Árbók frjálsíþróttamanna - 01.07.1943, Page 18
leikmótið var haldið 1911. Má það teljast stórfurðulegt, að 100
metra spretturinn skyldi vera hlaupinn undir 12 sek., og sýnir,
að afreksgeta manna í sumum greinum hefir ekki verið öllu lak-
ari en nú. Oefað stafaði spretthraði Kristins frá knattspyrnunni.
Hann var bæði I. R.-ingur og K. R.-ingur. Það er auðvitað eink-
anlega í „nýju“ greinunum, sem munurinn er mestur, enda var
það svo um suma keppendur, að þeir höfðu varla séð áhöldin,
hvað þá fengið nokkra æfingu í notkun þeirra. Búningur kepp-
enda var óhentugur og ófullkominn; énginn hafði þá gaddaskó
og buxur náðu almennt niður fyrir hné. Undirbúningur undir
kappleiki var lítill eða enginn og menn æfðu fram á síðustu stundu
og undu sér ekki hæfilegrar hvíldar. Og engum datt þá í hug
að vera hlýtt búinn eða fá sér hitasprett á undan kappleik; það
þótti heimska og eyðsla á kröftum sem þyrftu að notast til kapp-
leiksins. Engin stökkgryfja var á gamla íþróttavellinum til æf-
inga fyrr en 2—3 síðustu árin; þegar leikmót voru háð, var gryfja
gerð á miðjum veHinum, sem var fyllt upp strax að loknu mót-
inu. Sést af þessu, að ýmsar aðstæður gerðu það að verkum,
að afrekin hlutu að verða mjög léleg,
Eg hefi nú í framanrituðu lýst að nokkru upphafi æfinga og
kappleika íslenzkra frjálsíþróttamanna hér á landi. Má vera, að
mér séu einhver tildrög ekki nægilega kunn, en ég hefi skýrt frá
þeim eftir beztu vitund, og bið afsökunar, ef rangt er með farið.
Hefi ég notað til stuðnings ísl. hlöð frá þessum tíma.
Það sem virðist hvað mest hafa stuðlað að því að sérstök
frjálsíþróttamót eru hafin, er för Islendinga á Olympíuleikana
1908; strax á næsta ári er hafizt handa, bæði norðanlands og
sunnan. Sýnir það, að Olymíufararnir hafa orðið fyrir sterkum
áhrifum á þessu sviði íþróttanna. Er það og eigi að furða, þar
sem aðalþáttur Olympiuleikanna var og hefur alltaf verið frjálsu
íþróttirnar. Fyrir þann vettvang sem æðsta markmið eiga íslenzk-
ir frjálsiþróttamenn að æfa og framtíðarstefnumál þeirra á að
vera það, að láta sig aldrei vanta á þann alþjóða-vettvang, —
því Olympiu-andinn lifir, þrátt fyrir núverandi ófrið og Olympiu-
leikarnir verða áreiðanlega teknir upp aftur að honum loknum.