Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2022, Side 46

Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2022, Side 46
Regnbogaráðstefna Hinsegin daga 2022 Reykjavik Pride’s Rainbow Conference Hinsegin dagar hafa lengi lagt ríka áherslu á fjölbreytta fræðsluviðburði og umræðufundi um málefni tengd hinsegin fólki, sýnileika þeirra og réttindum. Nú fara þessir mikilvægu viðburðir fram á sérstakri Regnbogaráðstefnu í PRIDE CENTER Gayrsgötu 9 og á Borgarbókasafninu í Grófarhúsinu, miðvikudaginn 3. ágúst og fimmtudaginn 4. ágúst. Nánari upplýsingar um fjölbreytta dagskrárliði ráðstefnunnar má finna á www.hinsegindagar.is/dagskra For many years, Reykjavik Pride has hosted various educational events on issues related to LGBTQIA+ people, their visibility and rights. In 2022, these important events take place at our Rainbow Conference on Wednesday 3 August and Thursday 4 August at our PRIDE CENTER and at Grófin City Library. Further information on the conference's agenda can be found at www.hinsegindagar.is/en/ programme Youth Pride Í fyrsta sinn stendur ungmennaráð Hinsegin daga, með stuðningi Hinsegin daga, fyrir sérstakri ungmennadagskrá eða Youth Pride. Fjölbreyttir viðburðir í öruggu umhverfi fyrir ungt hinsegin fólk á aldrinum 13-17 ára. Nánari upplýsingar á www.hinsegindagar.is/dagskra For the first time Reykjavik Pride’s youth committee, with the support of Reykjavik Pride, has organized a special Youth Pride programme. Various safe space events for LGBTQIA+ youth aged 13-17 years old. More information on www.hinsegindagar.is/en/programme Aðgengismál Accessibility Hinsegin dagar leggja áherslu á að þau sem taka þátt í hátíðinni hafi góðan og greiðan aðgang að viðburðum. Leitast er við að húsnæði þar sem viðburðir fara fram sé aðgengilegt, sérstakur aðgengispallur verður til staðar á útihátíðinni í Hljómskálagarðinum auk þess sem ýmsir viðburðir verða táknmálstúlkaðir. Nánari upplýsingar má finna á hinsegindagar.is Sendinefnd Evrópusambandsins á Íslandi er sérstakur styrktaraðili aðgengismála á Hinsegin dögum í Reykjavík. At Reykjavik Pride we want to emphasize accessibility for all. Where possible, events are held at accessible venues, in addition to a special access platform at our outdoor concert in Hljómskálagarður Park and sign language interpretation at various events. More information can be found on our website, www.reykjavikpride.is The Delegation of the European Union to Iceland is a proud Pride partner and a special sponsor of accessibility at Reykjavik Pride.

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.