Bændablaðið - 23.02.2023, Síða 40
40 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. febrúar 2023
„Orkuvinnsla á landsbyggðinni er að
skapa tekjur á þéttbýlisstöðum þar
sem orkan er notuð og hálaunastörf
á höfuðborgarsvæðinu en skilur lítið
eftir í sveitarfélaginu þar sem hún
verður til. Sé horft til þess að virkjanir
skapa ekki mörg störf í héraði eftir að
búið er að reisa þær og að um 94%
orkumannvirkja eru undanþegin
fasteignaskatti á Íslandi verður ekki
mikið eftir fyrir sveitarfélagið.
Að mínu mati og annarra verður að
taka þessi mál til endurskoðunar þar
sem staðan eins og hún er í dag hamlar
uppbyggingu á landsbyggðinni en
réttmæt skipting orkuauðlindarinnar
mun umbylta búsetuskilyrðum og auka
atvinnuuppbyggingu.“
Orkuvinnsla skilar litlu
til sveitarfélaga
Haraldur segir að ef teknar séu saman
tekjur allra sveitarfélaga á Íslandi
og þær bornar saman við veltu allra
fyrirtækja á landinu, þá skili sér rúm
8% af veltu fyrirtækjanna sem tekjur
til sveitarfélaganna.
„Sveitarfélögin eru að heimila
uppbyggingu á atvinnustarfsemi í sínu
nærumhverfi til að skapa verðmæti
sem skila að meðaltali rúmum 8% af
veltu sinni til sveitarfélaganna. Þær
tekjur notum við til að reka og byggja
upp samfélagið sem við búum í.
Ef ég skoða hvernig þetta
lítur út í mínu sveitarfélagi,
Skeiða- og Gnúpverjahreppi, þá
er orkuframleiðslan sem á sér stað
hér að skila að hámarki 0,4% af
verðmætunum sem verða til hjá okkur
niður í beint fjárhagslegt tap sem getur
gerst sökum laga um jöfnunarsjóð.
Til að sátt skapist um orkuvinnsluna
þarf að skila sambærilegum
verðmætum til nærsamfélagsins eins
og öll önnur atvinnustarfsemi skilar,
eða í kringum 8% af verðmætunum.
Með þeim hætti verður til sanngjörn
skipting auðlindarinnar frá þeim stað
sem orkan verður til og þeirra sem
njóta efnahagslega ávinningsins af því
að nota hana.“
Lykillinn að orkuskiptum er á
landsbyggðinni
Ríkisstjórn Íslands hefur ákveðið
að full orkuskipti eigi að hafa náðst
árið 2040 og Haraldur bendir á að
lykillinn að þeim orkuskiptum sé á
landsbyggðinni.
„Það er staðreynd að lagaleg
umgjörð orkuvinnslu á Íslandi hefur
komið í veg fyrir að dreifbýli njóti
sambærilegs ávinnings af orku-
vinnslunni og þéttbýlið. Við sem
búum í dreifbýli erum áratugum á eftir
í uppbyggingu innviða og þjónustu.
Þess vegna þarf að breyta lögum um
orkuvinnslu og tryggja að dreifbýlið
njóti sambærilegs ávinnings og að allir
greiði sama verð fyrir orkuna, hvort
sem fólk býr í dreifbýli eða þéttbýli.
Ég lít svo á að ef ekki næst sátt um
breyttar leikreglur þá verði engin
orkuskipti.“
Hallar á landsbyggðina
Haraldur segir að á Íslandi ríki
hagsæld. „Við stöndum framarlega í
flestum alþjóðlegum mælikvörðum.
Ég er fæddur og uppalinn í Reykjavík
og bjó þar fyrstu 35 ár ævinnar og
upplifði þá gríðarlegu uppbyggingu
sem átti sér stað á höfuðborgarsvæðinu
og öðrum öflugum þéttbýliskjörnum
á landinu. Sterkir innviðir og gott
aðgengi að fjölbreyttri þjónustu og
afþreyingu eru lífsgæði sem við teljum
sjálfsögð.“
Árið 2014 flutti Haraldur og
fjölskylda hans úr borginni og keyptu
litla jörð í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.
Markmiðið var að byggja upp ferða-
þjónustu sem hefur gengið vel.
Haraldur segir að eftir að hafa búið
í Reykjavík stóran hluta ævinnar og
flutt í lítið samfélag úti á landi hafi
hann upplifað vel á eigin skinni hversu
mikið hallar á landsbyggðina.
„Innviðir, aðgengi að þjónustu og
öðru sem er sjálfsagt í þéttbýli er oft
fjarlægur draumur í litlum samfélögum
úti á landi.“
Orkan verður til á landsbyggðinni
Að sögn Haraldar er ótrúlegt
til þess að hugsa að undirstaða
verðmætasköpunar á Íslandi eigi sér
stað úti á landi en að allur ávinningurinn
verði til í þéttbýliskjörnum tugum og
hundruðum kílómetra í burtu.
