur ábati verður þar sem orkan er notuð. Orka er undirstaða lífs okkar og án orku gerist ekkert.“ 35% af rafmagni frá Skeiða- og Gnúpverjahreppi Frá upphafi raforkuframleiðslu Landsvirkjunar hefur um það bil 35% af öllu rafmagni sem fyrirtækið hefur framleitt komið frá Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Í dag er þetta hlutfall í kringum 27% af þeirri orku sem er framleidd daglega. „Ég stóð í þeirri trú að þessi gríðarlega framleiðsla á rafmagni í sveitarfélaginu skilaði miklum ábata til nærsamfélagsins. Þannig hefur umræðan ávallt verið. Hver þekkir ekki tröllasögur um gríðarlega há fasteignagjöld sem gerir sveitarfélögin sem hafa stöðvarhús vatnsaflsvirkjana í sínu nærsamfélagi moldrík. Það kom mér því verulega á óvart að sjá að raunveruleikinn er allt annar og í sumum tilfellum er beint fjárhagslegt tap sveitarfélaga af starfsemi Landsvirkjunar. Þrátt fyrir öll þau verðmæti sem verða til í Skeiða- og Gnúpverjahreppi þá er sveitarfélagið eitt af fáum á landinu sem er ekki með íþróttahús og hvað þá ýmsa aðra innviði til að bæta lífskjör íbúanna. Þegar kemur að samgöngum þá eru vegir innan sveitarfélagsins í töluvert lakara ástandi en í mörgum af nágrannasveitarfélögunum. Einnig er það þannig að helstu ferðamannastaðir eru með aðgengi um gamla slóða sem eru skilgreindir sem 4x4 vegir, enda hefur uppgangur ferðaþjónustu í sveitarfélaginu verið langt á eftir öðrum, að hluta til sökum lélegra samgangna.“ Lítill ávinningur af orkuvinnslunni Haraldur tók við sem sveitarstjóri 1. júní 2022 og segist þá hafa verið sannfærður um að hann væri að taka við sveitarfélagi sem hefði mikinn hag af starfsemi Landsvirkjunar og þeirri raforkuframleiðslu sem þar ætti sér stað. „Síðan hefur stór hluti vinnu minnar farið í verkefni tengt orkuframleiðslu og að greina áhrif hennar á nærsamfélagið. Miðað við þau gríðarlegu verðmæti sem verða til með allri orkuöflun í sveitarfélaginu mætti ætla að búsetuskilyrði hér ættu að vera á við það besta sem þekkist á landinu. Raunveruleikinn er allt annar þar sem lítill sem enginn ávinningur skilar sér til sveitarfélaganna vegna orkuframleiðslunnar. Stærstur hluti allra mannvirkja Í DEIGLUNNI Haraldur Þór Jónsson, oddviti Skeiða- og Gnúpverjahrepps. Breytt lagaumgjörð orkuframleiðslu forsenda orkuskipta: Lög um orkuvinnslu hamla atvinnu- uppbyggingu á landsbyggðinni Í nýlegri bókun sveitarstjórnar Skeiða- og Gnúpverjahrepps segir að orkuvinnsla í sveitarfélaginu þjóni ekki hagsmunum þess. Haraldur Þór Jónsson oddviti segir að sveitarfélögin fái lítið sem ekkert fyrir orkuframleiðslu og allur ávinningurinn verði þar sem orkan er notuð. Óvíst er hvort stjórn sveitarfélagsins samþyggi framkvæmdaleyfi fyrir Hvammsvirkjun. Vilmundur Hansen vilmundur@bondi.is Háifoss. Ríkisstjórn Íslands hefur ákveðið að full orkuskipti eigi að hafa náðst árið 2040. Mynd / Einar Bjarnason Hvammsvirkjun. Öll hestu virkjunarmannvirki eru undanþegin fasteignaskatti. Myndir / Aðsendar Hvammsvirkjun – helstu mannvirki
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.