Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2023, Page 17

Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2023, Page 17
17 sími 551-2344 tapas.is Spánn er handan við hornið SJÁUMST Á TAPASBARNUM gleðilega hátíð! segir Ilaria. Þetta sé þó sérstaklega flókið í tilfelli femme lesbía sem eru ekki ekki eingöngu útsettar fyrir áreiti og ofbeldi þegar þær brjóta gegn hugmyndum samfélagsins um hlutverk kvenna, til dæmis með óhefðbundinni kyntjáningu, heldur einnig þegar þær sýna dæmigerð einkenni um kvenleika. „Það er brotið á konum hvort sem þær fylgja eða brjóta í bága við viðmið samfélagsins um kvenleika.“ Það áreiti sem femme lesbíur verða fyrir snýr einnig að hlut verki kvenna innan feðraveldisins og þeim væntingum sem sam félagið gerir til þeirra, þá sérstaklega þegar kemur að karlmönnum, hefð bundn um kyn hlutverkum og barn eignum. Þetta eru þær kröfur sem samfélagið gerir til kvenna um kvenleika, sem endur- spegla undirliggjandi hugmyndir um það hvernig sá kvenleiki tilheyri í raun karlmanninum, segir Ilaria. „Viðhorfið er það að við séum ekki sjálfum okkur nægar, heldur sé tilvist okkar í þágu karlmannsins, ýmist til þess að uppfylla óskir þeirra eða til þess að vera kastað fyrir róða af þeim, en með því að standa á eigin fótum rústum við mörgum af þeim hugmyndum eða væntingum sem samfélagið gerir til okkar. Þá má oft greina það viðhorf að sé lesbía kvenleg í fasi eða teljist fríð samkvæmt stöðlum samfélagsins sé hún einhvers konar sóun á sjálfri sér, sem vekur upp spurninguna: sóun fyrir hvers sakir? Ef litið er á málið út frá hefðbundnum kynhlutverkum liggur þó í augum uppi að málið snýst um glataða möguleika á barneignum. Talið er að ef kona eigi í hlut, og hvað þá kona sem er lesin sem kona, þá beri henni að hegða sér eins og góðri konu sæmi og ala börn fyrir feðraveldið.“ Baráttan endalausa Það má teljast líklegt að íslenskar lesbíur geti fundið sig í ýmsu af því sem Ilaria Todde hefur að segja. Femme konur þekkja vel kynferðislegar aðdróttanir og áreiti karlmanna og masc konur þekkja margar of vel neikvæð viðbrögð samfélagsins við tilveru sinni. Hinsegin samfélagið í heild sinni þekkir áreiti, fordóma og ofbeldi og endalausa baráttu fyrir réttindum, sýnileika og sátt í samfélaginu. Það er því svo sannarlega mikilvægt að við sameinumst þvert á hópa í baráttunni, öllum til heilla. Sú samstaða má samt ekki útiloka að við beinum sjónum okkur að sértækum vandamálum hópa innan breiðfylkingar okkar. Við vitum betur en kannski nokkur annar þjóðfélagshópur að við þurfum ekki að vera eins og við þurfum ekki að skilja hvort annað til fulls til þess að standa sterk með hvort öðru. Það er okkur í raun lífsnauðsynlegt að skilja hvað það er sem aðgreinir okkur um leið og við tökum afstöðu með því að láta það vera það sem sameinar okkur í baráttunni. The Word Lesbian Unifies Us Interview with Ilaria Todde Ilaria Todde, Advocacy and Research Director at EL*C (EuroCentralAsian Lesbian* Community), discusses the lived realities of lesbians*, as well as the implications of lesbophobia. Using the term with an asterisk, EL*C aims to “include anyone who identifies as lesbian, feminist, bi, trans or queer, and all those who feel connected to lesbian activism”. Identifying as a butch lesbian herself, Ilaria grew up in rural Sardinia, where she experienced more discrimination based on her gender expression than her sexuality. However, what unifies women that present as masc or femme, to varying degrees, is the urgency to reclaim their own identity outside the bounds of the patriarchy – a sentiment shared by the LGBTQIA+ community at large. Myndir úr einkasafni
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.