Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2022, Qupperneq 57
Þau Axel Ingi Árnason, Bjarni
Snæbjörnsson og Gréta Kristín
Ómarsdóttir eru þríeykið
sem stendur á bak við lag
Hinsegin daga í ár. Lagið er
upprunalega úr söngleiknum
Góðan daginn, faggi sem var
frumsýndur á Hinsegin dögum
2021 við dæmalaust góðar
undirtektir og er enn í sýningu
í Þjóðleikhúskjallaranum. Lagið
hefur nú verið endurunnið
sérstaklega fyrir Hinsegin
daga og að því tilefni klætt í
diskógallann.
Texti lagsins talar beint inn
í hinsegin þjóðarsálina og
þörf okkar fyrir að skrifa eigin
sögu. Það er ekki ólíklegt að
þetta verði eitt þeirra laga sem
mun hljóma á hverju einasta
hinsegin balli og um hverja
hinsegin daga um ókomna tíð.
Hvernig kom það til að lagið
Næs varð lag Hinsegin daga
í ár?
Söngleikurinn okkar Góðan
daginn, faggi gekk gríðarlega
vel í Þjóðleikhúskjallaranum
síðasta vetur og við fengum
svo mörg falleg og ljúfsár
skilaboð frá fullt af hinsegin
fólki í kjölfarið á því að þau
sáu sýninguna. Við upplifum
að sýningin hafi öðlast sitt
eigið líf sem heilandi stund
fyrir hinsegin fólk því fólk
var að tengja svo djúpt.
Okkur datt því í hug að bjóða
Hinsegin dögum upp á að
gera eitt af lögunum að lagi
Hinsegin daga. Þetta lag hafði
augljóslega mikla þýðingu
fyrir hinsegin fólk og því fannst
okkur liggja beinast við að
nota það.
Um hvað er textinn?
Textinn fjallar um baráttu
hinsegin fólks frá sjónarhorni
söngvarans sem er
samkynhneigður maður.. Bæði
fjallar textinn um ytri baráttu
okkar við samfélag sem gerir
sögulega ekki ráð fyrir okkur
eða gerir okkur oft erfitt fyrir
að vera frjáls og örugg, og líka
um innri baráttu hinsegin fólks
og styrkinn sem við búum
yfir, draumana og vonirnar og
þá réttmætu kröfu okkar til
heimsins að við þurfum ekki
að afsaka okkur fyrir að vera
við sjálf.
Hvernig er þessi útgáfa
frábrugðin þeirri sem er í
söngleiknum?
Í söngleiknum er lagið kröftug
ballaða og á þeim stað í
sögunni þar sem Bjarni þráir
að skilja af hverju hann er
með djúpt sár á sálinni og
hann langar að finnast hann
tilheyra samfélaginu. Svokallað
„want-song” sem er mikilvægt
augnablik í öllum söngleikjum.
Í nýju útgáfunni klæðum við
lagið í fjörugan diskógalla og
breytum textanum örlítið til að
hann eigi frekar við okkur öll
og þrá okkar um að öll fái að
tilheyra.
Verður ekki örugglega tækifæri
fyrir þau sem ekki hafa séð
sýninguna Góðan daginn,
faggi til að sjá hana?
Það verða nokkrar sýningar í
Þjóðleikhúskjallaranum í lok
ágúst og byrjun september,
síðan fer sýningin á ferðalag
og við munum sýna ókeypis
fyrir efstu bekki grunnskóla um
land allt og nokkrar almennar
sýningar víðsvegar um landið;
í Samkomuhúsinu á Akureyri,
í Sláturhúsinu á Egilsstöðum
og í Dunhaga á Tálknafirði.
Seinna á leikárinu munum við
líka sýna fyrir framhaldskóla
um allt land. Svo er aldrei
að vita nema Góðan
daginn, faggi haldi áfram í
Þjóðleikhúskjallaranum, við
munum halda áfram svo lengi
sem fólk vill koma.
Er lífið næs í dag?
Já, það er næs og það gæti
líka verið miklu meira næs.
Við þokumst upp listann hjá
Rainbow Europe hvað varðar
lagalega réttarstöðu hinsegin
fólks og samfélagið er alltaf
að verða opnara og víðsýnna.
En það er líka augljóst bakslag
Næs
Mikið væri það nú næs að leyfa sér að
dreyma,
það væri næs að vita hvar ég á heima.
Það væri rosa næs ef fengi ég að vera
sá sem ég er og ekkert þyrft’að fela
og ég vissi upp á hár hvaða mann ég hef
að geyma.
Það væri næs að finna hvar ég á heima.
Bros gegnum tár
græðir mín sár
ennþá hér eftir öll þessi ár.
Mig langar svo nýja sögu að skrifa
og alla leið lífinu lifa.
Ég vil allt, vil það strax, ég vil meira.
Mikið verður það næs er við öll megum fá
að tilheyra
Það er svo rosa næs að leyfa sér að vona
að öll gætu séð, við erum bara svona.
Það er svo næs að þurfa bara að elska.
Bros gegnum tár
græðir mín sár
ennþá hér eftir öll þessi ár.
Mig langar svo nýja sögu að skrifa
og alla leið lífinu lifa.
Mig langar svo nýja sögu að skrifa
og alla leið lífinu lifa.
Ég vil allt, vil það strax, ég vil meira.
Mikið verður það næs er við öll megum
fá að tilheyra
í gangi akkúrat núna. Þess
vegna eru Hinsegin dagar enn
grundvallaratriði fyrir baráttu
hinsegin fólks, fyrir sýnileikann
og samstöðuna. Við erum
minnt á það stöðugt að við
megum ekki sofna á verðinum
og verðum að vera til staðar
fyrir hvert annað. Það skiptir
ekki síst gríðarlega miklu máli
að halda áfram að búa til list
og segja sögur sem fjalla um
hinsegin fólk og okkar líf á
okkar forsendum.
Höfundur lags: Axel Ingi
Árnason
Pródúser: Pétur Karl
Höfundar texta: Bjarni
Snæbjörnsson og Gréta Kristín
Ómarsdóttir
Upptökur og hljóðblöndun:
Aron Þór Arnarsson
Söngur: Bjarni Snæbjörnsson
Bakraddir: Sigga Eyrún og
Sigga Beinteins
Trommur: Svanhildur Lóa
Bergsveinsdóttir
Fiðla: Matthías Stefánsson
Beat: Daði Freyr
Framleitt af Stertabendu
Mikið væri
það nú næs…
Lag Hinsegin daga 2022
57