Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2022, Blaðsíða 25
Veruleiki
hinsegin eldri
borgara
Hinsegin dagar! Hátíðin þar sem
við sameinumst um að fagna
mannréttindindum og umburðarlyndi
með fjölskrúðugri dagskrá, litasprengjum
og gleði. En einmitt þá er jafnframt tilefni
til að horfa til baka, að horfa til þeirra
sem ruddu brautina. Hvar eru þau stödd í
dag, brautryðjendurnir sem skópu þessa
gleðihátíð?
Þetta var fólk sem hafði mátt sæta
ofsóknum og lítillækkun samfélagsins
alla sína tilveru. Það þurfti mikið
hugrekki, áræðni og sannfæringarkraft
fyrir mannréttindum hinsegin fólks til að
stíga fram úr felum og neita að sætta sig
við útskúfun og forsmánun. En þau höfðu
baráttuþrek og sannfæringu um að við
værum öll jöfn og samfélagið væri fyrir
okkur öll.
Þetta er fólkið mitt. Þetta er mín kynslóð.
Ég man svo langt aftur þegar Hörður
Torfason kallaði saman á sellufund
lítinn hóp manna sem læddist inn í
litla íbúð í háhýsi í austurbænum í
skammdegisdrunganum til að ræða
stöðu sína og hugsanlega stofnun
baráttuhóps. Margir í hópnum höfðu
orðið illilega fyrir barðinu á fordómum og
hatri. Orðið fyrir barsmíðum, mismunun
á vinnumarkaði og sum hreinlega misst
bæði atvinnu og húsnæði fyrir það eitt að
vera hinsegin.
Þetta var veturinn 1977-1978. Það var
tekist á um hversu árennilegt það væri
að storka opinberlega svo fordómafullu
samfélagi með að bindast samtökum
um mannréttindi hinsegin fólks. Harðasti
kjarninn í þessum litla hópi stofnaði síðan
Samtökin ‘78. Full sannfæringar um að
ástin fari aldrei í manngreinarálit og ástin
sigri allt.
Jafnréttis- og mannréttindabarátta er
okkur öllum mikilvæg. Þá fyrst verður
hún lífsnauðsynleg þegar við sjálf verðum
fyrir misrétti.
Það hefur fyllt mig endurnýjaðri orku
og gleði að sjá hversu mikið hefur
áunnist í þessari mannréttindabaráttu
og ekki síst hversu margir hafa fundið
lífshamingju sína vegna baráttu fólksins í
Samtökunum ‘78.
Þetta er líka hreyfingin sem hefur
skapað skemmtilegustu og litríkustu
fjölskylduhátíð ársins. Hátíð sem
hefur til skamms tíma sprengt hvert
þátttökumetið á fætur öðru, ár eftir ár, í
Gleðigöngunni. En við lifum á fallvöltum
tímum og ekkert er gefið.
Það hefur verið gæfa Samtakanna að
stöðugt hafa nýjar hendur komið og
lagst á árarnar, þegar aðrar lúnari hafa
þurft á hvíld að halda og frá að hverfa.
Þótt við hin eldri séum orðin göngumóð
þá er það þó eðli baráttufólks að það
dregur sig aldrei alveg í hlé. Því það veit
að baráttunni er aldrei endanlega lokið.
Mannréttindi eru aldrei sjálfsögð í augum
alltof margra og við þurfum stöðugt að
vera viðbúin nýjum hatursáróðri. Nýjum
þvingunum. Vaktinni er aldrei lokið.
Okkar hinna eldri, kynslóðarinnar sem
hrinti af stað baráttunni, hvort sem við
vorum í fararbroddi eða fylgdum fast á
eftir, bíður núna nýtt hlutskipti og þar
með nýjar áskoranir.
Við erum flest orðin eftirlaunafólk í
dag. Helsta áskorunin er að máta sig
við tilveruheim eldri borgarans eins
og samfélagið hefur mótað hann.
Þar sem ekki hefur verið gert ráð fyrir
hinsegin eldra fólki. Okkar er að verða
enn á ný brautryðjendur, nú sem fyrstu
opinberlega hinsegin eldri borgarar
landsins.
Mörg í okkar hópi eru einhleyp og sum
farin að þurfa stuðning við daglegt líf og
þá þarf að leita á náðir þeirra sem veita
slíka þjónustu. Þá geta komið, í einu
vettvangi, hatrammar endurupplifanir
frá fyrri tíð þegar fólk er komið í þessa
viðkvæma stöðu og er upp á aðra komið
og þarf jafnvel að bjóða ókunnum inn á
heimili sitt, gefa sig þeim á vald, eða deila
húsnæði með ókunnu fólki. Þau eru sett í
þá stöðu að verða upp á náð og miskunn
þeirra sem þau verða að umgangast
án þess að hafa valið þau sem vini,
varnarlaus bak við luktar dyr. Geta orðið
útsett fyrir hvers kyns misrétti og ofbeldi;
andlegu, líkamlegu og fjárhagslegu.
Í þeirri stöðu kjósa sum að loka sig af,
einangra sig og afþakka þá aðstoð sem
þau eiga rétt á - því þau treysta ekki
samfélaginu. Treysta því ekki að það verði
ekki brotið á þeim - aftur. Það er brothætt
tilvera.
Því meint umburðarlyndi í samfélaginu er
veikt; brothætt. Afar brothætt.
Það sýnir okkur hraður uppgangur haturs
í okkar vestræna heimi, bæði í Evrópu og
vestanhafs. Þessar haturshreyfingar auka
fylgi sitt dag frá degi og færast nær okkur
með hverjum deginum. Mesta grimmdin
og taumlaust hatrið beinist nú að trans
fólki með skelfilegum afleiðingum.
En hversu lengi þurfum við að bíða þess
að hatrið og grimmdin verði allsráðandi í
garð hinsegin samfélagsins?
Baráttunni er svo fjarri lokið. Henni lýkur
aldrei. Gætum hvert að öðru. Sofum með
opin augu.
“The fragility of tolerance”
The generation of queer people that
started Samtökin ‘78 and paved the way
in the fight for queer rights in Iceland is
entering a new stage of life, the world of
the pensioner. This is a generation that
had been beaten, denied housing and
job opportunities for being queer, and
now they are getting on in age and need
assistance. It is a right they are entitled
to but the fact that it’s mainly provided
by strangers creates extra vulnerabilities.
Strangers need to be let into people’s
homes and trusted not to harm the person
they are tasked with assisting. Elderly queer
people might struggle to extend such trust
because they do not have faith in society
and realize that tolerance can be very
fragile. “The fight is far from over. The fight
is never over. We need to watch over each
other. Sleep with one eye open. “
Viðar Eggertsson
25