Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2022, Qupperneq 69
Hvað er burlesk?
Þetta er spurning sem ég fæ nánast í
hvert skipti sem ég segi frá því sem ég er
að gera og það eru sko til mörg svör við
þessari spurningu. Burlesk er nefnilega
ofboðslega frjálst listform og getur verið
mjög mismunandi eftir því hvar í
heiminum þú sérð það. Stutta svarið mitt
við spurningunni er að burlesk er
kynþokkafullur kabarettdans. En ef ég
útskýri aðeins nánar þá flokkast burlesk
undir sviðslistir, getur verið einhvers
konar sambland af leikhúsi og dansi þar
sem fjallað er um líkama, kynþokka, kyn
og jafnvel mörk velsæmis. Oftast er þetta
gert með miklum líkamlegum húmor en
getur líka verið þrælpólitískt. Í burlesk-
atriði er það yfirleitt ein manneskja sem
fer á svið og flytur ákveðna sögu sem
getur verið misflókin en í langflestum
tilfellum endar sagan á því að
manneskjan er í heldur færri fötum
heldur en hún byrjaði atriðið í ... en þó
ekki alltaf. Það má nefnilega gera alls
konar í burlesk. Margir eru líka einhverju
nær þegar ég nefni fjaðravængi,
fjaðrabóur og brjóstadúska en þetta eru
allt hlutir sem tilheyra klassísku burlesk
og einhverjir kveikja líka á perunni þegar
ég nefni bíómyndir eins og Cabaret,
Chicago eða Moulin Rouge. Burlesk er
líka náskylt dragi og á sér sinn kafla í
sögu og menningu hinsegin fólks. Þar
getum við til dæmis nefnt Berlin á
millistríðsárunum. Á þeim tíma
blómstraði kabarett í borginni, Magnus
Hirschfeld talaði fyrir réttindum hinsegin
fólks og meira frelsi til þess að vera
hinsegin ríkti almennt. Hinsegin fólk sótti
og tók þátt í kabarettsýningum þar sem
svigrúm gafst til þess að leika sér með
mismunandi tjáningu á kyni og
kynhneigð. Sjónvarpsþættirnir Babylon
Berlin fanga þessa stemningu mjög vel,
mæli sko aldeilis með þeim
Er kannski drag og burlesk það sama?
Já og nei. Það er ofboðslega margt líkt
með þessum listformum. Bæði í dragi og
burlesk er það oftast ein manneskja sem
fær hugmynd, setur saman atriði, búning,
velur tónlist, skapar ákveðinn lítinn heim
fyrir áhorfendur til að skyggnast inn í.
Drag leikur sér meðal annars að því að
brjóta upp stífar hugmyndir samfélagsins
um kyn og ýkja steríótýpur og burlesk
gerir það í einhverjum mæli líka en
gengur þó meira út á að leika sér með
kynþokka og stundum kynhneigð, þar er
dansað á mörkum velsæmis. Eins og í
draginu er mikill húmor í burlesk og
gengur sá húmor mikið út á hvað það er
sem er kómískt við mannslíkamann ... allir
geta tengt við svoleiðis brandara og oft
kemur það fólki á óvart hversu mikið er
hlegið á burlesk sýningum. Burlesk brýtur
líka upp stífar hugmyndir samfélagsins
um hvað er fallegt. Það er einmitt eitt af
því sem ég elska svo mikið við burlesk, að
þar eru allir líkamar fallegir og velkomnir.
Hvað finnst þér burlesk hafa gert fyrir
þig?
Þegar ég byrjaði í burlesk var ég strax
með ákveðnar hugmyndir um hvað mig
langaði að gera. Ég vildi nota þetta
listform til þess að tjá á yfirdrifinn máta
hinseginleika minn og mig langaði að
brjóta upp hugmyndir um kyn, það sem
er stundum kallað „gender bending”. Ég
held að ég eigi þrjú atriði sem ég hef sýnt
sem fjalla á einhvern hátt um kyn og
kynhneigð en svo á ég auðvitað líka atriði
sem fjalla ekkert sérstaklega um það.
Samt sem áður þá er burleskið ákveðin
leið fyrir mig til þess að lyfta upp og deila
með öðrum öllu því sem gerir mig
öðruvísi en aðra. Burleskið hefur því
tvímælalaust verið ákveðin leið til þess að
læra að elska það sem gerir mig
frábrugðna öðrum. Það sem er öðruvísi
við mig er um leið það sem gerir mig
einstaka og þegar ég fer á svið er ég að
sýna það með stolti. Fyrir utan að vera
lesbísk og örvhent er ég líka vel yfir
meðallagi í hæð og með rosalega langa
fótleggi og vil þess vegna gjarnan vera
kynnt þannig á svið. Hér áður fyrr þegar
ég var unglingur var það að vera
hávaxin stelpa ógeðslega
vandræðalegt og leiðinlegt. Ég var líka
lengi að koma almennilega út úr
skápnum en í stað þess að vera bitur og
leið yfir því að hafa ekki getað notið
þess að vera ég sjálf fyrr þá nota ég
burlesk-persónuna mína til að vera
súper gay og hella hinseginleikanum
yfir fullan sal af fólki. Það sem ég er
kannski að reyna að segja er að burlesk
fyrir mér er bæði valdeflandi og
frelsandi og þetta eru lýsingarorð sem
ég heyri mjög margt burlesk-fólk tala
um.
Þar sem ég er í þeim minnihlutahópi að
vera lesbía þá eru mínar hugmyndir um
hvað er kynþokkafullt við konu kannski
að einhverju leyti frábrugðnar því sem
gagnkynhneigðu fólki finnst
kynþokkafullt. Í mínum burlesk-
atriðum vil ég því brjóta upp normið og
sýna eins gay hlið á mér og ég
mögulega get, á sviðinu er það ég sem
stjórna, ég ræð hvað ég sýni og