Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2023, Blaðsíða 44
44
Á nöpru febrúarkvöldi einu í upp-
hafi tuttug ustu aldar var haldinn
grímu dansleikur á einu fínasta hóteli
Berlínar borgar. Þegar fór að rökkva
streymdu ball gestir að í skraut legum og
íburðar miklum búningum, uppá klæddir
sem sjóarar og riddarar, offí sérar og
nauta banar, munkar og trúðar. Svo
var dansað nætur langt undir glitrandi
ljósa krónum. Úr dans salnum heyrðist
„glymjandi hlátur, glamur í glösum og
áhyggju laus söngur,“ eins og einn
gest anna rifjaði upp síðar meir. Eitt
var þó kannski óvenju legt við þennan
fágaða dans leik. Þetta var í blábyrjun
tuttug ustu aldar en búninga klæddu
gestirnir, allir nauta banarnir og riddarar-
nir í sölum lúxus hótelsins í Berlín, voru
konur — hinsegin konur.
Frá þessum ramm hýra dans leik segir
í bókinni Þriðja kyn Berlínar sem þýski
kyn fræði frömuðurinn og baráttu-
maðurinn Magnus Hirschfeld gaf út
1904. („Þriðja kynið“ var hugtak sem
Hirschfeld notaði á þessum tíma
sem sam heiti yfir hin segin fólk, bæði
samkyn hneigt og trans, fólk sem féll
einhvern veginn ekki inn í stranga
kynja tví hyggju þessa tíma.) Bókin er
merkileg heimild, eins konar ferða bók
eða leiðar vísir um líf og leik hin segin
fólks í Berlín, þeirri veröld sem Hirsch-
feld lifði og hrærðist í. Og þvert á það
sem auðvelt er að ímynda sér um sögu
og líf hin segin fólks í upphafi aldar-
innar — fyrir allar Pride-göngur og alla
lagalegu sigrana, fyrir alnæmis faraldur-
inn og fyrir Stonewall — var þetta alls
ekki ein göngu skápa samfélag.
Upplifðu sína innstu drauma
Vissulega mættu hinsegin fólki margar
á skoranir. Þetta var á dögum keisara-
veldis í Þýska landi og sam kvæmt 175.
grein þýskra hegningar laga var „sam-
kyn hneigt athæfi“ bannað. Tækni lega
átti það aðeins við um sam ræði tveggja
karl manna en lögin gerðu það að
verkum að flest hinsegin fólk í Þýska-
landi lifði í ótta við refsingu, fjár kúgun
eða félags lega út skúfun. Engu að síður
þreifst í Berlín lifandi og litríkt sam félag
hin segin fólks og fólk fann sér tæki færi
til að koma saman og gleðjast. Þar voru
starf rækt félög og klúbbar sem efndu
til dans leikja og skemmt ana eins og
Hirschfeld lýsir í bók sinni. Hann segir
þar frá lit rófi hinsegin sam félagsins í
Berlín, frá skugga legum verka manna-
knæpum þar sem karlar gjóuðu
augunum laumulega til annarra karl-
manna og skyndi fundum í bað húsum til
elegant einka samkvæma í borgar innar
fín ustu sölum, eins og kvenna dans-
leiknum skraut lega á lúxus hótelinu.
„Ekki ein feilnóta varpaði skugga á
gleðina,“ sagði „fröken R“, heimildar-
kona Hirschfelds, um dans leikinn. „Ekki
þar til síðustu gestirnir stigu út í föla
birtu febrúar morgunsins og yfir gáfu
staðinn þar sem þær fundu, í ör fáar
klukku stundir, skilnings ríkan félags-
skap til að upplifa sína innstu drauma.“
Í bókinni skrifar Hirschfeld líka um
gleð skap hin segin karla, þar sem gestir
mættu í sínum fínustu ball kjólum með
myndar leg yfirvara skegg og dönsuðu
og diskú teruðu Wagner. Þar var hann
að segja frá eigin reynslu en Hirschfeld
sótti grimmt skemmtana líf hinsegin
fólks í Berlín og mætti jaf nvel sjálfur
í dragi sem „Magnúsína frænka“.
Hinsegin höfuðborg heimsins
Hirschfeld var ötull baráttu maður
með fram djamminu. Hann tók þátt
í stofnun einna fyrstu réttinda sam-
taka hin segin fólks árið 1897 og gaf
út ófá rit um sam kyn hneigð, kyn fræði,
trans fólk og hinsegin leika. Árið 1919
stofnaði hann Kynfræða stofnun, þá
fyrstu sinnar teg undar í heim inum, í
stórri bygg ingu við Tier garten, þar sem
hann fékk til starfa inn kirtla fræð inga,
geðlækna, kven sjúkdóma lækna og fleiri
sér fræð inga. Á stofnun inni var boðið
upp á ráðgjöf til para og einstak linga
sem glímdu við kyn ferðis leg vanda mál,
ráð gjöf um getnaðar varnir og kyn-
sjúkdóma, fyrir lestra og nám skeið um
ýmis kynferðismál.
Þangað gat hin segin fólk einnig leitað
eftir margs konar heilbrigðis þjónustu,
ráðgjöf og félags skap. Hirschfeld
smíðaði orðin trans vestít og trans-
sexúal og inn kirtla fræðingar stofn-
unar hans voru með þeim fyrstu sem
gerðu tilraunir með hormóna gjafir til
trans fólks og skurð aðgerðir til kyn-
leið réttingar. Margt hin segin fólk í dag
sér eflaust heil brigðis stofnun með svo
heild ræna þjónustu í hillingum. Stofnun
Hirschfelds átti sinn þátt í því að eftir
fyrri heims styrjöld, þegar Berlín var
orðin höfuð borg Weimar-lýð veldisins,
varð borgin einnig óum deilan leg
hin segin höfuð borg Evrópu, ef ekki
heimsins. Það var þá sem hið leynda en
líflega skemmtana líf hin segin fólks sem
Hirschfeld hafði lýst í bók árið 1904
sprakk út sem aldrei fyrr.
Hinsegin gleði og glaumur í Berlín fyrir síðari heimsstyrjöldVera Illugadóttir