Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2023, Blaðsíða 15
15
TW: umræða um ofbeldi og nauðganir.
Í greininni er nokkuð talað um kyn
tjáningu en höfundur hefur kosið að
nota orðin femme og masc fremur en
íslensku orðin kvenlegt og karlmannlegt
þar sem þau ná ekki fyllilega utan um
þá hugmyndafræði sem fjallað er um.
Lesbófóbía er ekki orð sem við heyrum
oft enda flest vön að tala um hómó-
fóbíu þegar vísað er til hvers kyns
fordóma gagnvart hinsegin fólki. Ilaria
Todde er samskipta- og rannsóknar-
stjóri EL*C, eða Euro Central Asian
Lesb ian* Comm unity, en hún flutti tvö
erindi á ráðstefnu IDAHOT+ Forum í
Reykja vík í maí síðastliðnum. Sam tökin
EL*C leggja áherslu á þær áskoranir
sem mæta lesb íum sem felast, að sögn
Ilariu, bæði í hómófóbíu og kven hatri. Í
erindum sínum talaði hún um fordóma á
grundvelli kyntjáningar og voru lesbó-
fóbía og trans fordómar sérstak lega til
umfjöllunar.
Hvað er lesbía?
Áður en lengra er haldið er rétt að
nefna að samtökin EL*C nota orðið
lesbía á mun víðtækari hátt en við
eigum að venjast á Íslandi. Á vef síðu
þeirra segir að notkun orðsins lesb ía sé
„liður í baráttunni fyrir auk num sýnileika
og valdeflingu“ og því noti þau orðið
með stjörnu — lesbía* —
„til þess að ná utan um og bjóða allar
velkomnar sem skilgreina sig sem
lesbíur, femínista, tvíkyn hneigðar,
trans eða hinsegin, auk þeirra sem
finna tengingu við réttinda baráttu
lesb ía.“ Þá segir Ilaria mikilvægt að
nota orðið lesbía því að það hafi á
sér nei kvæð an blæ í mörgum löndum,
þar sem það hefur lengi verið notað í
nið randi merkingu. „Orðið hefur verið
notað í þeim tilgangi að kyngera og
blætisvæða lesbískar, tvíkynhneigðar
eða hinsegin konur og því vilja margar
konur sem eru ekki gagnkynhneigðar
ekki nota orðið eða tengjast því,“
segir hún. Lesbískt klám er til að mynda
gríðar lega vinsælt á klám miðlum en
þau sem hafa stundað lesb ískt kynlíf
geta að öllum líkindum verið sam mála
um að það sem þar birtist á ekkert
skylt við kynlíf lesbía, heldur er um að
ræða fanta síu gagn kyn hneigð ra karla
þar sem kynlíf hinsegin kvenna er látið
þjóna þeirra hag og smekk. Því falla
klám mynda leik konur nar einkum að
hugmyndum gagn kynhneigða reglu-
verksins um það hvað teljist að lað-
andi, svo sem að vera kvenlegar eða
femme. Hugmyndafræði EL*C felur í
sér að hægt sé að nota orðið lesbía á
fleiri en einn veg: það geti bæði verið
sjálfs myndar hug tak en einnig hugtak
fyrir breiðan hóp hinsegin kvenna og
fólks sem lesið er sem konur. „Við viljum
ekki skylda fólk til þess að skil greina
sig sem lesbíu. Að mínu viti er ætlunin
ekki að útiloka fólk, heldur snýst þetta
fyrst og fremst um að átta sig á því að
staða okkar sem kvenna í sam félag inu
markist jafnt af kynhneigð okkar sem
og kynvitund,“ segir Ilaria. Lesbía sé því
sameinandi hugtak en ekki einangrandi
eða útilokandi. Innan þess geti hin-
segin konur og fólk sem er lesið sem
konur, hvort sem um er að ræða sís eða
trans, sameinast gegn þeirri sam þættu
mismunun og fordómum sem þau verða
fyrir vegna kyns síns, kyntjáningar og
kyn hneigð ar. Breyturnar séu þó fleiri og
mikilvægt sé að missa ekki sjónar á því.
Til að mynda verði tvíkynhneigðar konur
fyrir fordómum bæði innan og utan
hin segin sam félags ins. Þá verði lesb íur
sem einnig eru trans jafnframt fyrir
trans fóbíu og svört lesbía verði bæði
fyrir lesbó fóbíu og kyn þátta for dóm um
svo fátt eitt sé nefnt.
LESBÍA ER
SAMEINANDI
HUGTAKViðtal við Ilariu Todde
Bjarndís Helga Tómasdóttir
M
yn
di
r
úr
e
in
ka
sa
fn
i