Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2022, Side 30

Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2022, Side 30
Helgi Þór: Nei. Svona … herrar, eins og pabbi þinn. Maður heldur að þeir séu siðblindir eða eitthvað en þeir eru bara latir og tillitslausir. Ekkert illir. Þeir kannski ætla að kaupa gjöf á sumardaginn fyrsta en finnst verð á leikföngum svo fáránlega hátt. Þannig að þeir ákveða að smíða eitthvað en svo nenna þeir því ekki. Nenna ekki að finna einhverja spýtu. Svo með samviskubit þegar þeir eru þunnir. Eftir að búið var að leggja ofangreint heimilishald í rúst lá leið Tyrfings í líkbrennslu og bakarí í sama bæjarfélagi. Helgi Þór rofnar er grískur harmleikur með skandinavísku yfirbragði, leikstjóri sýningarinnar var Stefán Jónsson. Við sögu koma kjúklingur í örbylgjuofni, jarðarfarir, bakari sem harðneitar að afgreiða súrdeigskjaftæði ofan í freka stelpuskjátu og auðvitað Helgi Þór sjálfur sem á erfitt með að finna sinn stað í lífinu. Tyrfingur leitaði aftur í myndlistina að innblæstri en í þetta sinn voru það verk Egons Schiele sem lituðu textann. Persónur verksins eru hverdagslegar en umfjöllunarefnið er það ekki. Hér á ferðinni leikrit um líf og dauða, fyrirgefningu syndanna og eilíft líf. Getur manneskja storkað örlögunum eða er hún fyrirfram dæmd? Eru spádómar hinn heilagi sannleikur eða framköllum við óafvitandi það sem fyrir var spáð? Harmleikur hversdagsins og leiðindi daglegs amsturs hafa sjaldan verið epískari. Fyrir Helgi Þór rofnar hlaut Tyrfingur Grímuverðlaunin fyrir besta leikrit ársins og Bureau des Lectures sem er kynningarstofa franska þjóðleikhússins, Comédie-Française, valdi það á lista yfir eftirtektarverðustu leikrit ársins 2021. Sjö ævintýri um skömm Amma Malla: Akranes! Það eina Nes í þessum heimi sem skiptir einhverju máli er mæjónes. Sjö ævintýri um skömm er nýjasta leikrit Tyrfings, hans stærsta hingað til og það fyrsta af verkum hans sem frumsýnt er á stóru sviði. Reyndar er þetta líka í fyrsta sinn sem leikrit eftir hann ratar á fjalir Þjóðleikhússins. Stefán Jónsson heldur hér sem fyrr um leikstjórnartaumana og leikhópinn skipa sum af fremstu leikurum þjóðarinnar: Ilmur Kristjánsdóttir, Hilmir Snær Guðnason, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, Kristín Þóra Haraldsdóttir, Eggert Þorleifsson og Kristbjörg Kjeld, sem auðvitað stelur senunni sem sú áleitna og raka kanamella Fanney. Í þetta sinn leitar Tyrfingur í minningasjóð fjölskyldu sinnar en föðuramma hans, amma Malla, birtist hér sem ein af aðalpersónunum. Eitt af mínum uppáhalds ævintýrum í sýningunni fyrir utan „Dauði heimilislæknisins úr skömm og aðkoma Ingu Briem konu hans að því máli öllu saman“ er ævintýrið „Bók um kúk“ sem gerist í brúðkaupi. Lögreglukonan Agla situr til borðs með kærustunni sinni, dýralöggunni og leikkonunni Hönnu, og foreldrum sínum. Á yfirborðinu virðist allt eðlilegt nema hvað Friðgeir, faðir Öglu, malar látlaust um væntanlega bók sína sem fjallar um ólíkar tegundir af dýrakúk, með myndum auðvitað. En undir niðri krauma átök sem birtast aðallega í gegnum móður Öglu, lögreglustjórann Eddu, leikin af Steinunni Ólínu. Atriðið hverfist um það sem er ekki sagt og hvernig hlutir eru sagðir – bardagasena þar sem vopnin eru orð og myndir á Instagram. Hafðu það hinsegin / Keep It Gay Roger: Theatre‘s so obsessed / With dramas so depressed / It‘s hard to sell a ticket on Broadway / Shows should be more pretty / Shows should be more witty / Shows should more more … / What‘s the word? Leo: Gay? Roger: Exactly! Á YouTube má finna myndbrot úr kvikmyndinni The Producers, söngleikinn sem Mel Brooks skrifaði upp úr sínu eigin kvikmyndahandriti. Myndbrotið heitir því ágæta nafni Keep It Gay – The Producers og núverandi tölur sýna að horft hefur verið 364.000 sinnum á myndskeiðið. Gróflega má ætla að við Tyrfingur séum sameiginlega ábyrg fyrir 50 þúsundum þeirra. Mín tilgáta er sú að þessi tiltekna sena leynist í nánast öllum leikritum Tyrfings. Smekkleysa, sviðslistahommar og Village People í bland við leiftrandi texta og hárbeittan húmor. Leikritin hans snúa upp á hvað það er að vera hinsegin, fagna fólkinu á jaðrinum og gagnrýna það í senn. Leikhús á nefnilega að vera skemmtilegt og hinsegin þótt það fjalli um alvarleg málefni, hvort sem um er að ræða innrás Hitlers í Pólland eða hversdagslegan fjölskylduharmleik í Kópavogi. Roger Elizabeth DeBris veit nefnilega nákvæmlega hvað hann syngur í laginu: „Keep it happy, keep it snappy, keep it gay!“, - og það gerir Tyrfingur líka! “... Where old gays come to die” Tyrfingur Tyrfingsson, playwright and persona Sigríður Jónsdóttir writes about her friend and colleague Tyrfingur Tyrfingsson, who in 2022 was awarded the Icelandic performing arts award Gríman for his newest play, and chronicles his works for the last 10 years. Tyrfingur’s plays tend to shock and to awaken people, move them to reevaluate their lives and values, and to laugh and cry. Tyrfingur writes about people on the fringes of society: his characters tend to be weak, flawed, and often queer. Tyrfingur’s plays contend with what it means to be queer as they celebrate and criticize people on the margins. 30

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.