Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2022, Síða 19
með þér. Þú þarft ekki alltaf að vera sterka
manneskjan og stundum er allt í lagi þótt
þú sért tilfinningarík og berskjölduð.
Frægir krabbar: Gunnlaugur Bragi
Björnsson, Jaden Smith, Jane Lynch,
Lana Wachowski
MEYJA
Ég var að hugsa um að segja eitthvað vont
um þig, elsku meyja, en svo mundi ég eftir
því að þú ert að öllum líkindum alltaf valin
til að vera ritari eða gjaldkeri og hýðir þig
sjálft bak við luktar dyr.
Eitt sem ég veit að þú vilt ekki að aðrir viti:
Þú ert í raun og veru fokking frík. Þú ert
músin sem laumast meðfram veggjunum
sem umlykja dansgólfið en um leið og
finnur traust með annarri manneskju
birtist oft einhver latex klædd skepna
sem enginn bjóst við.
Það er líka bara allt í lagi að vera svona
villt og ég mæli eindregið með að þú
temjir þér að leyfa dýrinu að ganga lausu
reglulega því það er engum hollt að
halda öllu þessu inni.
Get ég annars fengið símanúmerið hjá
þér? Þarf nefnilega einstakling til að
hjálpa mér með bókhaldið.
Frægar meyjur: Blu Del Barrio, Marsha
P. Johnson, Vera Illugadóttir, Lady
Zadude, Hörður Torfason
SPORÐDREKI
Þú átt svolítið erfitt í þessum heimi, það
eru miklar tilfinningar sem bærast um
í hjarta þínu ásamt helvíti erfiðu karma
sem fær þig til að stinga alla í kringum
þig sama hvort það eru vinir eða óvinir.
Það eru bara ekki allir sem vilja þér illt
og þú þarft að róa þig áður en þú hrekur
fólk endanlega frá þér. Þú þarft bara að
taka smá Netflix og tjill og fá kannski eitt
naut með þykkan skráp með þér í fjörið.
Jafnvel steingeit ef þú ert með einhver
foreldra-issues sem þú þarft að vinna
þig í gegnum og vilt vera smá bottom í
sambandinu. Þú gætir jafnvel lært hitt og
þetta um sjálft þig.
Því innst inni ertu smá frík. Frík sem á
ekkert að fela sig. Frík sem á bara að leyfa
sér að vera fríkí og hafa gaman af lífinu.
Frægir sporðdrekar: Jodie Foster,
Anthony Rapp, RuPaul
BOGAKVÁR
Þið eruð glaumgosar og gleðigjafar sem
eruð alltaf að horfa á það sem er handan
næstu stjörnu. Engin bönd halda þér og
þú ert alltaf á hreyfingu, hvort sem það
er í holdsins heimi eða huga.
Þú ert líka bjáni. Grade-A bjáni.
Þú ert manneskjan sem flissar í
jarðarförinni yfir þinni eigin hótfyndni.
Þú ert bjáninn sem byrjar að hlæja að
einhverju random drasli meðan þú ert
að kaupa frosinn kjúkling. Því fyrir þér er
lífið einhvers konar brandari sem enginn
skilur nema þú. Lífið er náttúrlega bara
leikbrúðusýning í anda Brúðubílsins.
LJÓN
Veistu, við vitum alveg að þú ert rosa
fabúljös og að þú ert mögulega barnabarn
bresku konungsfjölskyldunnar úr annarri
vídd. Við erum bara smá þreytt á að hrósa
þér því stundum er eins og það sé aldrei
hægt að hrósa þér nóg. Þú ert nefnilega
svolítið frekt á sviðsljósið og okkur er bara
orðið frekar kalt á meðan þú situr þarna
eitt og nýtur birtunnar/sviðsljóssins.
Við viljum samt ekkert hrekja þig í burtu.
Þegar þú keyrir áfram af fullum krafti þá
ertu eins og stórstjarna á leið í gegnum
vetrarbrautina. Gallinn er bara sá að það
er hætta á að brenna sig ef man fer of
nálægt.
Þess vegna selur þú alltaf meira þegar
þú temur þér aðeins meiri auðmýkt. Við
erum nefnilega svolítið ginnkeypt þegar
stórstirni eins og þú sýnir auðmýkt á
dansgólfinu og leyfir okkur að vera með.
Hefur eitthvað með hunang og býflugur
að gera skilst mér, en hvað veit ég.
Fræg ljón: Madonna, Gillian Anderson,
Anna Paquin, Sigga Beinteins
VOG
Þú ert fætt pólítíkus og átt til að vera
álíka leiðinlegt. Fá merki nenna að setja
sig í spor annarra eins og þú, en þú vilt
líta gaumgæfilega á öll mál frá öllum
hliðum. Það er samt ekki sætt og á
einhverjum tímapunkti þarftu að velja
þér hlið og standa við hana því ef þú
gerir það ekki þá munu óprúttnir aðilar
nýta sér hlutleysi þitt til ills.
Ef þú værir hundur, sem þú gætir verið
ef þú stundar einhvers konar „puppy
play”, þá værir þú Golden Retriever. Þú
vilt að allir séu vinir. Þú ert svo mikið að
reyna að vega salt með öllum í kringum
þig sem er eiginlega ógerlegt. Kannski
er bara tími kominn á smá skammt af
raunveruleika og að átta sig á að lífið er
hundasvæði þar sem ekki öllum kemur
vel saman.
Ég ætla að gefa þér smá ráð: Að reyna
að gera alla ánægða og sætta alla getur
gert þig rosalega litlaust og það er fátt
dapurlegra en litleysi. Enda er fáninn
okkar regnbogafáninn en ekki svarthvíti
fáninn.
Frægar vogir: Matt Bomer, Ben
Wishaw, Julie Andrews, Jóhanna
Sigurðardóttir, Sandra Sigurðardóttir
19