Jökull - 01.01.2020, Page 125
Snævarr Guðmundsson og Helgi Björnsson
3. mynd. Kort af þekktum farvegum Jökulsár á Breiðamerkursandi og hvar talið er að áin hafi verið á 19. og 20.
öld. Gula brotalínan afmarkar strandlengjuna árið 1904, þegar svæðið var mælt af danska herforingjaráðinu.
Þannig hefur talsverður hluti farvega árinnar rofist burtu vegna ágangs sjávar. Minna kortið sýnir jakahvörf
sem mynduðust eftir jökulhlaupið 1927 (rauðgulir flekkir). Önnur jakahvörf eru rauð. – Known and inferred
riverbeds of Jökulsá at Breiðamerkursandur during the 19th and 20th century. The yellow line defines the coast
in 1904, when the region was surveyed by the Danish General Staff. Coastal erosion of ∼1 km has occurred
since sediment deposition terminated in the 1930s. The inset shows kettle holes from icebergs deposited in the
1927 jökulhlaup (orange patches) and other kettles in red.
sand (Háalda eystri) því að jökullinn hefur umturnað
öðrum ummerkjum norðanvert við þá og sjór og haf-
straumar rofið af ströndinni (2. mynd). Strandlengjan
byggðist jafnframt út í sjó. Um 1904, þegar dansk-
ir landmælingamenn mældu ströndina (herforingja-
ráðskortin) voru ósar árinnar um einum km framar en
nú er (Helgi Björnsson 2009). Samanburður LiDAR
landlíkans frá 2010 (Jóhannesson, o.fl. 2011) og her-
foringjaráðsins (DGS 1905), sem sýnir strandlengjuna
árið 1904, vitnar um að landbrotið var ∼830 m um
miðjan Breiðamerkursand á sama tímabili (3. mynd).
Ein mikilvægasta ritheimildin um sögu Jökulsár
er grein Flosa Björnssonar frá Kvískerjum í Skaftfell-
ingi 1993. Hann dró saman yfirlit um margt sem vitað
er um ána, allt frá söguöld og fram til þess tíma að
hún skorðaðist í núverandi farvegi. Flosi (1993) seg-
ir heimildir bera saman um að áin hafi á síðustu öld-
um legið á svipuðu svæði og nú er og vitnar m.a. til
korta Knoffs (1734) og Sveins Pálssonar (1945). Eft-
ir þeim má dæma að áin hafi nokkurn veginn runnið
miðsvegar á Breiðamerkursandi eins og nú, en gróf-
leiki kortanna leyfir ekki frekari nákvæmni. Illmögu-
122 JÖKULL No. 70, 2020