Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2023, Qupperneq 24

Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2023, Qupperneq 24
24 Steindór Sigurjónsson 37 ára, hann Hver er þín íþróttasaga? Ég er alinn upp í fótbolta. Frá 6 ára aldri, með kannski smá fríum inn á milli sem var ekki oft, hef ég æft og spilað með knattspyrnufélaginu Sindra á Höfn. Ég fór á Pollamót á Laugarvatni og á þeim tíma var mjög stórt að fá að hitta Loga Ólafsson þar sem hann var landsliðsþjálfari Íslands. Þessi ár sem ég var að spila og alast upp þá unnum við alltaf leikina okkar á móti liðunum á Austurlandi og vorum við mjög stór og góður árgangur. Svo í seinni tíð þegar maður hugsar til baka þá eru það svona nokkrir hlutir sem standa upp úr, eins og Pollamótið sem var haldið þá og svo þegar ég var í 4. flokki tókum við þátt í fyrsta ReyCup-mótinu sem haldið var. Það eru nokkur ár síðan það var og vorum við mjög stoltir yfir því að fá að taka þátt þar sem þessi mót eru mikið breytt í dag. Svo á ég nokkra leiki að baki í meistaraflokki Sindra og maður gleymir aldrei þegar maður skorar fyrsta markið sitt. En það skemmtilegasta í þessu eru öll gay fótboltamótin sem ég hef farið á, þau eru eitthvað í kringum tíu held ég. Ég hef misst af nokkrum flottum eins og þegar Styrmir, liðið okkar, fór til Argentínu. Ég hef eignast góða vini úti um allan heim á þessum mótum og er enn í góðum samskiptum við þá. Einnig vil ég nefna að fá að keppa á Evrópumótum, heimsmeistaramótum og svo er GayGames mér mjög minnisstætt. Í gegnum þennan vinskap hef ég fengið að spila með öðrum hommaliðum frá t.d. Stokkhólmi, Kaupmannahöfn, Hamborg, Leeds og Fort Lauderdale, og svo hafa önnur lið boðið mér að taka þátt líka en ég ekki enn haft tækifæri til að spila með þeim. Ég á enn eftir að vinna gull á þessum mótum en silfur og brons getur maður ekki verið ósáttur við. Það síðasta, og eitt af þeim afrekum sem ég er stoltastur af, er að árið 2021- 2022 var ég aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla hjá Sindra og í fyrra tókum við okkur til og unnum 3. deildina. Eftir það afrek og eftir mikið álag og ferðalög ákvað ég að taka mér frí frá þjálfun. Stefán Þór Sigurðsson 20 ára, hann @stefan_ths Hver er þín íþróttasaga? Ég æfði fimleika og listskauta þegar ég var lítill krakki, byrjaði síðan að æfa klifur hjá Klifurfélagi Reykjavíkur ellefu ára. Ég er stoltastur af því að hafa unnið Íslandsmeistaratitilinn bæði árin í 18-19 ára flokki og lent í 3. sæti í fullorðinsflokki 2023. Í útiklifri er ég stoltastur af því að hafa klifrað leiðina Föðurlandið (5.13c) sem var erfiðasta leið á Norðurlöndunum þegar hún var boltuð. Antonía Arna, 36 ára, hún/hín Hver er þín íþróttasaga? Bardagaíþróttir. Uppgjafarglíma. Mjölnir MMA. Áttu skemmtilega sögu af þér í íþróttum sem tengist hinseginleikanum? Áður en ég kom út lifði ég tvöföldu lífi og þóttist vera harður gaur í kringum æfingafélagana en klæddist kvenmannsfötum og málaði mig þegar ég var í öðru umhverfi. Einn daginn komst yfirþjálfarinn að því að ég væri trans og bauð mig velkomna eins og ég er. Ég brotnaði saman og fór að gráta fyrir framan æfinga- félagana. Eftir það hætti feluleikurinn og ég hóf kyn- leiðréttingarferli. Ég vonast til að keppa í kvennaflokki þegar ég er tilbúin.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.