Árbók frjálsíþróttamanna - 01.07.1943, Síða 70
3. Beswick Arg. á 10,9, 4. Sariola Finnland, 11,0, 5. Sveinn, senni-
lega á 11,1 sek. og 6. Ospelt, Lichtenstein á ca. 11,5 sek. Sveinn
náSi góðu viðbragSi, en af skiljanlegum ástæðum gat hann ekki
haldið lengi í hina eldfljótu keppinauta sína, þó tókst honum
að verða um 4 metra á undan næsta manni, en álíka langt á eft-
ir þeim fyrsta.
Sig. Sigurðsson tók þátt í hástökkinu, sem hófst samtímis 100 m.
hlaupinu. Hann stökk í fyrsta stökki yfir byrjunarhæðina, 1,60 m.
og einnig næstu hæð 1,70 m., en þá hæð felldu ýmsir keppenda
í fyrstu umferð. Næstu hæð 1,80 m. (sama hæð og ísl, metið var
þá) felldi Sigurður tvisvar, en heppnaðist að komast yfir í þriðja
skipti. Aftur á móti mistókust allar tilraunir hans til þess að
stökkva 1,85 m., sem var þá lámarlcshæðin til aðal-keppninnar.
Sigurður stökk í þetta sinn með hinum nýja ameríkanska stökk-
stíl, sem hann hafði lært í Berlín áður en keppnin hófst. Hér
heima hafði Sigurðuðr sett metið með stökki af vinstra fæti og
gamla sax-laginu.
Fimmtudaginn 6. ágúst kepptu þeir Kristján Yattnes í spjót-
kasti og Sigurður í þrístökki. Veður var fremur hvasst og hryss-
ingslegt þennan dag, en þó ekki kalt.
Kl. 10 f. h. hófst keppnin, þ. e. a. s. undankeppnin. Keppt
var um það, hverjir næðu 60 m. í spjótkasti og 14 m. í þrí-
stökki, því að þeir einir áttu að fá að taka þátt í aðalkeppninni
síðar um daginn. Kristjáni tókst því miður ekki að kasta nema
55 metra og komst því ekki í aðalkeppnina. En hann var ekki
einn um það, því að 10 aðrir keppendur urðu að sætta sig við
sömu örlög. Var Kristján í miðjum þessum hóp og má það telj-
ast gott.
Sigurður var hinsvegar í essinu sínu í þrístökkinu. Strax í
fyrsta stökkinu fór hann talsvert yfir 14 m., en gerði það ógilt-
Annað stökkið var gilt og einnig yfir 14 m. sennilega 14,10. Var
MYNDIUNAR Á BLS. 67: Aíi ofan: Siguriiur og Sveinn. —
AS neSan: Karl og Kristjáu.
66