Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2022, Síða 43
okkur sem vinnum í hinsegin málum til
að bera okkur saman við nágrannalöndin
og einnig til að læra af þeim, vita hvað
við getum gert betur og halda þannig
mikilvægum þrýstingi á stjórnvöld, þá
sérstaklega löggjafarvaldið. En til þess
að samanburðurinn sé réttur og faglegur
þá þarf kortið að bera saman sömu lög/
reglugerðir/lögskýringartexta á milli
landa. Það getur verið afar flókið og því
koma oft upp atriði sem betur mætti
fara, t.d. sem tæpt var á um alþjóðlega
vernd. Samtökin ’78 hafa þegar sent
ILGA-Europe erindi vegna þessa og
vonast er til þess að skerpt verði á
flokknum um alþjóðlega vernd við
gerð næsta Regnbogakorts. Að hækka
á Regnbogakortinu er skref í rétta átt,
en stundum hækkum við því önnur
lönd lækka, það er ekki jafn jákvætt.
Við þurfum að horfa á Regnbogakortið
heildstætt en ekki aðeins líta á það sæti
sem við lendum í.
Að uppfylla aðeins 61% af kröfum
Regnbogakortsins er ekki nándar nærri
nóg, Ísland á að uppfylla allar þær kröfur
sem kortið setur. Því eins og staðan
er núna, þá vantar hinsegin fólk 39%
réttinda á Íslandi í dag
Næstu skref
Mikil vinna hefur verið lögð í
framkvæmdaáætlun í málefnum hinsegin
fólks sem samþykkt var á Alþingi með
öllum greiddum atkvæðum. Það verður
áhugavert að sjá hvernig sú vinna þróast
en ef litið er til framkvæmdaáætlunar
í jafnréttismálum þá byrja slíkar
áætlanir gjarnan mjög vítt og verða svo
markvissari með hverju árinu.
Þó skal nefna að gríðarmargt sem tæpt
er á í málaflokknum er eitthvað sem
Samtökin ’78 hafa unnið að, án fjármagns,
í mörg ár ef ekki áratugi.
Það jákvæðasta við áætlunina er þó
sú stefnubreyting stjórnvalda að fara í
vinnu við að vernda hinsegin fólk fyrir
hatursáróðri og/eða hatursglæpum,
en fyrir aðeins fjórum árum ætlaði
þáverandi dómsmálaráðherra að
þrengja lagagrein um hatursáróður.
Þetta er mikið fagnaðaefni enda sá kafli
Regnbogakortsins sem er hvað rýrastur
þegar litið er til Íslands.
Mannréttindabarátta er langhlaup, við
megum aldrei sofna á verðinum og við
þurfum að mæta öllu mótlæti af krafti en
á sama tíma fagna sigrunum. Hinsegin
samfélagið má vita að Samtökin ’78 eru til
staðar, alltaf.
ILGA-Europe rainbow map and
Alþingi’s action plan for queer issues
Iceland ranks 9th out of 49 countries
on the ILGA-Europe rainbow map, this
highest in a decade. This article details the
changes to the rainbow index contributing
to the recent jump. It highlights the fact
that meeting 31% of the requirements
is not nearly good enough as that
means that queer people in Iceland are
still missing 69% of their basic rights.
It will be interesting to see how the
Alþingi’s recently-approved action plan
for queer rights plays out – many of its
points are ones Samtökin ‘78 have been
working on for years or decades without
proper funding. Human rights work is a
marathon and Samtökin ‘78 are here for
the community for every step of the way.
Þó skal nefna að
gríðarmargt sem tæpt
er á í málaf lokknum er
eitthvað sem Samtökin
’78 hafa unnið að, án
f jármagns, í mörg ár ef
ekki áratugi
43