Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2022, Síða 2
Fegurð í
frelsi
Beauty of freedom
Velkomin á Hinsegin daga í Reykjavík
Welcome to Reykjavik Pride
Enn á ný fögnum við Hinsegin dögum
í Reykjavík. Yfirskrift ársins, fegurð í
frelsi, er fengin að láni úr lagi Lay Low,
Með hækkandi sól, sem var framlag
Íslands í Eurovision í ár. Yfirskriftin
vísar ekki bara til frelsisins til að hittast
á ný og sameinast eftir einsemd
og einangrun síðustu tveggja ára
heldur einnig fegurðarinnar sem er
fólgin í frjálsu, fjölbreyttu mannlífi.
Frelsið hefur einmitt verið hinsegin
samfélaginu hugleikið lengi en fyrir
að verða þremur áratugum gengu
kjarkaðir hinsegin einstaklingar
einmitt frelsisgöngur
um götur Reykjavíkur
og kröfðust sjálfsagðra
mannréttinda „í þjóðfélagi
sem hatar þá”, eins og
skáldið sagði.
Þó að margt hafi áunnist
á síðustu árum þá vitum
við samt að enn í dag fær
fegurðin ekki að njóta sín
til fulls. Fullu frelsi hefur ekki
verið náð og á hverjum degi
er vegið að fegurð og frelsi
hinsegin fólks, bæði hér heima
og erlendis. Okkur setti hljóð í
júnímánuði þegar hinsegin fólk
var myrt fyrir utan skemmtistaðinn
London Pub í Osló, enda er árás á
eitt okkar árás á okkur öll. Á sama
tíma berast ógnvænleg tíðindi
af auknu áreiti og ofbeldi í garð
hinsegin fólks hér á Íslandi. Þessi
skýru merki um bakslag í baráttu
okkar fyrir sjálfsögðum réttindum
og virðingu verður að taka alvarlega
og bregðast við án tafar. Áfram þarf
að stoppa í göt löggjafar til verndar
hinsegin fólki og efla þarf fræðslu í
samfélaginu öllu til muna.
Þá skipta sýnileiki, fyrirmyndir og
söguskráning sköpum nú sem fyrr en
þar leika Hinsegin dagar og tímarit
þetta lykilhlutverk. Á Hinsegin
dögum fá hinsegin saga, menning
og listir, hinsegin fólk og baráttumál
þess, loks að njóta sín. Þá hefur
tímarit Hinsegin daga um árabil
verið eina reglubundna útgáfan um
hinsegin sögu og samfélag. Sögulegt
gildi hvers tölublaðs er því gríðarlegt.
Við tökum hlutverki okkar af ábyrgð
en leggjum nú tímarit þetta og
dagskrá Hinsegin daga 2022 með
stolti í þínar hendur.
Gleðilega Hinsegin daga!
Gunnlaugur Bragi Björnsson,
formaður Hinsegin daga
Bjarndís Helga Tómasdóttir,
ritstjóri tímarits Hinsegin daga