Bændablaðið - 23.02.2023, Qupperneq 62
62 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. febrúar 2023
Að þessu sinni var tekinn til
kostanna rafmagnsbíllinn Toyota
bZ4X VX, sem er fjórhjóladrifinn
jepplingur með prýðilega veghæð.
Toyota hefur loksins hoppað á vagn
rafknúinna bíla og er útkoman kostum
gædd, enda afrakstur samstarfs Toyota
og Subaru.
Síðarnefnda bílategundin
framleiðir eineggja tvíbura bZ4X,
sem ber nafnið Subaru Solterra. Þessar
bifreiðar veita rafmagnsbílum eins og
Hyundai Ioniq 5 og Skoda Enyaq iV
harða samkeppni.
Frá öllum hliðum er bíllinn
hinn fríðasti. Útlitinu má lýsa sem
samruna milli Toyota Rav4 og Subaru
Outback með smá skammti af dirfsku
í hönnunareinkennum hér og þar. Þar
má nefna plastklæðninguna á fremri
hjólaskálunum sem teygir sig hálfa leið
fram fyrir framljósin og vindskeiðið
sem af einhverjum ástæðum er klofið
í miðjunni. Það flippaðasta við bíl
þennan er þó nafnið – bZ4X. BZ á
að standa fyrir „beyond zero“ og 4X
stendur fyrir fjórhjóladrif. Þrátt fyrir að
útlitið ögri er heildarniðurstaðan góð.
Að innan er umhverfið nútíma legt,
en á einhvern hátt mjög kunnuglegt ef
maður hefur reynslu af öðrum Toyota
eða Subaru bílum. Mælaborðið er með
tauáklæði sem gefur innréttingunni
fágaðan blæ. Hraðamælirinn er sérlega
nýstárlegur þar sem hann er staðsettur
í kverkinni þar sem framrúðan og
innréttingin mætast og er horft yfir
stýrið til að sjá hraðann – ekki í
gegnum það. Þar sem hraðamælirinn er
ofarlega og fjarlægur, er lítil áreynsla
að líta á hann þar sem augun þurfa ekki
að skipta eins mikið um fókus.
Brotthvarf hanskahólfsins
Í innréttingunni er ekkert hefðbundið
hanskahólf, en samkvæmt umboðinu
var því fórnað til að gefa farþeganum
aukið rými. Undir armhvílunni er
lokuð hirsla sem vegur ekki upp á
móti brotthvarfi hanskahólfsins.
Undir miðjustokknum er einnig opin
hilla þar sem hægt er að safna drasli.
Lágt og stutt húdd, þunnir
gluggapóstar og hliðarspeglar sem
eru ögn aftar en á mörgum bílum
halda blindum punktum í lágmarki.
Þetta er kærkominn eiginleiki þegar
ekið er að hringtorgum, gatnamótum
og gangbrautum. Glerþak gefur góða
birtu inn í bílinn. Sætin eiga skilið
sérstakt hrós, en vandað form og
mjúkur svampur gerir þau þægilegari
en í mörgum lúxusbílum. Hávaxnir
komast vel fyrir í öll sætin, þó ekki
megi tæpara standa.
Eins og Subaru í akstri
Samstarfið við Subaru hefur skilað
sér í bifreið með sérlega góðum
aksturseiginleikum á vegum þar sem
yfirborðið er ekki fullkomið, enda
er það framleiðandi sem er þekktur
fyrir fjórhjóladrifna bíla með lágan
þyngdarpunkt. Á malarvegum eða
hlykkjóttum þjóðvegum með snjóföl
grípur bíllinn ótrúlega. Góð veghæð
minnkar áhyggjur af því að aka yfir
litla skafla eða grjót á veginum.
Sportlegir aksturseiginleikar hafa
ekki skilað sér í höstum bíl, því
Toyota bZ4X fer býsna vel með
ökumann og farþega.
Þessi bíll er með tvo mótora –
einn fyrir hvorn öxul. Saman gefa
þeir 218 hestöfl sem hljómar ekki
mikið á bíl sem er rúm tvö tonn
að þyngd. BZ4X er hins vegar
ótrúlega kvikur í akstri og skýst
upp í hámarkshraða á augnabliki.
Stundum heyrast viðvörunarhljóð
í akstri, eins og gengur og gerist í
nýjum bílum.
