Jökull - 01.01.2019, Blaðsíða 31
Guðmundsson et al.
lónum í hliðardölum. Sporðlónin eru af tvennum toga.
Annars vegar safnast vatn í dældir við sporða þegar
jökull hopar af öldóttri jökulurð, sem stundum hyl-
ur dauðís. Þessi lón eru yfirleitt grunn og geta breyst
að lögun frá ári til árs. Þau skiljast oft frá jökuljaðr-
inum þegar hann hopar og geta þá orðið að tjörnum
án afrennslis. Hins vegar myndast lón þar sem jöklar
hopa úr djúpum rennum sem ísaldarjöklar hafa grafið.
Lón eru nú við alla stærri skriðjökla sem eiga upptök
í Öræfajökli og ná niður á láglendi. Nokkur lón eru
á Breiðamerkursandi og framan við alla stóru skrið-
jöklana á Mýrum og í Hornafirði. Þessir jöklar náðu
allir fram á láglendi á 19. öld. Á fyrstu áratugum 21.
aldar hafa lónin stækkað ört og er samanlagt flatar-
mál sporðlóna við sunnanverðan Vatnajökul nú orðið
um 60 km2. Stærsta lónið er Jökulsárlón á Breiða-
merkursandi, ∼27 km2 árið 2018, sem fyrst sást votta
fyrir um 1933. Nú streymir allt leysingarvatn frá
Skeiðarárjökli til Gígjukvíslar um nokkur samtengd
lón sem samanlagt eru ∼7 km2 að stærð. Breiðárlón
(∼6 km2) er stakt vestarlega á Breiðamerkursandi og
rennur úr því í Fjallsárlón (∼4 km2). Austur á Mýr-
um eru Heinabergslón (> 3 km2) og lón framan við
Fláajökul (∼2 km2) og Hoffellsjökul (∼5 km2). Önn-
ur smærri lón í Öræfum eru við sporða Morsárjök-
uls (∼0.6 km2), Skaftafellsjökuls (∼1.3 km2), Svína-
fellsjökuls (∼0.4 km2), Virkisjökuls (∼0.2 km2), Kví-
árjökuls (∼0.6 km2) og Hrútárjökuls (∼0.1 km2), og á
Mýrum er lón framan við Skálafellsjökul sem var orð-
ið ∼0.2 km2 árið 2018.
Landlíkan af botninum undir sunnanverðum
Vatnajökli hefur verið búið til út frá íssjármælingum
frá síðasta áratug 20. aldar og á árunum 1998–2006,
2009 og 2012. Í ljós koma miklar rennur undir stærstu
skriðjöklunum, sem þeir hafa grafið í tiltölulega laust
set þegar þeir gengu fram á litlu ísöld. Þegar botn-
líkanið er borið saman við nýleg líkön af yfirborð
lands framan sporðanna og staðsetning lóna dregin
upp kemur í ljós að mörg þeirra hafa myndast þar sem
landið lækkar niður fyrir sjávarmál undir jöklinum. Út
frá lögun landsins undir jökulsporðum má ætla að við
ríkjandi loftslag eða enn frekari hlýnun haldi þessi lón
áfram að stækka á næstu áratugum.
REFERENCES
Army Map Service (AMS) 1951. Skeiðarársandur/-
Grænalón/Skeiðarárjökull/Bjarnarsker/Geirvörtur/-
Kvísker/Svínafell/Veðurárdalsfjöll/Breiðamerkurjök-
ull/Öræfajökull/Kálfafellsstaður/Hoffell/Hoffellsjök-
ull syðri: Sheets 5918 I/5919 I/5919 II/5919 III/5919
IV/6018 I/6018 IV/6019 I/6019 II/6019 III/6119
IV/6120 II/6120 III, C 762, year of measurement
1945–1946, 1:50000. Washington DC, US.
Arnborg, L. 1955. Ice-marginal lakes at Hoffellsjökull.
Geogr. Ann. 37, 202–228.
Belart, J.M.C. 2018. Mass balance of Icelandic glaciers
in variable climate. PhD dissertation, Faculty of Earth
Sciences, University of Iceland, 171 pp.
Belart, J.M.C., E. Magnússon, E. Berthier, F. Pálsson, G.
Aðalgeirsdóttir and T. Jóhannesson 2019. The geode-
tic mass balance of Eyjafjallajökull ice cap in 1945–
2014. Processing guidelines and relation to climate. J.
Glaciol. 65(251), 395–409.
Benediktsson, K. 1999 (written in 1954). Þegar ég var 17
ára. Skaftfellingur 13, 6–74.
Bergsdóttir, H.L. (2012). Orkubúskapur Jökulsárlóns á
Breiðamerkursandi [The energy balance of Jökulsár-
lón lagoon on Breiðamerkursandur]. BS report, Fac-
ulty of Earth Sciences, University of Iceland, 23 pp.
Björnsson, F. 1954. Breiðá skiptir um farveg. Jökull 4, 40.
Björnsson, F. 1955. Breiðárlón. Jökull 5, 42.
Björnsson, F. 1956. Kvíárjökull. Jökull 6, 20–22.
Björnsson, F. 1962. Fjallsárhlaupið 1962 og athuganir á
lóninu í Breiðamerkurfjalli [The glacier outburst flood
in Fjallsá in 1962]. Jökull 12, 42–43.
Björnsson, F. 1993. Samtíningur um Jökulsá á
Breiðamerkursandi og Jökulsárlón. Skaftfellingur 9,
8–25.
Björnsson, F. 1996. Þættir um Breiðamerkursand. Skaft-
fellingur 11, 105–125.
Björnsson, F. 1998. Samtíningur um jökla milli Fells og
Staðarfjalls. Jökull 46, 49–61.
Björnsson, Ha., B.D. Sigurðsson, B. Davíðsdóttir, J. Ólafs-
son, Ó.S. Ástþórsson, S. Ólafsdóttir, T. Baldursson
and T. Jónsson 2018. Loftslagsbreytingar og áhrif
þeirra á Íslandi – Skýrsla vísindanefndar um loftslags-
breytingar [The effect of climate change in Iceland – A
report of the scientific committee on climate change].
Veðurstofa Íslands, Reykjavík, 236 pp.
Björnsson, H. 1974. Explanation of jökulhlaups from
Grímsvötn, Vatnajökull, Iceland. Jökull 24, 1–16.
30 JÖKULL No. 69, 2019