Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2022, Síða 72

Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2022, Síða 72
ENGAR BÆKUR ERU BANNAÐAR Fyrir bókavörð eins og mig var uppröðunin kunnugleg. Fyrst á vinstri hönd komu flokkabækurnar svokallaðar, það er fræðibækur og aðrar sem eru auðkenndar með flokkstölu. Það eru þó ekki bara þurrar skruddur heldur líka gersemar eins og ljósmyndabókin To Survive on this Shore um eldra trans fólk og auðvitað úrval bóka um sögu hinsegin baráttu og hinsegin fræði. Næst koma ljóðabækurnar sem eiga það stundum til að verða útundan. Af íslenskum ljóðabókum má nefna Sjóarinn með morgunhestana undir kjólnum eftir Elías Knörr og Kóngulær í sýningargluggum eftir Kristínu Ómarsdóttur. Við rákumst svo á hina forvitnilegu Wound from the Mouth of a Wound eftir torrin a. greathouse sem er óhugnanleg rannsókn á kynvitund og ofbeldi í bundnu máli. Stærstur hluti deildarinnar eru skáldsögurnar. Þar má finna allt frá klassík eins og bókaflokkinn Armistead Maupin um nágranna í San Francisco, Tales of the City, yfir í kynsegin vísindaskáldsögur eins og The Trans Space Octopus Congregation, safn smásaga eftir Bogi Takács. Svo má nefna verðlaunabókina Shuggie Bain eftir Douglas Stuart sem fjallar um samband samkynhneigðs drengs við áfengissjúka móður sína. Að lokum koma myndasögurnar. Sú vinsælasta er auðvitað ekki inni, Heartstopper eftir Alice Oseman um unglingsstrák sem fellur fyrir skólafélaga sínum. Gender Queer eftir Maia Kobabe er það hinsvegar. Hún er ævisöguleg og nýtur þess vafasama heiðurs að vera sú bók sem oftast var reynt að banna á bandarískum bókasöfnum í fyrra vegna hreinskilinnar umfjöllunar um kynseiginleika höfundar. HÖFUNDUR: GUTTORMUR ÞORSTEINSSON Á Hinsegin dögum í Reykjavík hefur bókabíllinn blái þjónað sem lítið hinsegin útibú Borgarbókasafnsins þar sem er hægt að skoða og fá lánaðar bækur um og eftir fólk af öllum kynjum og kynhneigðum. Sá bókakostur kemur úr hinsegin deild Borgarbókasafnsins í Grófinni. Hún er byggð á grunni bókagjafar Samtakanna ‘78 árið 2014. Síðan þá hefur bókasafnið haldið áfram að kaupa inn bækur enda hefur úrvalið aukist mikið síðustu ár og orðið auðveldara að kaupa bækur sem snerta á öllum hinum fjölmörgu þáttum hinsegin kynverundar, hvort sem það eru fræðibækur eða skáldverk. Ég vinn sjálfur á Kringlusafni svo ég gerði mér ferð niður í Grófina til að skoða deildina. Upplýsingaspjald við afgreiðsluna beinir okkur strax upp á aðra hæð. Þegar komið er út úr lyftunni erlendu skáldsagnamegin sést að við erum á réttum stað. Fyrir innan spennusögurnar finn ég gang með bókum sem eru merktar bleikum punkti á báða bóga. Þar tók starfsmaður Grófarinnar á móti mér og sýndi mér fjölbreytnina í bókakostinum. Þar eru einnig ævisögur og minningar hinsegin fólks. Samstarfsmaður minn mælti til dæmis með bókinni Gay Bar eftir Jeremy Atherton Lin. Í henni fer hann aftur í tímann og skoðar hommabarina sem mótuðu hann og hvaða þýðingu þetta menningarfyrirbrigði, sem er mögulega í útrýmingarhættu, hefur. Þar má líka finna ævisögu Anne Lister eftir Angelu Steidele, Gentleman Jack, en samnefndir þætti sem BBC og HBO framleiða eru byggðir á henni. Dagbækur Lister sem hefur verið kölluð fyrsta nútímalesbían voru skrifaðar á dulmáli sem náðist ekki að leysa úr fyrr en löngu eftir dauða hennar. Þær þóttu svo berorðar að fyrst var álitið að þær væru falsanir. 72
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.