Ókosturinn í þessum bíl er
þó sá að ökumaðurinn hefur oft
ekki minnstu hugmynd af hverju
ökutækið er að gefa hljóðmerki – sem
er einungis til að valda grunlausum
bílstjóra ama. Þegar sett er í bakkgír
heyrist stanslaust píp inni í bílnum
sem er algjörlega óþarft – hver þarf
stöðuga áminningu á að viðkomandi
sé að bakka?
Afbragðs akstursaðstoð
Þessi bíll er búinn akstursaðstoð,
eins og fjarlægðatengdum hraðastilli
og akreinastýringu, sem minnka
álagið á ökumanninn. Mjög fljótlegt
er að kveikja á þessum kerfum og
heldur bíllinn sig örugglega í miðju
akreinarinnar ef vegmerkingar eru
í lagi. Ólíkt mörgum bifreiðum, er
bZ4X umburðarlyndur gagnvart því
að ökumaðurinn haldi varla í stýrið á
meðan sjálfstýringin er í gangi.
Fremst á bílnum er myndavél
sem varpar skýrri mynd á
margmiðlunarskjáinn í miðju
mælaborðsins. Um leið og ekið er
hægar en tíu kílómetra hraða kviknar
sjálfkrafa á myndavélinni sem getur
hjálpað óöruggum ökumönnum að
keyra í miklum þrengslum. Ókostur
er þó að drulla festist mjög hratt á
myndavélinni og er eina leiðin til að
þrífa hana að stíga út og strjúka af
með puttanum. Þarna hefði mátt vera
stútur fyrir rúðupiss.
Drægni heldur lítil
Toyota gefur upp að fjórhjóladrifna
útgáfan af bZ4X sé með allt að 460
kílómetra drægni við bestu aðstæður.
Blaðamaður tók við bílnum
með nánast fullri rafhlöðu og eftir
hundrað kílómetra (glannalegan)
akstur við óhagstæð veðurskilyrði,
var rafhlaðan hálfnuð.
Þó að við almenna notkun
megi reikna með að drægnin
verði umtalsvert betri benda
prufanir erlendra blaðamanna til
að þetta atriði sé einn veikasti
punktur bílsins.
Tölur
Helstu mál eru: Lengd 4.690 mm;
breidd 1.860 mm; hæð 1.600 mm.
Eigin þyngd er 2.105 kg, en heildar
þyngd er 2.275 kg. Stærð rafhlöðu er
71,4 kWst. Verðið á Toyota bZ4X í
VX útfærslu og með fjórhjóladrifi er
9.350.000 krónum m. vsk. Ódýrasta
útgáfan, sem einungis er með drifi
að framan og minna af staðalbúnaði,
fæst á 7.350.000 krónur m. vsk.
Í stuttu máli
Toyota bZ4X er vel útbúinn
og vandaður bíll með afbragðs
aksturseiginleika.
Fjórhjóladrif og mikil veghæð
ættu að gera þetta að vænlegri bifreið
til notkunar á vondum vegum og
í ófærð.
Sakir stuttrar akstursdrægni er þó
ekki hægt að mæla með bifreiðinni ef
fyrirhugað er að aka mikið í dreifbýli.
VÉLABÁSINN
Ástvaldur Lárusson
astvaldur@bondi.is
– Umhverfisvænn bíll sem þolir ófærð
Toyota bZ4X er fyrsta útspil Toyota á rafbílamarkaðnum, ef frá eru taldir sendibílar unnir í samstarfi við Peugeot og Citroën. Aksturseiginleikar eru með
þeim bestu á rafknúnum fólksbílum. Útlitið er áhugavert og vel heppnað. Myndir / ÁL
Afstaða hraðamælisins er þannig að ökumaður horfir yfir stýrishjólið. Fáir blindir
punktar, þökk sé þunnum gluggapóstum og vel staðsettum hliðarspeglum.
Toyota bZ4X og Subaru Solterra eru eineggja tvíburar sem eru afrakstur
samstarfs milli þessa tveggja japönsku bílaframleiðenda.
Aftursætin rétt rúma farþega af stærstu gerð. Glerþakið hleypir inn mikilli
birtu.
Stór afturhlerinn gefur aðgang að 452 lítra stóru skotti. Öflugur hleðslukapall
fylgir.