Árbók frjálsíþróttamanna - 01.07.1943, Qupperneq 38
SIGURÐUR S. OUAFSSON:
yr
Litið um öxl.
írangurinn í Rvík 1942.
Spretthlaupin:
Bezti spretthlaupari ársins var Jóhann Bernhard, K.R. Hann
náði bezta tímanum á 100 og 200 m. (11,4 og 23,6 sek.), þeim
næstbezta á 400 m. (53,4 sek.) og setti auk þess ísl. met í 300 ni.
hlaupi 37,8 sek., en á þeirri vegalengd var ekki til staðfest met
áður. I 200 m. hlaupi var Jóhann sá langbezti. Næsti maður, Bryn-
jólfur Ingólfsson, K.R. var þó í lok sumarsins skamnit undan
með 23,9 sek. Oliver Steinn, F. H. og Sverrir Emilsson, K. R.
voru einnig á næstu grösum með 24,1 og 24,3 og Baldur Möller
Á. með 24,6. Fleiri komust ekki undir 25 sek. — I 100 m. hlaupi
beið Jóhann að vísu tvisvar ósigur fyrir Oliver Steini, þrátt fyr-
ir bezta tíma ársins, en Oliver á þann næsthezta 11,6 sek. Þeir
Sverrir og Brynjólfur fóru einnig undir 12 sek., með 11,8 og
11,9, en fleiri ekki og er það heldur lélegt. Þessir fjórir menn
hafa skipt með sér öllum verðlaunum sumarsins í 100 m. og 200 m.
í 400 m. hefir nýr maður, Brynjólfur Ingólfsson leyst af hólmi
Sigurgeir Arscelsson úr Ármanni sem hefur verið beztur í þessu
hlaupi undanfarið. Brynjólfur hljóp s. 1. sumar á 53,2 sek., en
Jóhann Bernhard, sem einnig náði hetri tíma en Sigurgeir, var
rétt á eftir með 53,4 svo kom Sigurgeir með 53,5, og er það tími
lians frá Allsherjarmótinu, en þá sigraði hann. Á Meistara-
mótinu og Septembermótinu beið hann aftur á móti greinileg-
an ósigur fyrir Brynjólfi. Lítur helst út fyrir að Brynjólfur muni
verða einvatdur á þessari vegalengd í sumar.
34