Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2023, Síða 51

Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2023, Síða 51
51 No Place Like Home Ég get ekki verið með meðmæla horn nema mæla með hlaðvarpi. No Place Like Home fjallar um eitt skóparanna sem Judy Garland notaði í Galdra- karlinum í OZ árið 1939. Stjórn endur þáttanna fara með okkur yfir sögu skónna og hvernig þeim var rænt árið 2005. Nýlega fannst þjófurinn og var hann dæmdur fyrir að hafa stolið þessum merkisleikmunum. Skemmti- legir þættir fyrir true crime-fíkla eins og mig. Love That Story Í tíu köflum fer Jonathan Van Ness meðal annars yfir hvernig hán hefur lært að takast á við ástarsorg, hvernig það er að lifa sem HIV-smitaður ein- staklingur og segir transfóbum til synd anna. Jonathan, rétt eins og Billy Porter, les sjálft bókina, þannig að mér fannst stundum eins og hán væri heima hjá mér uppi í sófa að segja mér þessar mögnuðu sögur yfir freyðivíni og ostum. Þetta er hressandi, fyndin og sorgleg bók sem skilur eftir sig innblástur til að vilja halda áfram að gera heiminn að betri stað. Heartbreak High Ef þið eruð ekki búin að hámhorfa á Heartbreak High þá eigið þið von á góðu. Þetta eru sjónvarpsþættir sem ráðvillti og hinsegin unglingurinn sem ég var hefði líklega horft á oft og mörgum sinnum. Ástralir kunna að gera gott sjónvarp. Persónur þátt- anna eru marglaga og spennandi. Fyrir mitt leyti verð ég að segja að þótt SKAM séu enn algjörlega mínir uppáhaldsunglingaþættir þá ná þau í Heartbreak High að gera þætti sem fengu mig til að vilja sjá meira og meira. Billy Porter Unprotected Síðustu misseri hef ég verið að sökkva mér niður í hljóð bækur og mikið sem ég get mælt með sjálfs ævisögu Billy Porters. Hann les bók ina sjálfur sem gerir hlustun ina enn persónulegri og drama tískari. Ævisaga hans er mögnuð og fékk mig til að hlæja og gráta, stundum bæði á sama tíma. Þvílíkt talent og þvílík fyrirmynd. The Circle Alert! Já ég viðurkenni það ég elska The Circle. Frá því að Survivor kom út hef ég alltaf verið spenntur fyrir raunveruleikasjónvarpsþáttum. Það hefur reyndar komið í bylgjum hjá mér og þessa dagana er ég að háma í mig the Real Housewives of everything (jebb ég er að safna húsmæðrum frá flestum borgum heims). Nema hvað, það er eitthvað við hvernig The Circle er sett upp og hvernig framleiðendum tekst að gera þættina spennandi, fyndna og stundum alveg fáránlega sem sogar mig inn. Það sem mér þykir líka vel gert í þáttunum er að þau hafa náð að hafa fjölbreyttari hóp fólks í þáttunum en í langflestum öðrum raunveruleikaþáttum sem gerðir eru. Unnsteinn Jóhannsson er hinsegin sam- félaginu að góðu kunnur, enda víð förull og skilur hvarvetna eftir sig gleði og glimm e rslóð. Þó hann eldist ör lítið með hverju ári er hann þó enn í takti við sam- tímann, hlustar á hlað vörp og horfir á alla vin sælustu og mikil væg ustu þættina. Aðdáendur Unnsteins treysta á að hann mæli með gæð a efni í Tímar iti Hinsegin daga og hann veldur þeim ekki von- brigðum þetta árið frekar en þau fyrri. Dægurhorn Unnsteins
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.