Árbók frjálsíþróttamanna - 01.07.1943, Side 20
Lm íslenzku metin.
Eins og sjá má af metaskránni, eru alls til 37 staðfest Is-
landsmet í frjálsum íþróttum. Flest eru þau sett hér í Reykjavík,
Þó eru 2 sett í Yestmannaeyjum, en 6 erlendis (í Svíþjóð, Dan-
mörku eða Berlín). Eru þau auðkennd með stjörnu i skránni.
Bezti árangur hér á íslandi í þessum sex greinum er þessi:
800 m.: 2:02,2 mín. Sigurgeir Ársælsson, Á. 1939
1000 —: 2:40,1 — --- 1941
1500 —: 4:11,0 — --- 1939
3000 —: 9:17,4 — --- 1939
5000 —: 16:06,0 — Guðjón Júlíusson, Í.K. 1922
Þrístökk: 13,98 — Sigurður Sigurðsson, K.V. 1937
Met Sigurðar í langstökki mun vera nokkrum cm. of gott, þar sent
það var sett í 5 stiga meðvindi. Ástæðan fyrir því, að það var
samt staðfest mun annaðhvort vera sú, að Sig. hafi verið álit-
inn geta stokkið svona langt í logni, eða þá, að gömlu leikregl-
urnar frá 1928 gátu ekki um hámarksvindhraða, enda þótt al-
þjóðareglur gerðu það. Bezta stökk Sigurðar í stilltu veðri er
6.55 m. eða nákvæmlega jafn langt hinu gamla meti Sveinbjarn-
ar Ingimundarsonar, Í.R. Á því Oliver Steinn F.H. bezta
langstökksárangur í logni — eða 6.60 m. frá því í fyrra. Met
Sveins Ingvarssonar í 100 m. hlaupi er sett í mjög hagstæðu
veðri, þ. e. a. s. miklum hita og 3 stiga hliðarmeðvindi, sem er
það mesta sem meðvindur má vera.
Met Hauks í 10 km. göngu er sett á þjóðvegi, en bezti tími
hans á hringbraut er 53:59,2 mín.
Einstök afrek Sig. Finnssonar í þrautunum eru þessi:
Fimmtarþraut: langst.: 6,17 m. — spjótk.: 46,79 m. — 200 m.:
24,1 sek. — kringlukast: 35,01 m. og 1500 m.: 4:46,2 mín.
Tugþraut: 100 m.: 11,8 sek. — langst.: 6,21 m. — kúla: 13,11 m.
— hást. 1,60 — 400 m.: 53,7 sek. — 110 m. grhl.: 19,0 sek. —
Kringluk.: 35,51 m. — Stöng: 2,60 m. — Spjótkast: 40,31 m. —
1500 m.: 4:57,0 míri. —
16