Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2023, Blaðsíða 64
64
Einungis 25% mæðra og 15% feðra í Póllandi
samþykkja trans börn sín. Trans einstaklingar
mæta köldum veru leika þar sem ofbeldi og
óréttlæti er orð ið viðtekin venja.
Baráttan fyrir lagalegri viður kenn
ingu og samþykki trans einstaklinga
í Póllandi
Löggjöfin í Póllandi er ein mesta fyrir-
staðan þegar kemur að réttindum
trans fólks. Ferlið til að fá kynvitund
sína lagalega viðurkennda er flókið,
langt og smánarlegt. Ein stak lingum
er gert að fara í gegnum íþyngjandi
og niður lægjandi ferli þar sem sjálfs-
virðing og sjálfsviðurkenning er mark-
visst fótum troðin. Lagaleg breyting
á kyn skráningu í Póllandi fer þannig
fram að einstaklingur verður að fara
í mál við foreldra sína til að fá skrá-
ning unni breytt. Þetta er hins vegar
ekki einvörðungu lagalegt vandamál
heldur einnig sam félagslegt. Trans
einstaklingar í Pól landi þurfa að þola
daglegt ofbeldi, útilokun og höfnun.
Fátt stjórn mála fólk í Póllandi hefur
barist fyrir rétt indum minnihlutahópa
og fyrsti opinberlega samkynhneigði
stjórnmála maður inn er Robert Biedroń.
Hann kom opin berlega út sem sam-
kyn hneigður árið 2001 þegar hann var
meðlimur í Her ferð gegn hómó fóbíu
(KPH). Þetta kjarkmikla skref hans
var ekki ein göngu per sónu legt heldur
sendi það þau skila boð til sam félagsins
að stjórnmálafólk gæti verið opið og
einlægt með kyn hneigð sína.
Áhrifin sem Biedroń hafði á LGBTQ+
samfélagið í Póllandi með því að koma
út úr skápnum voru gríðarleg. Hann
vakti von í brjósti margra og varð
upp spretta innblásturs. Hann sýndi
fram á að velgengni í stjórn málum
væri möguleg burt séð frá kyn hneigð
einstaklingsins og að umfram allt væri
mikilvægt að vera sjálfum sér trúr á
öllum sviðum lífsins. Árangur hans og
for dæmi varð til þess að auka viður-
kenningu og skilning í samfélaginu.
Það er nánast ómögulegt að tengja ekki
sögu hans við Harvey Milk, fyrsta opin-
berlega samkynhneigða ein stak linginn
sem var kjörinn til embættis í San
Fran cisco, sem barðist fyrir réttindum
LGBTQ+ fólks í Bandaríkjunum. Sem
leiðtogi Herferðar gegn hómó fóbíu
beitti Biedroń sér á ýmsan hátt gegn
mis munun og fyrir auknum jöfnuði.
Hann stuðlaði að fræðslu í sam félaginu
og kom á fót stefnu mótunar vinnu
með það að markmiði að brjóta niður
staðalímyndir og auka skilning. Þessi
vinna hans skilaði meiri stuðningi
almennings við LGBTQ+ einstak linga
ásamt því að breyta viðhorfum og
stefnum í Póllandi.
Brautryðjandi í jafnréttismálum og
samfélagslegum breytingum
Biedroń byrjaði stjórnmálaferil
sinn 2011 þegar hann var kosinn
borgarstjóri í Slupsk. Hann naut
mikillar hylli í em bætti sínu árin 2014-
2018 fyrir fram sæknar lausnir á borð
við fríar al mennings samgöngur fyrir
eldri borgara og námsmenn og fyrir
að ryðja úr vegi hind runum í ný-
sköpun og frumkvöðlastarfsemi.
