Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2023, Page 45

Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2023, Page 45
45 Gjálífi og gæluapi Rithöfundurinn Ruth Marga rete Roellig lifði líka og hræðist í hin segin sam félagi Berlínar borgar á milli stríðs árunum. Hún bjó í Schöneberg, sem var eins konar mið punktur hinsegin sen unnar, með unnustu sinni Eriku og gælu apa og skrifaði ljóð og sögur í les bísk tíma rit sem hétu nöfnum eins og Frauen- liebe („Ást kvenna“) og Die Freundin („Vinkonan“). Roellig var líka tíður gestur á lesbíu stöðum hverfis ins. Í upphafi þriðja ára tugarins voru að minnsta kosti fjöru tíu hinsegin barir af ýmsu tagi í Berlín, knæpur og klúbbar. Um miðbik ára tugarins voru þeir orðnir átta tíu hið minnsta og þeim fjölgaði enn meira þegar á hann leið. Þegar einn lokaði opnaði annar jafn óðum og það eitthvað fyrir alla. Flóran var slík að það þurfti sérstaka leiðar vísa um nætur lífið. Berlín var enda orðin að vin sælum viðkomu- stað hinsegin ferða fólks frá öðrum löndum og þannig þurftu gestir ekki að óttast að fara á mis við bestu staðina. „Þótt talað hafi verið um Lund únir og París sem borgir leyndar dóms fullra dá semda hefur Berlín löngu tekið fram úr þeim hvað þetta varðar. Hér er hverjum gefið tæki færi til að gleðjast á sinn hátt og allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi,“ skrifaði Roellig í bókinni Lesbískar konur Berlínar, leiðarvísi um Berlínar- borg fyrir hinsegin konur sem hún gaf út árið 1928. „Hofgyðjur Saffóar geta líka fundið sína staði, þangað sem þær geta flúið borgara legar sið venjur og glaðst á sinn eigin máta.“ Í bókinni skrifar Roellig um fjórtán lesbíu kaffi hús, -bari og -dans staði í Berlín. Þar má nefna staði eins og pöbb inn Mickimaus í Schöneberg (fyrsta teiknimynd Disneys um músina Mikka kom út 1928 og vakti greinilega strax hylli þýskra lesbía) þar sem vert að nafni Cläre bauð upp á notalegt andrúms loft fyrir allar „vinkonur“ og góðan bjór á góðu verði. Ekki langt undan var svo barinn Mali und Igel, sem vertarnir og parið Amalie „Mali“ Rothaug og Elsa „Igel“ Conrad ráku og nefndu eftir sjálfum sér. Elsa var kölluð Igel eða „Brodd göltur“ því hún var með stutt hárið greitt í brodda. Lesbísk hártíska hefur víst lítið breyst í ára- tuganna rás. Á Dorian Gray — nokkuð hýrt nafn það — kom hin segin fólk af öllu tagi. Þar var boðið upp á ljúfa tón list, þægi- lega stóla og fjöl breytta skemmti- dagskrá á kvöldin. Á miðviku dögum var sadó masó-kvöld, svo dæmi sé tekið. Á Dorian Gray hittist líka rit- stjórn Frauenliebe og klúbbar les bískra kvenna. All nokkrir slíkir voru starf- ræktir í Berlín á þessum tíma (form- lega kallaðir því settlega nafni „dömu- klúbbar“) og stóðu þeir fyrir böllum, kaffi húsa kvöldum, fyrir lestrum og ýmiss konar dag skrá. Einn virkasti „dömu- klúbburinn“, Violetta, státaði árið 1926 af um 400 með limum. Violettu-konur fóru í tungl skins siglingu á Speer og á sum rin tók klúbburi nn strand hótel á leigu. Þangað streymdu konur og sól- uðu sig og syntu á daginn og dönsuðu og skemmtu sér á kvöldin. Kynusli og kynlegir kvistir Þekktasti og alræmd asti staðurinn í hin segin nætur lífinu í Berlín Weimar- lýðveldisins var óneitanlega kabarett- klúbbur inn Eldorado. Þar var dansað og sungið og drukkið sem víðar en aðals- merki Eldorado var kyn uslinn: þangað kom og tróð upp margt trans fólk og kyn segin og drag drottn ingar og klæð- skiptingar af öllum kynjum. Slagorð klúbbs ins sem stóð stórum stöfum fyrir ofan aðal dyrnar var „Hér er það rétt!“ — kannski nokkuð gáska full stað hæfing fyrir svo snar öfugan stað. Stuðið á Eldorado — og allir þeir kyn- legu kvistir sem þar skemmtu sér — varð svo víð frægt að á staðinn kom líka „venjulegt“ gagnkyn hneigt fólk til að berja dýrðina augum. Mörgum í hin segin senunni í Berlín þótti í raun nóg um fjölda forvit inna túrista á stað- num og þau leituðu því á minni og lítt þekkt ari klúbba. Þetta er vanda mál sem hinsegin fólk úti á lífinu þekkir vel enn í dag. Í einni „almennri“ breskri ferða bók um næturlíf Berlínar borgar var (karlkyns) lesend anum þó alfarið ráðið frá því að hætta sér á Eldorado. En þyrfti hann endi lega að fara — þá mætti hann alls ekki taka eigin konu sína eða systur með! Lýsingar á Eldorado má finna í verkum er lends hin segin lista fólks sem sótti Berlín heim á þessum tíma í leit að inn blæstri og stuði — og strákum, eins og breski rit höfundur inn Christ opher Isher wood viður kenndi fúslega. „Berlín þýðir strákar,“ skrifaði hann en hann dvaldi mikið í Berlín á þessum tíma ásamt vini sín um og kollega W.H. Auden, sem sjálfur lýsti Berlínar borg sem „paradís hommans“. Skrif Isher woods af Ber línar lífinu urðu svo inn blástur söng- leiksins Kabarett. M yn d 1
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.