Árbók frjálsíþróttamanna - 01.07.1943, Qupperneq 64
Ári<V 1921 vann Kaldal Marselisborgarhlaupið í 3. skipti og
þarmeð fagran liikar til eignar. Einnig var<V hann sigurvegari í
tveimUr öðruin víðavangshlaupum.
lie/.ti tími hans í 5 kni. var 15:35,6 mín., en þá vann hann
4 sinnum, m. a. á Spörtumótinu í 2. sinn.
1 ágústmánuði fór hami snöggvast heini til Islands. Keppti
hann þá hér á Haustmóti í. R. og vakti almenna eftirtekt fyrir
fráhært og leikandi létt hlaupalag. Hann keppti í 5 km 27. ág.
og vann þá auðvitað — á 16:20,0 mín. Daginn eftir hljóp hann
10 km. og vann þá á 34:13,8 mín. Tíminn er mjög góður því Kal-
dal var illa fyrirkallaður. Hvorttevggja afrekin voru glæsileg met
á íslenzkri grund, hið síðara stóð í 10 ár.
Árið 1922 varð mesta afreksár Kaldals. Hann hyrjaði með
að vinna víðavangshlaupin. Á miðsumarsmóti Spörtu vann hann
5 km. á frábærum tíma, 15:25,6 mín. Yar þetta þriðja árið í röð,
6em hann vann þetta hlaup, og þar með Spörtu-bikarinn til eign-
ar. Nokkru síðar, 25. júlí, hljóp hann 3 km. á 9:01,5 mín., og er
það bezti tími hans á þeirri vegalengd og íslenzkt met, sem stend-
nr enn þann dag í dag. Rúmlega viku seinna, 6. ágúst, kórónaði
hann svo afrek sín, ineð því að hlaupa 5 kin. á 15:23,0 mín.
Er það afhragðsafrek, enda aðeins sekúndu lakara en þágildadi
danskt inet. Tiniinn á fyrstu 3 km. í þessu hlaupi var aðeins 8:58
mín., og má af því sjá að vel hefir verið haldið áfrain. Kaldal
var langt á undan næsta manni og liefði án efa hlaupið á betri
tíina og bætt danska metið, ef hann hefði haft nokkra samkeppni.
Þetta ár varð hann meistari í 5 km. hlaupi, en hljóp það alls
5 sinnum, alltaf langt undir 16 mínútum, lakasti tíminn var
15:47,4 mín.
Árið 1923 var Kaldal ekki í essinu sínu. Hann vann þó Lim-
hamnhlaupið í 3. sinn og þá hinn fagra Uraniubikar til eignar.
Síðan hélt hann út til Islands. Sökum blóðleysis bannaði lækn-
ir honum að keppa. Var honum því nauðugur einn kostur að
hætta að hlaupa, enda þótt hann stæði á hátindi frægðarinnar og
væri í blónia lífsins. ].
60