Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2022, Page 70
hvernig. Það er mitt val að fara á sviðið
og þessi reynsla er mjög valdeflandi. Á
sviðinu er ég búin að taka völdin af
samfélaginu, ég er búin að taka í burtu
þau höft sem samfélagið reynir að setja á
mig, brýt upp normið. Þetta vald sem ég
tek mér skilar sér sem ákveðin uppreisn
út í sal til áhorfenda sem fagna því með
mér sem er náttúrulega fáránlega
skemmtilegt. Þetta er sjúklega
ávanabindandi sport sko.
En þó ég tali svona ögn formlega um
þetta þá er þetta líka bara tækifæri til
þess að leika sér og fíflast, skemmta fólki
og fá það til að hlæja og gleðjast yfir
fáránleika mannslíkamans. Burlesk hefur
bæði kennt mér og veitt mér tækifæri til
að elska einmitt það sem gerir mig
öðruvísi. Því myndi ég eiginlega segja að
atriðin mín séu eins og mín
einkahinseginganga sem ég fæ að sýna
oft, oft á ári!!! Elskum það sem gerir
okkur öðruvísi, elskaðu að það getur
enginn verið nákvæmlega eins og þú,
verum sýnileg og fögnum
fjölbreytileikanum á sem fjölbreyttastan
hátt.
Er burlesk eitthvað sem allir geta
gert?
Já, ábyggilega ef fólk langar til þess á
annað borð. Það er nefnilega líka alveg
hægt að hafa ánægju af því að fara bara í
burelsk kennslutíma. Það þarf ekkert
endilega að fara á svið til þess að hafa
gaman af þessu. Ég var til dæmis með
svona vinnustofu í burlesk á Reykjavík
Fringe festival í júlí sem var sérstaklega
ætluð fyrir hinsegin fólk þó auðvitað
væru allir velkomnir og ætla svo að halda
annað núna á Hinsegin dögum. Þetta er
sem sagt klukkutíma burlesk-kennsla þar
sem fjallað er um burlesk út frá hinsegin
sjónarhorni. Kannski er best að taka það
fram líka að það þarf ekkert að óttast,
það verða engin föt látin falla. Ég kenni
nokkrar grunnhreyfingar og við pælum
saman í mismunandi tjáningu á kyni,
kynhneigð og kynþokka. Þetta verður
haldið í hinu ofurkósí Kramhúsi sem er
fullkomið til þess að prófa að stíga út
fyrir þægindarammann og láta sitt
einstaka ljós skína. En fyrst og fremst á
þetta að vera skemmtilegt og létt partý
með dansi, fjöðrum og smá búbblum
líka. Viðburðurinn er partur af
utandagskrá Hinsegin daga.
Loving is what makes us different.
Interview with Vice Versa about queer
burlesque as artform and self-expression.
„ÞÁ ER ÞETTA LÍKA
BARA TÆKIFÆRI TIL
ÞESS AÐ LEIKA SÉR
OG FÍFLAST, SKEMMTA
FÓLKI OG FÁ ÞAÐ TIL AÐ
HLÆJA OG GLEÐJAST
YFIR FÁRÁNLEIKA
MANNSLÍKAMANS“
70