Jökull - 01.01.2019, Blaðsíða 153
Magnús Tumi Guðmundsson
SKÁLAMÁL
Skálanefnd fór þrjár vinnuferðir á Grímsfjall á árinu,
9.–11. mars, 8.–10. júní og 6.–9. september. Unnið var
í frágangi og endurbótum á kælikerfi rafstöðvar í sam-
vinnu við Neyðarlínuna sem greiddi hluta kostnaðar
við ferðirnar. Einnig voru hús máluð, hiti lagaður og
dittað að þar sem með þurfti. Farnar voru viðhalds-
ferðir í Jökulheima og gert við miðstöðvar. Þá tók
Eiríkur Kolbeinsson sig til og dvaldi um tíma í Jök-
ulheimum í ágúst og málaði þar öll húsin. Í haust
var síðan árleg frágangsferð í Jökulheima. Í ágúst fór
fjögurra manna hópur í Esjufjöll, bar á glugga, skipti
um sólarsellu og kannaði aðstöðu fyrir kamar. Öll eru
þessi hús nú í góðu ástandi. Nokkrar samræður áttu
sér stað við Vatnajökulsþjóðgarð um framtíð Breiðár,
braggans okkar á Breiðamerkursandi sem reistur var
sumarið 1951. Hann er elsta jöklahús landsins sem
nú er uppistandandi. Engin niðurstaða er komin í þær
samræður en gagnkvæmur vilji er fyrir því að húsið
fá í senn að standa sem minnisvarði um upphaf skipu-
legra jöklarannsókna á Íslandi og geti jafnframt þjón-
að nægjusömum vísindamönnum sem nýta húsið öðru
hvoru við rannsóknir á Breiðamerkursandi.
BÍLAMÁL
Bíll félagsins gegndi að venju mikilvægu hlutverki
í vorferð, fór á Mýrdalsjökul í vormælingarnar auk
vinnuferða á Grímsfjall og í Jökulheima. Fyrri hluta
ársins fékk hann að standa á svæði Gámaþjónustunn-
ar en þegar þar gerðist plásslítið tók formaður bíla-
nefndar hann til geymslu heima hjá sér suður í Vog-
um. Engar bilanir komu upp og má þakka það góðu
fyrirbyggjandi viðhaldi bílanefndar.
ÁRSHÁTÍÐ
Árhátíð félagsins var haldin 17. nóvember og heppn-
aðist mjög vel að venju. Þátttaka var með besta móti
en húsfyllir var með rúmlega 70 gestum. Útilífsbúðin
Fjallakofinn bauð upp á fordrykk en síðan var haldið í
ágætan veislusal á Smiðjuvegi. Stjórn félagsins ákvað
að bjóða heiðursfélögum til hátíðarinnar í þetta sinn
og þáðu margir þeirra boðið.
LOKAORÐ
Jöklarannsóknafélagið er nú að hefja sitt 69. starfsár.
Það styttist í 70 ára afmælið sem verður í nóvember
á næsta ári. Enn eru virkir í félaginu tveir stofnfélag-
anna, þeir Ólafur Nielsen og Haukur Hafliðason, sem
gengu í þetta nýja félag þegar þeir voru rétt skriðn-
ir yfir tvítugt. Félagið hefur áorkað miklu á þessum
tíma. Það fóstraði rannsóknir á jöklum á tímum þegar
ekki voru öðrum til að dreifa til að taka upp það merki.
Félagið hefur byggt upp aðstöðu á lykilstöðum og ber
þar hæst skálana á Grímsfjalli sem eru bækistöð rann-
sóknaleiðangra. Húsin gera einnig mögulegan rekstur
margvíslegs mælibúnaðar sem fylgist með þessu eld-
virkasta svæði landsins. Í dag skapar félagið vettvang
fyrir sjálfboðaliðastarf af ýmsu tagi: Sporðamælingar,
afkomumælingar á Mýrdalsjökli, vorferðir og viðhald
og byggingu skálanna. Félagið þarf stöðugt að endur-
nýja sig til að nýtt fólk komi í stað þeirra sem draga sig
í hlé. Það var gleðilegt að sjá margt ungt fólk í ferð-
um félagsins á síðasta ári og áhugi fyrir næstu vorferð
er mikill, einkum hjá ungu og upprennandi jöklafólki.
Meðan félagið heldur áfram að vera vettvangur öflugs
starfs sem margir vilja koma að er framtíðin björt.
Flutt á aðalfundi 26. febrúar, 2019.
Magnús Tumi Guðmundsson
152 JÖKULL No. 69, 2019