Árbók frjálsíþróttamanna - 01.07.1943, Page 7

Árbók frjálsíþróttamanna - 01.07.1943, Page 7
Formáli, Það er siður erlendis að gefa árlega úl árbækur íþróttamanna í hinum ýmsu íþróttagreinum. Eru þœr mjög vinsœlar meðal í- þróttamanna og allra íþróttaunnenda, þar sem þeir fá þar á einum stað glöggt yfirlit yfir íþróttaviðburði hvers árs. Fyrir nokkrum árum var hér gerð tilraun til slíkrar útgáfu, þar sem var Arbók knattspyrnumanna, er K.R.R. gaf út, en því miður var þeirri útgáfu ekki haldið áfram. I frjálsum íþróttum hefur slík árbók ekki komið út, né annað rit, er flytti í einu lagi áreiðanlegar heimildir um afrek unnin á því sviði ásamt öðrum fróðleik, er máli skipti. Er þó eigi þvi til að dreifa, að hér sé eigi úr nœgu efni að velja, heldur mun það miklu fremur vera full umfangsmikið og erfitt viðureignar. Nú er hér hleypt af stokkunum Árbók frjálsíþróttamanna og þar með gerð önnur tilraun til að gefa út árbók fyrir íslenzka iþróttamenn. 1 rauninni hefur útgáfa þessi verið á döfinni nokk- ur undanfarin ár, þótt eigi yrði hafist handa fyrr en nú. Hefur undirbúningurinn kostað mikla vinnu og fyrirhöfn, sem að vísu hefði mátt komast hjá að miklu leyti, ef Í.S.Í. hefði átt fullkom- ið skýrslusafn yfir öll íþróttamót og annað, er að frjálsum íþrólt- um lýtur. Þegar skýrsur í. S. í. þrutu, varð að leita í gömliirn blöðum, innlendum og erlendum, tímaritum, bókum, leikskrám, skýrslum einstakra manna, úlvarpsfréttum o. s. frv. Að lokum viljum við undirritaðir, sem höfum haft ritstjórn og útgáfu þessarar bókar á hendi, nota tœkifœrið og þakka þeim mörgu einstaklingum, blöðum, félögum og fyrirtækjum, sem hafa rétt okkur hjálparliönd með því að auglýsa í bókinni. — Munu íþróttamenn vissulega festa sér nöfn þeirra allra í minni. Þá lief- ur Í.S.Í. og átt hér góðan hlut að máli með því að styrkja útgáfuna. Verði þessari árbók vel tekið mun útgáfunni haldið áfram nœsta ár og svo koll af kolli. Með íþróttakveðju JÓHANN BERNHARD BRYNJ. INGÓLFSSON

x

Árbók frjálsíþróttamanna

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók frjálsíþróttamanna
https://timarit.is/publication/1829

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.