Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2022, Qupperneq 81
Ölstofa Kormáks og
Skjaldar á Vegamótastíg
er notalegur bar skreyttur
hinsegin fánum sem á
marga fastagesti og er
fullkominn í trúnó, en
stemningin getur orðið
heldur hetero um helgar.
Hjólastólaaðgengi.
Dillon: Andrea Jónsdóttir er
með dj set á laugardögum.
Rokk og viskí. Heyrst hefur
að Dillon sé eða hafi verið
í uppáhaldi hjá hinsegin
konum.
Kaffibarinn er
rótgróinn í barsenunni og
þangað sækja hörðustu
djammararnir, já eða þau
sem vilja bara kíkja í einn
laufléttan á happy hour.
Reykingasvæðið er gott,
sem er mikilvægt fyrir
hinsegin fólk.
Kalda bar á Klapparstíg
þekkja flest. Þar er hægt
að sýna sig og sjá aðra eða
kíkja á trúnó, hvort sem
það er í einhverju horni eða
undir hitalömpunum.
Barirnir Skúli Craft Bar,
12 tónar, 10 sopar/
Vínstúkan og Veður eru
staðir þar sem hinsegin
fólk kemur oft saman en
þessir barir eru ekki með
áberandi regnbogafána eða
kynhlutlaus (aðgengileg)
salerni.
Það er ekki mikið sem
þarf til þess að trekkja
að hinsegin fólk á barinn.
Regnbogafáni á áberandi
stað eða kynhlutlaus
klósett gera staðinn
aðgengilegri án mikillar
fyrirhafnar. Ef til vill gleymdi
greinahöfundur einhverjum
bar í miðborginni og það er
skömm að því að einungis
hafi verið hægt að tala
um bari í Reykjavík. Eitt
er þó víst, seinasti bjórinn
hefur ekki verið drukkinn
á hinsegin skemmtistað í
Reykjavík.
Where do queer people
party in Reykjavík?
Reykjavík currently only has
one officially queer club Kiki
but obiously queer people
party elsewhere as well.
Reykjavík Pride Magazine
asked a round to find in what
other places queer people
might find a pride flag, a
gender-neutral bathroom
and other queer people.
Gaukurinn, Röntgen, Loft
hostel, Ölstofan, Dillon,
Aldamót, have a good
atmosphere, queer ownership
and a good bathroom
situation. Tjarnarbarinn,
Kaffibarinn, Iðnó, Kaldi,
Skúli, 12 tónar, Húrra, 10
sopar, Veður do not have all
the physical reminders of a
safe space for queer people
but you might meet a good
amount of queer people there
and a nice atmosphere.
fjallkona.isfjallkonan.rvk fjallkonan
FJALLKONAN FAGNAR ÞÉR!
81