Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2022, Side 33
sérfræðinga sem hamast við að úthrópa
fólk sem andstæðinga málfrelsis og að
þau séu að reyna að „slaufa“ fólki eða
þagga niður í þeim. Ekki er langt í hinn
klassíska frasa „má ekkert lengur?“ í
slíkum umræðum.
En málfrelsi þýðir ekki að fólk sé
hafið yfir gagnrýni og er tal um
slaufunarmenningu því oft á tíðum
afskaplega þýðingarlítið. Oftar en
ekki er um að ræða fólk sem neitar
að viðurkenna að ákveðin orðræða
sé fordómafull, þrátt fyrir að fólk sem
tilheyrir viðeigandi hópi segi að hún sé
það vissulega.
Fólk sem er sagt vera fórnarlömb
slaufunarmenningar á oft á tíðum ekki
í miklum vandræðum með að koma
skoðunum sínum á framfæri, enda
eru þau oftar en ekki í öllum helstu
fjölmiðlum síns lands eða jafnvel heims,
þar sem skoðanir þeirra eru bornar á torg
fyrir heiminn. Tal um slaufunarmenningu
er því í besta falli afvegaleiðing þar sem
öll athyglin er færð frá hópnum sem
verður fyrir barðinu á henni og yfir áþað
hversu mikið fórnarlamb viðkomandi
einstaklingur er sem tjáði fordómafullar
skoðanir sínar. Aðstæðum er því snúið
í andhverfu sína þar sem gerendur eru
gerðir að fórnarlömbum.
Gagnrýni á skoðanir fólks, sér í lagi þegar
þær eru fordómafullar, er mikilvægur
liður í okkar lýðræði og málfrelsi. Það
er mikilvægt að við sem samfélag
fordæmum slíka orðræðu, enda hefur
sagan kennt okkur að hatursorðræða og
fordómar leiða til alvarlegri atburða og
ofbeldis.
Það að kynda undir hatri og mismunun
snýst nefnilega ekkert um málfrelsi.
Hatursfull orðræða sem niðurlægir og
ræðst að hópum fólks eða á einstakling
er ekkert annað en ofbeldi. Ef við leyfum
slíkri orðræðu að standa óáreitt og án
afleiðinga þá grasserar hún og leiðir
til grófari fordóma, áreitis og jafnvel
ofbeldis.
Um leið og við leyfum henni að
viðgangast, hvort sem er um að
ræða greinar á netinu, fordómafulla
orðræðu á Alþingi eða gelt út á götu,
þá erum við að færa mörkin um hvað
telst ásættanlegt og hvað ekki. Slíkt
grefur ekki aðeins undan öryggi fólks í
samfélaginu, heldur ógnar frelsi, lýðræði
og friðhelgi fólks.
Í mínum huga er það því mikilvægt
að við tökum skýra afstöðu gegn
hatursorðræðu, enda áhrif hennar
augljós og sýnileg. Slík orðræða grefur
undan réttindastöðu fólks, hefur áhrif á
þeirra andlegu líðan og býr til hindranir í
nærumhverfi þeirra. Það gerir þeim erfitt
að fóta sig í samfélaginu af ótta við
fordóma og áreiti.
Ef við ætlum að skapa réttlátt, fallegt
og öruggt samfélag þá verðum við að
vera tilbúin að setja skýr mörk um hvað
telst ásættanleg orðræða á opinberum
vettvangi og ákveða hvernig við ætlum
að bregðast við orðræðu sem elur á
fjandsemi og andúð.
Það hefur í raun aldrei verið mikilvægara
en nú til að koma í veg fyrir ógnvænlega
þróun sem hefur átt sér stað undanfarin
ár víðsvegar um Evrópu. Við þurfum
ekki að fara lengra en til Noregs þar sem
hræðileg og ógnvekjandi skotárás átti sér
stað á hinsegin bar í Osló — þar sem fólk
var skotið fyrir það eitt að vera hinsegin.
Slík voðaverk gerast ekki upp úr þurru
og eru afleiðing hatursfullrar orðræðu
og innrætingar sem hefur heltekið huga
einstaklingsins sem framdi verkið.
Við skulum ekki bíða eftir því að slíkt
verði raunveruleikinn á Íslandi. Komum
í veg fyrir það strax og berjumst öll sem
eitt gegn því að hatursfull orðræða
í garð hinsegin fólks og annarra
minnihlutahópa fái að viðgangast án
afleiðinga.
Baráttunni er svo sannarlega hvergi
nærri lokið.
The Power of Words
This year the Icelandic queer community
has faced multiple incidents of
dehumanizing behaviour. Ugla Stefanía
writes about the hateful speech that leads
to these incidents.
Hate speech against queer people has
grown all over the word and Iceland is no
exception where articles and interviews
that undermine the fight for queer rights
are published and the social media
discourse is even worse. In Icelandic law,
hate speech is any speech intended to
mock, shame or threaten a person based
on their gender or sexuality. Speaking up
against hate speech often triggers shouts
of “cancel culture” and “what about the
right to free speech?” But the right to free
speech does not give people the right to
harass, and it is a part of our free speech
to defend our humanity. If we want a
beautiful, safe society we need to firmly
draw the line on what is acceptable to say
in public and how to handle hate speech.
The fight is nowhere near over.
Einnig hafa verið stofnuð „samtök“ að
breskri fyrirmynd sem einblína á það
að berjast gegn réttindum trans fólks,
á sama tíma og ákveðinn flokkur sem
er hægt og rólega að fjara út á þingi
keppist við að flytja fordómafulla og
afvegaleiðandi orðræðu inn á Alþingi og
í opinberri umræðu.
Hatursorðræða hefur því oft verið nefnd
í þessu samhengi, enda um orðræðu
að ræða sem ýtir undir fjandsemi og
tortryggni í garð hinsegin fólks. En hvað
er eiginlega hatursorðræða og hvernig
virkar hún?
Ekki er til nein algild skilgreining á
hatursorðræðu en samkvæmt íslenskum
lögum er það talið varða við lög að
hæðast að, smána eða ógna fólki með
ummælum eða tjáningu — þar með
talið á grundvelli kynhneigðar og
kynvitundar.
Það er afar sjaldgæft að fólk á Íslandi
sé sakfellt fyrir hatursorðræðu en árið
2017 voru tveir karlmenn sakfelldir
fyrir hatursorðræðu gegn hinsegin
fólki eftir að Samtökin ‘78 kærðu mjög
gróf og fordómafull ummæli þeirra.
Ummælin féllu í tengslum við samning
Hafnarfjarðarbæjar við Samtökin
‘78 um fræðslu í skólum, en þar lýstu
þeir hinsegin fólki sem kynvillingum
og barnaníðingum sem ætluðu sér
að innræta ungum börnum með
hinseginleika sínum.
Hatursorðræða er slungin og getur
verið erfitt að koma auga á hana ef þú
þekkir ekki til hópsins sem um ræðir
eða hefur ekki upplifað hana á eigin
skinni. Oft á tíðum felur fólk einnig sín
raunverulegu skilaboð með svokölluðum
„hundaflautum“ þar sem fordómar og
andúð eru klædd í búning áhyggja,
öryggis og „skynsemi“.
Þegar bent er á að ákveðin orðræða sé
fordómafull eða jafnvel hatursorðræða
þá er ekki langt í sjálfskipaða
33