Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2022, Blaðsíða 5
Kveðja frá Elizu Jean Reid, forsetafrú
Greetings from the First Lady of Iceland,
Eliza Jean Reid
Kæru hinsegin vinir
Ég vil gjarna trúa því að Ísland sé
jafnréttissamfélag þar sem öll fá að
njóta sín. Samfélag sem viðurkennir
takmarkanir sínar og vinnur af heilindum
að því að bæta um betur. Engu að síður
er það staðreynd að baráttunni fyrir
lagalegum réttindum hinsegin fólks er
enn ekki lokið hér á landi. Enn þurfum
við að berjast gegn fordómum og hatri
og því miður er enn ekki sjálfgefið að fólk
geti lifað eigin lífi án áreitis.
Utan landsteinanna sjáum við
uggvekjandi þróun þar sem vegið er að
grundvallarmannréttindum í sumum
nágrannalöndum okkar og í öðrum er
beinlínis ráðist gegn tilvistarrétti hópa
í hinsegin samfélaginu. Öll erum við
líka slegin eftir hryðjuverkaárásina hjá
nágrönnum okkar í Osló. Þessir atburðir
eru hryggilegir, en hljóta líka að brýna
okkur enn frekar í baráttunni. Við verðum
að láta í okkur heyra og berjast fyrir
réttlátu samfélagi og við verðum að
tryggja að raddir allra heyrist.
Ég sé ykkur. Ég stend með ykkur. Við
erum ótalmörg sem styðjum við bakið á
ykkur.
Ég hlakka líka mikið til að taka þátt í
gleðinni á Hinsegin dögum í ár, eins
og alltaf, til að fagna þessu dásamlega,
fjölbreytta og skemmtilega samfélagi.
Baráttukveðja,
Eliza
Dear friends in the queer community –
I like to believe that Icelandic society is an
inclusive one, one that acknowledges our
imperfections and works to improve them. Yet
here too, the fight for the queer community to
have all rights enshrined in law, to live without
prejudice and hatred, to live authentically, is
an ongoing struggle.
Away from our shores, the recent terrorist
attack in Oslo, the ongoing chipping away of
fundamental rights in many other nations,
and the outright efforts of many others to
criminalize members of the queer community
are demoralizing, but also galvanizing. We
must all stand up for what is right and to
make sure all voices are heard.
I see you. I stand with you. I support you. So
many others do too.
I am looking forward to taking part in
Reykjavik Pride festivities this year, as always,
to celebrate this loving, diverse, and fun
community.
Yours in solidarity,
Eliza Reid
5