„Orkan verður til á lands-
byggðinni, ferðamenn koma til
að skoða náttúruna úti á landi en
þrátt fyrir það tekst okkur ekki að
skapa sambærileg búsetuskilyrði
á fjölmörgum stöðum þar sem
verðmætin verða til og það er fyrst og
fremst vegna þess að leikreglurnar eru
ósanngjarnar. Ferðaþjónustan hefur
skapað fjölda starfa um land allt og þar
eru störfin og verðmætin sannarlega
eftir í nærumhverfi starfseminnar.
Þegar kemur að framleiðslu
orku, þá hefur verið byggt upp
lagalegt umhverfi sem gerir það
að verkum að nánast ekkert verður
eftir í samfélögunum þar sem orkan
verður til og allur efnahagslegur ábati
verður þar sem orkan er notuð. Orka
er undirstaða lífs okkar og án orku
gerist ekkert.“
35% af rafmagni frá Skeiða-
og Gnúpverjahreppi
Frá upphafi raforkuframleiðslu
Landsvirkjunar hefur um það bil
35% af öllu rafmagni sem fyrirtækið
hefur framleitt komið frá Skeiða-
og Gnúpverjahreppi. Í dag er þetta
hlutfall í kringum 27% af þeirri orku
sem er framleidd daglega.
„Ég stóð í þeirri trú að þessi
gríðarlega framleiðsla á rafmagni í
sveitarfélaginu skilaði miklum ábata
til nærsamfélagsins. Þannig hefur
umræðan ávallt verið. Hver þekkir
ekki tröllasögur um gríðarlega há
fasteignagjöld sem gerir sveitarfélögin
sem hafa stöðvarhús vatnsaflsvirkjana
í sínu nærsamfélagi moldrík.
Það kom mér því verulega á
óvart að sjá að raunveruleikinn er
allt annar og í sumum tilfellum er
beint fjárhagslegt tap sveitarfélaga af
starfsemi Landsvirkjunar.
Þrátt fyrir öll þau verðmæti sem
verða til í Skeiða- og Gnúpverjahreppi
þá er sveitarfélagið eitt af fáum á
landinu sem er ekki með íþróttahús
og hvað þá ýmsa aðra innviði til að
bæta lífskjör íbúanna.
Þegar kemur að samgöngum þá
eru vegir innan sveitarfélagsins í
töluvert lakara ástandi en í mörgum af
nágrannasveitarfélögunum. Einnig er
það þannig að helstu ferðamannastaðir
eru með aðgengi um gamla slóða
sem eru skilgreindir sem 4x4 vegir,
enda hefur uppgangur ferðaþjónustu
í sveitarfélaginu verið langt á eftir
öðrum, að hluta til sökum lélegra
samgangna.“
Lítill ávinningur af orkuvinnslunni
Haraldur tók við sem sveitarstjóri
1. júní 2022 og segist þá hafa verið
sannfærður um að hann væri að taka
við sveitarfélagi sem hefði mikinn
hag af starfsemi Landsvirkjunar og
þeirri raforkuframleiðslu sem þar
ætti sér stað.
„Síðan hefur stór hluti vinnu
minnar farið í verkefni tengt
orkuframleiðslu og að greina áhrif
hennar á nærsamfélagið. Miðað við
þau gríðarlegu verðmæti sem verða til
með allri orkuöflun í sveitarfélaginu
mætti ætla að búsetuskilyrði hér ættu
að vera á við það besta sem þekkist á
landinu. Raunveruleikinn er allt annar
þar sem lítill sem enginn ávinningur
skilar sér til sveitarfélaganna vegna
orkuframleiðslunnar.
Stærstur hluti allra mannvirkja
Í DEIGLUNNI
Haraldur Þór Jónsson, oddviti
Skeiða- og Gnúpverjahrepps.
Breytt lagaumgjörð orkuframleiðslu forsenda orkuskipta:
Lög um orkuvinnslu hamla atvinnu-
uppbyggingu á landsbyggðinni
Í nýlegri bókun sveitarstjórnar Skeiða- og Gnúpverjahrepps segir að
orkuvinnsla í sveitarfélaginu þjóni ekki hagsmunum þess. Haraldur
Þór Jónsson oddviti segir að sveitarfélögin fái lítið sem ekkert fyrir
orkuframleiðslu og allur ávinningurinn verði þar sem orkan er notuð.
Óvíst er hvort stjórn sveitarfélagsins samþyggi framkvæmdaleyfi
fyrir Hvammsvirkjun.
Vilmundur Hansen
vilmundur@bondi.is
Háifoss. Ríkisstjórn Íslands hefur ákveðið að full orkuskipti eigi að hafa náðst árið 2040. Mynd / Einar Bjarnason
Hvammsvirkjun. Öll hestu virkjunarmannvirki eru undanþegin fasteignaskatti. Myndir / Aðsendar
Hvammsvirkjun – helstu mannvirki