Árbók frjálsíþróttamanna - 01.07.1943, Qupperneq 41
fyrir eingöngu. Bezta tíma ársins 18,4 sek. náði Skúli GuSmunds•
son, K.R., á Innanfélagsmóti, en meistarinn Jóhann Jóhannesson, Á.
hefir 18,6 sek. Sá fyrri er ungur maður og hefir grein þessa í
hjáverkum, en hinn lifir á gömlum merg. Báðir liafa æft grinda-
hlaup of lítið.
Sverrir Emilsson, sem hefir 3. bezta timann, 20,2 sek., gæti án
efa orðið betri, en hann hefir þegar nóg á sinni könnu.
BoShlaupin:
K. R. ingar voru einvaldir í boðhlaupuniun. Settu þeir met
í tveimur þeirra, 4X400 m. á Meistaramótinu, 3:37,8 mín. (Jóhann,
Sverrir, Sigurður, Brynjólfur); hljóp þá sveit Ármanns á 3:41,2,
sem einnig var undir ganila metinu. Síðar um sumarið setti K.R.
sveit (Jóhann, Sverrir, Svavar, Brynjólfur) met í 4X200 m., 1:37,9
mín. Trauðla munu þó þessi met verða mjög langlíf, og er senni-
legt að þau falli bæði í sumar.
I 4X100 m. hafa K.R.-ingar (Jóhann, Sverrir, Sigurður, Brynj-
ólfur) verið langbeztir með 46,4 sek. og þó allfjarri metinu frá
1937, 45,0 sek. Næstir voru Ármenningar með 47,5 og F. H. með
47,7 sek. I 1000 m. boðhlaupi var K.R.-sveitin (Sverrir, Huseby,
Brynjólfur, Jóhann) aðeins betri en Ármenningar, með 2:09,9 gegn
2:10,0, en metið langt í burtu. Loks settu Ármenningar, (Árni,
Haraldur, Hörður, Sigurgeir) met í 4X1500 m. á 18:29,8 mín. og
samsvarar sá tími engan veginn getu þeirra. Er þetta boðhlaup
nýtt hér á landi.
Stökkin:
Bezti stökkvari ársins var Oliver Steinn, F.H. Náði hann lang-
bezta árangrinum í langstökki, 6,60 m. og þrístökki, 13,36 m.
en þeim næstbezta í hástökki, 1,72 m. Næstir í langstökkinu voru
Sverrir Emilsson með 6,25 m., Jóhann Bernhard, 6,16, Skúli Guð-
mundsson 6,15 og Rögnvaldur Gunnlaugsson, K.R. 6,06 m.
Jóhann er nú liættur að æfa þessa grein, vegna meiðsla á fæti,
en hinir geta komizt iniklu lengra, en þó verða þeir Skúli og