Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2023, Blaðsíða 33
33
S
tj
ör
n
us
pe
kihornið
Ferð okkar í gegnum lífin og
himin tung lin er eins og skóli.
Við stígum skref í gegnum
hvert ein asta merki og áttum
okkur á hver við erum í raun.
Hrútur
Þemalag: Queen Princess of the Universe
Að lokum þurfum við öll að full orðn-
ast, líka hrúturinn. Hættu að finna
þér óvini og óværur og njóttu líðandi
stundar, með bjór í hönd að horfa á
Gleðigönguna. Heimurinn hefur upp
á svo mikið að bjóða, góðan mat,
góðar stundir og gott fólk. Stundum
er bara allt í lagi að slaka á heima
með kynlífstæki og bara njóta. Hvort
sem er eitt eða fleiri. Þegar hrúturinn
fullorðnast áttar hann sig á að nautnir
heimsins eru margvíslegar og að með
samvinnu er hægt að fá svo miklu meira
áorkað, eitthvað sem þú gast ekki séð
í þeim glundroða sem þú upplifðir í
æsku þinni. Eins og mörg börn þá sást
þú ekki skilin milli þín og annars fólks
og áttir því mögulega til að særa aðra
óþarflega með hrottaskap. Stundum er
bara fínt að loka sam félagsmiðlunum
og snerta grasið smá.
Nú er tími til kominn að stíga báðum
fótum á jörðina og jarðtengja sig.
Leyfa sjálfri þér að byggja framtíð og
feril sem þú getur verið stolt af og inn
í framtíðina.
Naut
Þemalag: Die Antwoord Rich Bitch
Þú hefur mögulega notið alls þess sem
nær um hverfið hefur upp á að bjóða.
Þú hefur byggt þér gott heimili, keypt
eitthvað Ittala-drasl sem heiminum er
sama um eða safn af sultu krukkum
til að drekka úr og byggt þægi lega
búbblu í kringum þig þar sem þú getur
hvílt með ástfólki þínu. Núna er aftur
kominn tími til að sprengja þá búbblu og
hleypa sjálfum þér út í lífið. Al heimur inn
er nefnilega svo miklu stærri en þessir
örfáu fermetrar sem þú kallar heimili.
Tvíburi
Þemalag: Ke$ha Die Young
Þú hefur ferðast víða um heiminn,
daðrað við allt kvikt, og fundið að
það getur verið gífurlega þreytandi
að ferðast um með grímu til að
fela sig á bak við. Svo þreytandi að
mögulega þarftu bara að finna þér gott
skjól og byggja eitthvað veraldlegt.
Eitthvað sem gefur þér tækifæri til
að festa rætur og kynnast þínum
eigin tilfinningum betur. Finna jafnvel
eitthvert kvár til að kúra upp við í hreiðri
þínu. Því í hvirfilbyl lífsins hefur þú áttað
þig á hversu einmana þú
ert í raun.
Krabbi
Þemalag: Erasure A Little Respect
Ertu ekki þreytt á heimilislífinu og því
að sjá ekki hinn stóra heim í allri sinni
dýrð? Ertu ekki þreytt á að fólk líti fram
hjá þér á meðan þú gerir allt sem gera
þarf? Ertu ekki bara andskoti þreytt?
Þú hefur verið ötul og góð í gegnum
árin, áratugina ef ekki bara lífin, og
það er kominn tími til að fá að njóta
sviðsins. Leyfðu þér bara að taka
pláss. Ef einhver á það skilið ert það
þú sem hefur stritað baki brotnu á bak
við tjöldin, ævi eftir ævi á meðan aðrir
njóta. Þú þarft að horfast í augu við að
þú berð ekki ábyrgð á öllum þeim sem
þú elskar, bara sjálfri þér.
Því þú átt svo miklu betra skilið. Þú átt
að fara á dansgólfið og láta taka eftir
þér. Þú átt skilið að vera hin skæra
stjarna sem allir horfa á. Þú þarft bara
að leyfa þér það.
H
el
A
da
Ef þú leyfir þér að hanga í þínu ör ugga
um hverfi þá munt þú rotna eins og
viku gamalt samloku brauð. Sálin þarf
að láta ögra sér og sækja innblástur
frá alheiminum. Þú þarft að uppgötva
annað fólk og aðra staði, og á endanum
átta þig á hvar þú ert í heildarmyndinni.
Ef þú þráast við mun enginn vilja þig
nema mölflugurnar í skápnum þínum.
Þú munt heldur ekki vita hver þú ert,
sem er það versta.
Þetta kann að hljóma grimmi lega en
ég skrifa þetta því ég veit að þú hefur
svo margt upp á að bjóða hinum stóra
heimi. Þetta þung lyndi sem sækir að
þér er í raun syst kini óttans: að þora
ekki út fyrir boxið sem þú hefur byggt
þér. Þess vegna er kominn tími til að
segja skilið við boxið, því við erum öll
dauð þreytt á helvítis boxinu.
Þú ert líka sek um fullt af hálfkláruðu
dóti sem liggur bak við þig eins og
herbergi táningsstráks. Búið að vinna
þig í gegnum meðlimaskrá Samtakanna
‘78 og mögulega særa nokkur. Það
má eiginlega segja að núna sé komið
að skuldadögum og þú þurfir að þrífa
inni hjá þér. Úr brunarústum rísa alls
konar hlutir og það sem áður var brotið
verður að einhverju nýju. Það verður
ekki það sama og áður en í því liggur
skemmtigangan í átt að einhverju nýju
og æðislegu.