Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2022, Blaðsíða 20
Þetta er náttúrlega/auðvitað ástæðan
fyrir því að þú ert hin besta sál og átt
allt hið besta skilið. „Consequences be
damned“, enda er það framtíðarvandamál
sem þú þarft ekkert að hugsa um þrátt
fyrir sviðna jörð að baki þér. Mundu samt
bara að hinsegin samfélagið er frekar lítið
þannig að þegar þú hefur brennt allar
brýr að baki þér þarftu helst að hoppa
upp í næstu þotu og fara eitthvert annað.
Höfundur er bogameri og neitar öllum
ásökunum um brenndar brýr.
Frægt bogafólk: Miley Cyrus, Britney
Spears, Sarah Paulson
STEINGEIT
Ef það væri til blæti sem einkenndi þig þá
væri það „Financial Domination”. Þú ert
manneskjan sem ert með báðar fætur á
jörðinni á meðan þú rukkar grimmt fyrir
störf þín.
Þú ert framkvæmdastjórinn í tilvistinni,
eða þú telur þig í það minnsta vera það,
og hikar ekki við að skipa öðrum fyrir eins
og versti harðstjóri. Þér finnst gaman að
siða vitleysinga og fáfróða til og jafnvel
núa þeim um nasir hversu mikið þú veist,
enda áttu til að vera fáránlega duglegt.
Þú ert líka merkið sem er líklegast
til að vera einhvers konar „Daddy” í
sambandinu, sama hvers kyns þú ert,
enda er engin manneskja nógu góð til
að halda utan um þessa ringulreið sem
samband hefur í för með sér.
Ef ég ætti eitthvað ráð handa þér, sem
ég veit að þú vilt ekki, þá er það að taka
í faðm þér þá ringulreið sem lífið hefur
upp á að bjóða og hætta að reyna að
stjórna því. Ef þú vilt stjórna einhverjum
þá færðu þér sub eða hund. Því lífið er
köttur og enginn skipar ketti fyrir.
Frægar steingeitur: Ugla Stefanía,
Siggi Gunnars, Ricky Martin, Wilson
Cruz
VATNSBERI
Þú ert bara fokking geimvera. Innst inni
þráir þú eitthvað venjulegt en gallinn er
að venjulegt verður bara aldrei nógu gott
fyrir þig. Enda kemur þú frá plánetu þar
sem kynlíf og ást eru afstæð hugtök sem
„basic bros and bitches“ stunda, ekki þú.
Þinn helsti styrkur er að þú ert frá annarri
plánetu. Á meðan þú afneitar þeim styrk
ertu alltaf að afneita hluta af sjálfi þínu.
Fyrir þér er þín mannlega húð lítið annað
en einhvers konar „gimp suit“ sem þú
klæðist meðan þú ert fast hér. Svona eins
og það að reyna að vera „mannleg vera”
sé einhvers konar blæti sem þú hefur
þróað með þér í gegnum aldirnar og það
að vera á þessum hnetti sé lítið annað en
risastórt geimveru BDSM partý. Ég satt að
segja skil ykkur ekki.
Þið eruð samt fínasta fólk og ef við getum
uppfyllt þetta mannlega blæti, „so be
it“. Mæli bara með að finna einhverja
dominant manneskju til að leiða þig í
reipi og þá ertu komin í gott partý. Því
innst inni vitum við að þú ert bölvað
bottom.
Frægir vatnsberar: Adam Lambert,
Portia de Rossi
FISKUR
Úff, fiskar. Þið eruð rosalega passívir en
á sama tíma rosalega erfiðir. Því þegar
straumurinn er á móti þér þá vilt þú
leiðrétta strauminn frekar en að átta þig á
því að mögulega hafir þú rangt fyrir þér.
Svona eins og einn fiskur sem er ósáttur
við hvert þjóðfélagið er að fara og þarf
því að öskra eins og gamall hvítur karl á
ský og bölva yfir trans fólki. Enda skilur
hann ekkert af hverju restin af hjörðinni
syndir fram á við á meðan hann er sáttur
við einhverja 60’s heimsmynd sem aldrei
var til.
Ástæðan samt fyrir þessu öllu saman er
að þú ert mikil tilfinningavera. Innra með
þér eru sterkar tilfinningar sem þú hefur
vægast sagt enga stjórn á og bærast
þar þangað til þær spretta út í söng eða
einhverju álíka. Sem er ástæðan fyrir að
mörgum kann að líka vel við ykkur, því
þessar tilfinningar eru oft uppspretta alls
konar fegurðar í söng, ljóðlist og bókum.
Ímyndunaraflið þitt er eins og hafið:
Djúpt og seiðandi og fullt af mögnuðum
hlutum.
Þú verður samt að átta þig á að
ímyndundaraflið er ekki allt og stundum
þarftu bara að drullast til að gera
húsverkin eins og við hin.
Frægir fiskar: Páll Óskar, Elliot Page,
Ruby Rose
20