Jökull - 01.01.2019, Page 143
Snævarr Guðmundsson og Helgi Björnsson
Skeifulaga brot úr jökuljaðrinum
Árið 2015 hafði jökuljaðarinn við Stórahnaus hopað
tæpa 200 m frá árinu 2010 og jafnframt lækkað. Þó
stíflaði hann ennþá Gjávatn en mótstaðan var tekin að
veikjast. Útfall árinnar hélst þó á sama stað allt fram
að hlaupinu þá um haustið og sömuleiðis sést hvar áin
leitaði inn undir jökuljaðarinn. Sennilegasta skýring-
in á hlaupinu eru skyndilegir vatnavextir í miklum úr-
komutoppum í október 2015 (Snævarr Guðmundsson
o.fl., 2015). Eftir hlaupið 2015 féll áin ekki lengur
eftir þessum farvegi en tók þess í stað að renna eft-
ir fyrrum botni Gjávatns, meðfram jökuljaðrinum og
inn undir jökulinn nokkru sunnar.
Við áframhaldandi rýrnun jökulsins hvarf ísgljúfr-
ið við Stórahnaus en í staðinn myndaðist mjór dalur
á milli fjalls og jökuls Áin rann þar um tíma en leit-
aði jafnframt inn undir jökulinn á kafla. Á Landsat-
mynd frá 22. ágúst 2017 sést að farið var að hrynja úr
jaðrinum og skeifulaga far að myndast í jökulinn. Á
Landsat-mynd frá 26. júní sama ár sást ekki hvað var
í aðsigi og er líklegt að byrjað hafi að brotna af jöklin-
um síðla sumars. Á mynd frá 16. október sést vel að
jökullinn hefur tapað svæði sem er á að giska 3,9 hekt-
arar (ha) að flatarmáli. Óþekkt er hve langa tíma þetta
tók því staðurinn er afskekktur og engin vitni voru að
þessari þróun. Má eins vera að það hafi tekið daga eða
vikur að brotna smám saman úr jöklinum.
Svipuð atburðarrás endurtók sig sumarið 2018.
Landsat-mynd frá 28. maí 2018 sýnir að sprung-
ur voru teknar að myndast í grennd við fyrrgreinda
skeifu. Þær voru orðnar að heljarmiklum gjám 22.
júní sama ár. Í þetta sinn brotnaði af jöklinum 7,2
ha (0,072 km2) spilda. Í heildina tapaði jökullinn því
12 ha (0,12 km2) við þessa atburði (6. mynd). Þessi
þróun við austurjaðar Hoffellsjökuls, á árabilinu 2002
til 2019 er rakin enn frekar á 5. mynd. Á 6. mynd sést
jaðar jökulsins árið 2015, fyrir breytingarnar og ár-
ið 2019. Gróflega áætlað er þykkt íssins í stálinu ∼40
m. Rúmmál íss sem brotnaði frá í skeifunni nemur því
um 5× 106 m3. Á myndum sem Þorvarður Árnason
tók með flygildi, í ágúst 2019, sést síðan að eyrar um-
rædds dals, milli fjall og jökuls, þekja raunar jökulís
og eru smálón farin að myndast í hann (7. mynd).
Talið er að Hoffellsjökull hafi fyrst gengið að
Efstafellsnesi á fyrstu áratugum 19. aldar (Egill Jóns-
son, 2004; Helgi Björnsson, 2009). Teikn eru um það
að jökullinn sé að sleppa taki sínu á nesinu nú 200
árum síðar.
Glacier changes by Breiðamerkurjökull and Hof-
fellsjökull in 2010–2019. Rapid changes in land-
forms and hydrology now take place at the margins
of glaciers in Iceland due to their fast retreat in re-
sponse to warming climate. We describe examples
from the margins of Breiðamerkurjökull and Hoffells-
jökull from the years 2010–2019 with significant im-
pact on the runoff of meltwater, the location of river
courses, the formation of glacial lakes and jökul-
hlaups.
TILVITNANIR
Jónsson, E. 2004. Í veröld jökla, sanda og vatna. Í
H. Björnsson, E. Jónsson og S. Runólfsson (ritstj.),
Jöklaveröld 11–86, Skrudda, Reykjavík.
Björnsson, H., F. Pálsson and M. T. Guðmunds-
son 1992. Breiðamerkurjökull. Niðurstöður íssjár-
mælinga. Reykjavík, Science Institute, University of
Iceland, Rep. RH-12-1992, 189 pp.
Björnsson, H. og F. Pálsson 2004. Jöklar í Hornafirði. Í In
Björnsson, H., E. Jónsson og S. Runólfsson (ritstj.),
Jöklaveröld 125–164, Skrudda, Reykjavík.
Björnsson, H. 2009. Jöklar á Íslandi. Bókaútgáfan Opna.
Reykjavík.
Guðmundsson Sn., H. Björnsson og A. L. Ragnarsdótt-
ir 2015. Land- og jökulbreytingar við Hoffellsjökul
2015. Jökull 65, 97–102.
Guðmundsson Sn., H. Björnsson, F. Pálsson, E. Magnús-
son, Þ. Sæmundsson og T. Jóhannesson 2019. Termi-
nus lagoons on the south side of Vatnajökull ice cap,
SE-Iceland. Jökull 69, 1–28.
Jóhannesson, T., H. Björnsson, F. Pálsson, O. Sigurðs-
son og Þ. Þorsteinsson 2011. Lidar mapping of the
Snæfellsjökull ice cap, western Iceland. Jökull 61, 19–
32.
Jóhannesson T., H. Björnsson, E. Magnússon, Sv. Guð-
mundsson, F. Pálsson, O. Sigurðsson, Th. Thorsteins-
son og E. Berthier 2013. Ice-volume changes, bias es-
timation of massbalance measurements and changes
in subglacial lakes derived by lidar mapping of the
surface of Icelandic glaciers. Ann. Glaciol. 63, 63–74,
doi:10.3189/2013AoG63A422.
142 JÖKULL No. 69, 2019