Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2023, Blaðsíða 26
26
Fólk tjáir kyn sitt á ýmsan hátt
sem brýtur í bága við úreltar
samfélagsreglur, t.a.m. með klæða-
burði og líkamsbeitingu. Hér verða
talin upp nokkur atriði sem er kannski
minna talað um, ráð sem geta gagnast
þeim sem passa ekki inn í rammann.
Þó svo að umfjöllunin sé hugsuð fyrir
trans fólk og sís fólk sem fellur utan
kynjanormsins (e. gender non con
forming), svo sem masc konur og
femme karl menn, gilda þessi atriði alls
ekki fyrir öll sem skil greina sig innan
þeirra hópa. Tilgangurinn með þessum
skrifum er bæði að veita fólki upp-
lýsingar og hugmyndir um ýmis legt sem
gæti hjálpað þeim að auka kyngleði,
en ekki síður að opna umræðu sem er
mörgum viðkvæm. Listinn er alls ekki
tæmandi, enda ómögulegt fyrir einn
mann að kunna skil á öllu sem getur ýtt
undir kyngleði. Höfundur er sjálfur trans
maður en leitaði til femme ráðgjafa við
skrif á þeim hluta um fjöllunar innar sem
þau voru öllu fróðari um. Í um fjöllun-
inni koma fyrir orð sem vantar íslenska
þýðingu á, því verður notast við ensk
heiti. Hafir þú uppá stungur að góðum
þýðingum má alltaf koma þeim á
framfæri við Samtökin ‘78 sem standa
reglulega fyrir hýryrðakeppnum.
Binder:
Binder er notaður til að fletja út
bring una, yfirleitt svo það fari minna
fyrir brjóst um eða þau sjáist alls ekki.
Binder um svipar að vissu leyti til
íþrótta brjósta haldara (sem má líka nota
í sama tilgangi) en geta náð lengra
niður á maga eins og hlýr abolir sem
getur stundum hentað þeim betur sem
eru með stór brjóst. Binderar eru úr
stífu efni og þess vegna er mjög mikil-
vægt að fylgja alltaf leiðbeiningum frá
fram leiðanda um notkun þeirra. Al-
menna reglan er að vera ekki lengur en
8 klukku stundir í binder í einu og fyrir
ungt fólk er mælt með ennþá styttri
tíma. Það er miki lvægt að nota binder
í rétt ri stærð og halda sig frá áreynslu
á meðan man er í honum nema hann sé
sér stak lega hannaður fyrir íþróttir. Það
er til að koma í veg fyrir að binderinn
valdi skaða eða öndunarerfiðleikum.
Ekki allt fólk sem notar binder gerir það
vegna kynama. Þau geta líka auðveldað
líkömum með brjóst að passa í föt sem
hönnuð eru á karlmenn, t.d. skyrtur og
jakka föt.
Teip:
Það er líka hægt að nota teip í sama
tilgangi og binder. Það er ekki hægt
að nota hvað teip sem er heldur er til
sérstök gerð af teipi sem má setja á
húð og er laust við eiturefni. Þrátt fyrir
það geta sum fengið ofnæmis viðbrögð
við teipinu. Teipið er vatns helt og hægt
að hafa á sér í 3-4 daga í senn. Líkt og
með binderinn þarf að lesa notkunar-
leiðbeiningar vel og fylgja þeim. Teipið
getur verið hent ugra en binder inn
fyrir ákveðin tilefni en svo er líka ein-
staklings bundið hvað hentar hverjum
og einum. Það er mikilvægt að treysta
ekki á Tiktok í blindni þegar kemur að
notkun teips.
Þau sem vantar ráð geta meðal
annars haft samband við Trans Ísland
og Sam tökin ‘78.
Brjóstahaldarainnlegg:
Brjóstahaldara innlegg geta glatt þau
sem vilja vera með sýnileg brjóst. Hinn
klassíski push-up brjósta haldari getur
gert mikið en fólk getur líka orðið sér
úti um inn legg úr sílíkoni eða svampi.
Þau koma í öllum stærðum og gerðum
því það er einstaklings bundið hvaða
stærðir, lögun eða litir henta fólki.
Það eru til lítil inn legg sem fara undir
lítil brjóst til að lyfta þeim upp en svo er
líka hægt að fá innlegg sem eru löguð
eins og heil brjóst (e. breast forms). Þau
eru í einhverjum tilfellum hægt að setja
innan í brjósta haldara eða í sér staka
vasa en önnur er hægt að líma á bring-
una, þá einnig með lími sem er gert
fyrir húð, annað getur beinlínis verið
hættulegt.
Tæki og tól Samantekt og texti:
Kristmundur Pétursson