Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2023, Blaðsíða 82

Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2023, Blaðsíða 82
82 Ég trúi því að bókmenntir skipti máli og hafi áhrif. Kannski ekki á aug ljósasta hátti nn þar sem ég þoli al mennt ekki bækur sem reyna að hafa áhrif, því pre dikunar tónninn skín alltaf í gegn og gerir sögurnar leiðin legar. En ég trúi því að bók menntir hafi áhrif bara með því að vera til og fjalla um það sem þær fjalla um. Sögur nar sem við lesum setjast að í vitund okkar, verða hluti af okkur og hluti af sýn okkar á samfélagið. En bókmenntir, eins og allt annað í sam félaginu, hefur inn byggða skekkju. Meiri hluti skáld sagna fjalla um karla og drengi, þeirra líf og lífsreynslu og eru sagðar út frá þeirra sjónar horni (sú er allavega raunin í öðrum löndum og hlýtur því að vera raunin hér, án þess að ég hafi talið það) og mjög fáar bækur í megin straumnum fjalla um líf lesbía, homma, tvíkyn hneigðra, trans fólks eða annarra sem tilheyra regn boga hin segin samfélagsins. Glæpasagan hefur þó verið hvað skást með þetta, kannski af því að hún tekur sig ekki mjög alvarlega sem bók- mennta grein. Það eru trúlega komin 25 ár síðan að ég rakst á frá bæran hin segin lögreglu mann í bók eftir Jonathan Kellerman. Hinn grísk ættaði, þybbni, örlítið hrana legi en jafn framt eldklári Milo Sturgis var einn fyrsti opni homminn í „main stream” glæpa- sögu, sem jafnframt ögraði viðt eknum hugmyndum um homma. Milo er auka persóna en besti vinur og sam- starfs maður aðal persónunnar, barna- sálfræðingsins Alex Delaware, og fær því tals vert pláss í sögunum og leikur oft lykil hlutverk. Vin átta mannanna er djúp og einlæg og þeir hjálpast að við að leysa flókna glæpi en einnig við að reyna að leysa úr einkamálunum: Alex er alltaf í vandræðum með kærust una sem sífellt virðist vilja fljúga frá honum en Milo glímir við einelti á lög reglu- stöðinni auk þess sem hinsegin sam- félagið er tortryggið gagnvart honum af því að hann er lögga. Ég varð næstum bjánalega þakklát fyrir Milo og svo virðist hafa verið um fleiri því fyrsta bókin um þá félaga, When the Bough Breaks, seldist í 80 milljón ein tökum eftir að hafa verið hafnað endur tekið í tveggja ára píslar göngu Kellermans á milli útgefenda. Það þarf ekki að tíunda mikilvægi þess að 80 milljónir manns lesi um lögreglu- mann sem er hommi og að auki fremur geð þekk og marg laga persóna með sínar lífs glímur sem bæði lúta að því að vera hinsegin en líka að hlutum sem koma því ekkert við, svo sem of þyngd, en Milo er afskaplega lyst ugur og fellur sökum annríkis oft í þá freistni að fá sér skyndibita. Þarna erum við að tala um sýni leika sem skiptir máli, þó svo að höfundurinn, Johathan Kellerman, sé ekki hommi sjálfur og persónan sem við kynnumst og tengjum við sé auðvitað skáldsagnapersóna. En það er ekki bara sýnileikinn sem skiptir máli, það skiptir líka máli að skáld sagna persónur séu til þess fallnar að gefa lesandanum innsýn í hugar- heim fólks sem ef til vill er öðruvísi en það sjálft og glímir við aðra hluti. Þannig eykur skáldskapur mannlega sam- kennd og það er nokkuð sem bæði hinn stærri heimur en líka við innan hin segin sam félagsins þurfum á að halda. Við þurfum öll að geta horft á, hlustað á eða lesið um persónur sem bæði túlka eitthvað úr okkar eigin veruleika en líka úr veruleika sem við þekkjum ekki. Sú áhersla á að LGBTQ+ höfundar fái aukin tækifæri og sterkari rödd innan bókmenntaheimsins er mikilvæg, því okkar eigin túlkun á okkar veruleika skiptir máli fyrir okkur en getur jafn- framt víkkað sýn annarra lesenda á ýmis mál er snúa að sjálfs skilningi okkar og menningu. Þannig er um hina skosku Val McDermid sem hefur orðið einn vinsælasti glæpa sagna höfundur heims án þess að biðjast nokkurn tíma afsökunar á því að hafa hins egin persónur og þá einkum lesbíur í for- grunni margra skáldsagna sinna. Hefur hún orðið að mikilvægri fyrir mynd fyrir marga vegna þessa og þar á meðal mig. Það er skoðun mín að alls konar höfundar eigi að spreyta sig á því að skrifa um hinsegin persónur og hinsegin líf. Við megum ekki einangra okkur við að krefjast þess að allir sem skrifi um hinsegin mál verði að vera hin segin, því það mun einfaldlega minnka framboð af lesefni og sjón- varps efni og leikritum sem sýnir okkar til vist. Hins vegar eigum við að krefjast þess að rit höfundar vandi sig og skrifi sögur þar sem hinsegin per- sónur eru settar fram á fjölbreyttan og áhuga verðan máta, að þau brjóti upp staðalmyndirnar og fordómafullar klisjur og að hinseginleikinn sé ekki eina persónueinkenni þeirra. Og ef höfundar eru í vafa um að hinsegin per sónur þeirra séu nægi lega góðar, að leita þá ráða hjá einhverjum sem tilheyra því samfélagi sem skrifað er um. Það er ekki bara kurteisi gagnvart jaðar settum hópum sem oft hafa verið skrum skældir í umfjöllun, heldur einfaldlega vönd uð vinnubrögð. HINSEGIN Lilja Sigurðardóttir, rithöfundurÓSKASTGLÆPALÝÐUR — um LGBTQIA+ persónur í glæpasögum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.