Árið 2019 stofnaði Robert Biedroń
stjórnmálaflokk, Wiosna (Vor), sem
berst gegn misrétti og stendur vörð um
mannréttindi, kynjajafnrétti og réttindi
LGBTQ+ fólks. Sama ár tók Wiosna
þátt í kosningum til Evrópuþingsins og
hlaut eitt sæti. Í dag situr Biedroń
á Evrópuþinginu. Robert Biedroń
er eitt af stóru nöfn unum þegar
kemur að baráttu LGBTQ+ fólks í
Póllandi. Hugrekki hans, heiðar leiki og
staðfesta hafa verið öðrum hvatning,
bæði innan Póllands sem utan. Sem
fyrsti opinberlega sam kynhneigði
stjórnmálamaður Póllands hefur
Biedroń lagt lóð sín á vog ar skálarnar
í því að breyta sam félags gerðinni og
skapa opnara og jafn ara samfélag.
Árangur hans sýnir að baráttan fyrir
mannréttindum og rétt látara samfélagi
er möguleg og mikil væg og að styrk
og staðfestu þarf til að knýja fram
jákvæðar samfélags legar breytingar.
Staða LGBTQ+ fólks í Póllandi hefur
lengi verið umtöluð og valdið miklum
deilum. Þrátt fyrir ákveðnar framfarir
í mannréttindum á heimsvísu verður
samfélag LGBTQ+ fólks í Póllandi enn
þá fyrir fordómum og þarf að berjast
fyrir tilverurétti sínum. Eitt af því sem
haft hefur hvað mest áhrif á þá stöðu
eru aðgerðir stjórnmálaflokks að nafni
Lög og réttlæti (PiS). Síðan flokkurinn
komst til valda árið 2015 hefur hann
staðið fyrir innleiðingu stefnu og að-
gerða sem draga úr rétt indum LGBTQ+
fólks. Stefna flokksins í mál efnum
LGBTQ+ fólks hefur margoft gengið
þvert á grunngildi jafn réttis og viður-
kenningar.
Mismunun með „LGBTlausum
svæðum“ og takmarkanir í kennslu
Ein af umdeildari aðgerðum flokksins
var stofnun hinna svokölluðu „LGBT-
lausu svæða“. Þrátt fyrir að vera
kynnt sem aðgerð til að vernda börn
fyrir meintum „sam kyn hneigðum
áróðri“ urðu þessi svæði vett vangur
mismununar og útilokunar. Mörg lítil
sam félög lýstu því yfir að þau væru
„LGBT-laus svæði“ sem hafði mjög
neikvæðar afleiðingar fyrir sam kyn-
hneigða, tvíkynhneigða og trans fólk
og stuðl aði að andúð og umburðar-
leysi í garð þeirra. Önnur mjög umdeild
aðgerð sem PiS stóð fyrir sneri að
breytingum á mennta kerfinu. Nýjar
við miðunar reglur fyrir kennara voru
settar sem tak mörkuðu umræður um
LGBT-tengd málefni í skólum. Þetta
kom í veg fyrir að hægt væri að bjóða
upp á öruggt rými fyrir LGBT-nemendur
og gerði alla kennslu um fjölbreyti leika
kynhneigðar og kyntjáningar mjög
erfiða.
Áhrif Laga og réttlætis á stöðu LGBT
fólks má einnig sjá í lagabreytingum.
Árið 2020 lagði flokkurinn fram frum-
varp um að banna miðlun á LGBT
hugmyndafræði. Frum varpið var
gagnrýnt af alþjóðastofnunum og
ýmsum baráttuhópum fyrir bættum
mannréttindum sem litu á fram lagn-
ingu þess og samþykkt sem brot á
mál frelsi og hreina og klára mis munun.
Stefna flokksins og aðgerðir hafa
skapað andrúmsloft fullt andúðar og
óþols gagnvart LGBT samfélaginu
í Póllandi. Einstaklingar innan þess
samfélags verða fyrir útskúfun, mis-
munun og ofbeldi. Fjöldi samtaka
og aðgerðasinna, þar á meðal
Robert Biedroń, halda áfram barátt-
unni fyrir réttindum LGBT fólks og
boða hugmyndafræði jafnréttis og
viðurkenningar.
Höfundur: Magdalena Lukasiak
HINN PÓLSKI
HARVEY MILK
Þýðandi: Ragnar Veigar Guðmundsson